Tuesday, December 26, 2006
Thursday, December 14, 2006
Skemmtilegar sögur!
Posted by
Asta 阿斯塔
at
5:22 PM
9
comments
Wednesday, December 06, 2006
Hitt og þetta")
Svo í dag var ég að koma úr mjög slæmu/góðu fótanuddi. Skellti mér með Pien og Emmu. Þeir byrjuðu fyrst að nudda axlirnar og bakið meðan fæturnir voru í heitu fótabaði. Síðan lág maður bara flatur meðan það var verið að ýta á einverja punkta undir ilinni. Vá hvað þetta var samt svoldið gott. Já verð nú eiginelga að taka það líka fram...borgaði heilar 18RMB sem eru ca 150 kr fyrir 1 klukkutíma.
Sjáumst fljótt....
")
Posted by
Asta 阿斯塔
at
10:25 PM
8
comments
Wednesday, November 29, 2006
Dúfnabú!!!

Jæja, svo koma bara nokkrar mannlífsmyndir...





Bless í biliÁsta
Posted by
Asta 阿斯塔
at
6:28 PM
6
comments
Sunday, November 19, 2006
Félagslíf og fólk sem ég umgengst
Ég hef held ég bara ekkert talað um félagslífið hér í Kína. En svona smá update, þá sit ég ekki heima alla daga á rassinum og læri :) Sem er auðvitað bara mjög gott!!
En föstudaginn fyrir viku var fyrsta prófið okkar og auðvitað fórum við "vestrænu" nemendurnir á smá skrall eftir það. En það vill svo heppilega til að það eru tveir skemmtistaðir (pöbbar) sem að eru hérna rétt hjá þar sem ég bý. Þannig að það er minnsta mál fyrir mig að rölta þangað og rölta aftur heim. En persónulega finnst mér þessir staðir ekkert æði. Annar þeirra heitir Propaganda, þar sem allar kóreskustelpurnar standa upp á sviði í sní... (hummm) stuttum pilsum og vestrænu strákarnir slefandi á eftir þeim. Hinn staðurinn heitir Zub og er svona aðeins smekklegri að mínu mati.
Allavega, það er langskemmtilegast að fara á skemmtistaði í Sanlitun-hverfinu (niðrí bæ). En það tekur ca 40 min í leigubíl, sem er slatta langt að mínu mati. En það er svo sum fljótlegra á leiðinni heim þegar engir bílar eru á ferð ;)
Ég ákvað að skella með einni mynd af okkur á skemmtistað sem heitir MIX. En þar var frekar sveitt andrúmsloftið.
Þetta eru sem sagt krakkarnir (gvuð eða fullorðna fólkið) sem ég er oftast með.

David, Alexandra, Ciara og ég. Þau eru öll þrjú frá Kanada. David og Alexandra eru kærustupar.
Svo á laugardagskvöldið fyrir viku, þá ákvað ég að hrista af mér mygluna frá því kvöldið áður. Skellti mér í afmæli til Sigga, í almennilegt Íslendingapartý. Naut þess auðvitað í botn að geta talað íslensku!!!
Flotta afmæliskakan:
Sætu Íslendingarnir: Emill kærasti Fanneyjar, Fanney, Siggi afmælisbarn og Hildur!

Svo á miðvikudagskvöldið síðasta þá ákváðum við nokkrar stelpur í skólanum að hafa wine&cheese night. Svo að ég bauð heim til mín nokkrum stelpum: Ciara (Kanada) Emma (Frakkland) og Pien(Holland) En við vorum allar farnar að vorkenna okkur svo mikið og kvarta og kveina yfir Kína, að við þurftum á almennilegu stelpukvöldi að halda. Sem var auðvitað bara gaman. Svo var ákveðið í framhaldi af því að hafa fleiri þema kvöld, beer&nuts, Desperate Housewifes maraþon á 3.seríu og þess háttar.
Hér fyrir neðan er Emma að skera niður brauð og osta!! Algjör Delux matur hér í Kína, en þar sem ég er naut (mikil nautnarmanneskja) þá auðvitað leyfi ég mér þetta þokkalega oft :-D
Get því miður ekki lifað á hrísgrjónum og núðlum alla daga!!!!

Svo var auðvitað skálað, slúðrað og kjaftað fram á nóttu....
Jæja, nú er ég búin að kynna nokkra nýja leikmenn til leiks, eini gallinn er sá að þetta er allt krakkar sem að eru að fara heim til sín eftir próf og ég sé þau ekkert aftur. Reyndar eru David og Alexandra líka í fullu IMBA prógrammi eins og ég, en þau ákváðu að taka 1 ár í Singapore og koma svo aftur til Kína á fjórðu önn. Þannig að þegar ég kem aftur út eftir áramót, þá þekkir maður ekki eins marga sem er frekar fúlt og þarf því að kynnast fólki upp á nýtt.
Jæja, vonandi eruð þið nú að njóta þess að horfa á jólaljósin, hlusta á jólatónlistina í útvarpinu, festa bílinn í snjónum. Auk þess að njóta þess að borða: piparsteik í rauðvínssósu, humar í hvítvínssósu, bláberjaskyr, fisk, kotasælu, ferskt salat sem þið fáið ekki niðurgang af og annað slíkt!!!
Ég veit það allavega með vissu að ég ætla að njóta þess í botn þegar ég kem heim...
Fyrir þá sem ekki vita það þá kem ég heim seint 23.desember og fer aftur út um miðjan febrúar!!! Langt og gott frí á Íslandi!!!
ÍSLAND ER BEST Í HEIMI :-)
Posted by
Asta 阿斯塔
at
2:31 PM
8
comments
Sunday, November 05, 2006
Jakob í heimsókn!!!
Ég var svo heppin að bölva við einn strák í skólanum frá "blogg" vandanum mínum að hann benti mér á þessa síðu: http://anonymouse.org
Sem er snilldar síða fyrir okkur sem erum úti í heimi þar sem allt er ritskoðað og maður má ekki neitt...híhíhí :) Maður sem sagt skellir sér á þessa síðu og kemst frá henni yfir á allt sem maður vill...uss ekki segja neinum...!!
Vúff.....eins gott að ég er heima hjá mér en ekki í skólanum....humm....með almennilegt klósett. Trallalla
En ég væri sko til í að skipta á íslensku eðalnammi og
Ég er búin að sýna honum Crem du la Crem af Peking og reyna að sannfæra hann um að flytja til mín. Gengur nú ekki neitt sérstaklega vel...hummm...
Ég reyndi að láta honum líða eins og Lýð Oddssyni, hann fékk humarhala í morgunmat, piparsteik í kvöldmat og gat farið aftur að sofa á morgnanna þegar ég fór í skólann. Hver myndi neita því lífi. Einnig kynntist hann skúringakonu minni sem kemur einu sinni í viku til mín, humm..kannski að hún hafi nú reyndar séð einum of mikið af honum. Því að vegna erfiðleika minna við að skilja kínverksu náði ég því að hún kæmi á þriðjudaginn næst. En ég hélt klukkan 14 en það var reyndar kl 9. Svo að úps...Jakob var bara í sturtu þegar hún æddi inn. Ég gat ekki hætt að hlægja mér fannst þetta allt svo fyndið. En henni fannst þetta sko ekkert tiltökumál. Hélt bara áfram að babbla á kínversku og eina sem ég sagði var bara Ni Hao (halló) og döj döj (já já). Svo reyndi ég að segja við hana kl 14 en hún sagði örugglega (ég skil hana sko ekki) “nei klukkan 9” svo sýndi hún 2 putta upp í loftið. Hummmm... Allir Íslendingar myndu nú taka því sem klukkan tvö. Ekki satt? En allavega nóg bull um það.
Hér koma nokkrar ekta túrista myndir af okkur Jakobi, þ.e.a.s. af mér einni, af honum einum og svo væmin af okkur báðum :) búhahaha En hann var ekkert smá heppinn með veður. Það var eiginlega sól allan tímann. Veðrið er enn rosalega fallegt en samt skítkalt.

Þar sem að Jakob er mikill dýravinur leyfði ég honum að fara með mig í dýragarðinn. En það sem var einna mest spennandi að sjá voru Panda birnirnir. Annars var nú ekki mikið að sjá í þessum dýragarði og vorum við örugglega ekki nema 20 min þarna inni.
Uppáhaldsstaðurinn minn í Peking er HouHai hverfið. En hérna sitjum við sem sagt upp á húsþaki, horfum niður á fjöldann og drekkum bjór. Það er alveg hreint magnað að sitja þarna og horfa á mannlífið. Því að mannlífð er svo frábrugðið vestrænni menningu.
Eftir bjórinn fórum við í hjólreiðatúr um hverfið. En þetta er svona ekta túrista attraction ;) Sátum þarna á meðan lítill kínverji svitnaði að hjóla með okkur :-D
Svo skellti maður sér auðvitað á The Great Wall. Sem er alltaf gaman :)
En vorum svo þreytt eftir labbið upp Fragrance Hill að við tókum cabalinn upp og niður :9
Síðan bauð sendiherrann í Peking okkur í veislu og vá hvað það var góður matur. Maturinn með íslenskubragði....ummm.... jeminn ég held að ég hafi getað borðað endalaust. Lamb, lax, ýmsar sósur...ummm.. ...slurk!!!
Aðalþynnku maturinn í Kína.
Fórum á smá djamm með Íslendingunum eftir sendiráðið. Þá fengu strákarnir sér allir svona kjöt á spjóti. Þetta er reyndar alveg ótrúlega góður matur. Ég ætlaði aldrei að þora en svo er þetta rosalega gott. Jammí
Síðan skelltum við okkur daginn eftir til Sjanghæ. En þegar við komum á flugvöllinn fórum við með rafsegullest niður í miðbæ. Við fórum sem sagt á 310 km hraða, 30 km á ca 8 mín. Spáið í hraða. Þetta var eiginlega bara eins og að vera í rússubana, nema það að þú ferð á mun meiri hraða.
Sjanghæ er alveg afskaplega skemmtileg borg líka. Mæli ég eiginlega með fyrir þá sem eru hvort sem er að koma til Kína að skella sér þangað líka.
Jæja, svo Mr. and Mrs. Wong Fu síðasta kvöldmáltíðin. Vorum með þetta magnaða útsýni meðan við borðuðum. En daginn eftir hélt Jakob heim á leið og lokaði hringnum sínum, þ.e.a.s. hringnum í kringum hnöttinn!

Vonandi hafa e-rjar af þessum myndum gefið ykkur smá sýn hvernig Peking er. En hún er nefnilega rosa fín, reyndar fílaði ég hana mun betur þegar Jakob var hérna. En það er svoleiðis með svo margt, skiptir ekki máli hvar maður er svo lengi sem maður er í góðum félagsskap...ekki satt :)
Allavega, bless í bili
Chin Chin og Wong Fu :)
Posted by
Asta 阿斯塔
at
4:20 PM
11
comments
Friday, October 27, 2006
Bloggleysi :(
Hæ hæ
Því miður get ég ekki í augnablikinu lesið enskar blogg síður :(
Hefði átt að stofna íslenskt blogg, því að allar blogg síður á ensku liggja niðri.
Ég get bloggað ..humm...held ég ...ég vona að þið sjáið þetta en ég sé þetta ekki..hehe!! (hljómar asnalega)
Allavega, blogga meira þegar "þeir" opna aftur fyrir aðgang að bloggsíðum. Ef það gerist ekki, þá reyni ég að opna íslenska síðu og læt ykkur vita linkinn seinna.
Annars er ég bara að njóta þess að hafa Jakob í heimsókn :)
Bless í bili
Ásta
Posted by
Asta 阿斯塔
at
2:03 PM
2
comments
Tuesday, October 17, 2006
Ekki fyrir viðkvæma :-P
Ég steingleymdi að kynna ykkur fyrir klósett aðstæðum mínum í skólanum :-D Hehe..Jibbý
(Þeir sem eru viðkvæmir er bent á að sleppa að lesa næstu málsgreinar og fara beint í fræðslustund vikunnar í lok bloggsins...múhaha!!!)
En sem sagt ég læt mynd fylgja með.....
.....þetta er holan sem ég þarf að pissa í á hverjum degi. En ég er búin að komast að því að þetta er alls ekkert svo slæmt...humm...eða kannski er ég að reyna að hugsa jákvætt. ...múhahahaaaa
En trikkið er í fyrsta lagi að reyna að halda niðri í sér andanum, því að lyktin er viðurstyggileg. En það hef ég ekki enn getað gert nema í 30 sek...svo að Yoga getur vonandi hjálpað mér að bæta tímann.
Því næst lokar maður að sér, þess má geta að sums staðar eru ekki skilrúm, heldur bara allir pissa saman...vhíhíhíhí híhí ...svo svo gaman!!! :-D
Næsta trikk er að kippa buxnaskálmunum upp....NB UPP að hnjám og síðan girðir maður NIÐUR að hnjám. Trikkið er að buxurnar séu ALLAR við hné. Ef viðkomandi tekst ekki að gera þetta, þá munu buxnaskálmarnar verða rennandi blautar...og við skulum ekki einu sinni hugsa lengra en það....jakk!!!
Því næst þarf maður aðeins að anda og ég mæli aðeins með "stuttu/litlu andi inn"
Síðan er trikkið að pissa með ákveðnu tempói, ég mæli ekki með of hægu eða of hröðu tempói.
Of hægt tempó getur valdið dauða, mundu þú ert að halda niðrí þér andanum. Of hratt tempó getur valdið leiðinlegum "skvettum" sem við viljum endilega forðast.
Eftir að þú hefur gert allt sem þú þarft að gera þá stígur þú með fæti þínum á "sturtarann". Pís off keik!!! Ekki satt???
Annars er um að gera að hugsa jákvætt, þú þarft ekki snerta neitt og þetta gæti ekki verið snyrtilegra ...humm... Nema stundum eru ruslatunnurnar fullar af ákveðnu ....humm...rauðu dóti...þar sem "það" snýr upp á við...ásamt því að gólfið getur verið ansi hált. Stundum skil ég nú ekki hvað getur verið erfitt við það að hitta í þessa holu en kínverskum stúlkum finnst þetta greinilega afar erfitt. Þess má geta að ég rann einu sinni til í bleytu og sá fyrir mér andlitið mitt ofan í holunni en sem betur fer náði ég fótfestu og komst heil á húfi út.
Þetta klósett hér til vinstri er einnig til boða fyrir okkur stúlkurnar en enn hefur mér ekki tekist að finna út úr því hvernig á að nota það. Ég held ég láti kínverjum það eftir....
Annars ráðlegg ég ykkur (eða sjálfri mér) eindregið að halda ykkur frá ýmiss konar drykkju, vatnsdrykkju, kaffidrykku, alls konar drykkju á meðan kennslustund stendur yfir.
Vonandi hefur þessi lesning ekki valdið ykkur miklum viðbjóði :-P
Vildi bara deila með ykkur daglegum þrekum sem ég þarf nú á dögum að glíma við..hehe :-D
Fræðslustund vikunnar:
Merkilegt nokk, prófessorinn minn í China in Transistion, sagði að það væri enginn ástæða til að hafa áhyggjur af mengun því að hún hefur engin áhrif á efnahagslífið. Við þyrftum sko ekkert að vera meðvituð um hana núna, væri bara seinni tíma vandamál. Humm...vitur maður.
Posted by
Asta 阿斯塔
at
8:55 PM
9
comments
Monday, October 09, 2006
Helgi og Skúli til hamingju :)
En ég svaf nánast ekkert í nótt, svo vaknaði maður og þaut út í morgun til að mæta fyrsta daginn í skólann eftir frí. Jeminn eini...ég held að umferðin sé að þyngjast. Þetta er hreint ótrúlegt. Ég var á nýja flotta hjólinu mínu og komst nánast ekkert áfram. Svo kemur fólk úr öllum áttum, framan á mig, til hliðar og ég veit ekki hvað og hvað. Ég skil ekki hvað er svona erfitt við það að fylgja umferðareglunum. Svei mér þá!!!
En svo komst ég heil á húfi upp í skóla fór í tíma, China in Transistion, þar sem ég lærði um spillingu stjórnvalda, hlutabréfamarkaðinn og sósialískt/ kapítalískt þjóðfélag. Þar sem kennarinn sagði okkur að hlutabréfamarkaðurinn væri bara crap og spilling alls staðar. Hummm...uppörvandi...en kannski smá áhugavert.
Eftir tíma fór ég svo í mötuneytið með nokkrum stelpum. Um leið og ég kom inn sagði ég við þær: vóoo hvað er mikið af fólki hér. Og þær hinar bara nei nei...þetta er ekkert um daginn var mun meira. En nei nei..svo allt í einu byrjar mín bara að ofanda og stressast upp. Finn bara púlsinn verða hraðari og hraðari. Ég fékk þessa þvílíku innilokunarkennd sem ég hef ALDREI fundið fyrir áður. Ég komst hvergi, fann bara þunga soya lykt og fólk alls staðar...ALLS STAÐAR. En sem betur fer náði ég að komast að exit ganginum og fór út...en nei nei...þá var líka troðið af fólki úti. Ég komst ekkert framhjá...gat ekki andað út af mengun og leið bara frekar illa. Svo loksins gat ég náð í hjólið mitt og hjólað heim. En ....svo stopp eftir 5 min út af umferð og ég komst heldur ekkert áfram þá. Vúfff....
Svo núna sit ég loksins heima hjá mér og tel dagana niður í áfallahjálpina mína...sem kemur núna eftir 13 daga :) mér til mikillar gleði.
Þess á milli reyni ég að flýja "raunveruleikann" (sem er stundum frekar óraunverulegur), skelli MacDreamy og Meridith í DVD spilarann og gleymi mér á e-jum spítala í Seattle :)
Posted by
Asta 阿斯塔
at
7:30 PM
10
comments
Thursday, October 05, 2006
Atvinnulífið í Kína blómstrar
Ég er búin að vera í fríi síðustu daga. Fór í frí síðasta föstudag og er alveg fram á næsta sunnudag :) En málið er að það er National Day hjá kínverjum og þeir taka heila viku í frí. Svona á að gera þetta. Mér finnst að við Íslendingar eigum að taka þetta til fyrirmynda og hafa vikuna í kringum 17.júní bara frí...hehe :)

múrinn með kínverskri vinkonu minni og kærastanum hennar. En það tók ekkert smá vel á. Löbbuðum upp á topp, fengum okkur að borða þar og svo aftur niður. Ég hélt að ég myndi hrynja á leiðinni niður því að fæturnir mínir hristust svo mikið ;) Var komin aftur heim til mín um 20:30. Þannig að ég missti af tveim boðum; á föstudagskvöldið (út af því að ég þurfti að vakna svo snemma) og á laugardagskvöldið (út af því að ég var svo þreytt eftir labbið)! Algjör aumingi...hehe

En annars var þetta bara rosalega skemmtilegt. Það er ekki mikið búið að laga þennan hluta múrsins og var því mjög sjarmerandi að labba þarna upp. Ég fór með mömmu og pabba fyrir rúmlega ári síðan á fræga túrista múrstaðinn. Það var reyndar líka alveg roslega fínt. Mikið búið að laga stéttina þar og auðvelt að labba. (Mun meira af fólki þar, en þarna var maður nánast einn)
Síðan á miðvikudaginn vaknaði ég og fékk mér geðveikislegan góðan hádegismat, steik og læti. Fór á franskan veitingastað sem heitir Brassiere FLO. Þessi mynd til vinstri er tekin eftir að ég er pakk södd af ýmsu gúmmmilaði. En ég held að besta veðrið hingað til hafi verið á þessum degi. Það sást rosalega vel í bláan himinn því að það var svo lítil mengun ;) og ekki of brjálæðislega heitt (ca 28 stig)
Skellti mér síðan aðeins í búðir. Vandamálið var bara að ég hef engan til að halda á dótinu fyrir mig og þá verð ég að hætta að kaupa :( Kannski bara eins gott..hehe... ekki sniðugt að hafa Ástu eina í borg þar sem er fullt af skóm og töskum...hummm!!! En ég ákvað að hafa þemað SKÓR. Keypti mér 6 pör af skóm og er ekki hætt. Ég er búin með kvótan í bili ...aaahhh...með íþróttaskó.. en nú eru bara fínir háir hælar eftir..hehe!! Keypti mér fína úlpu fyrir veturinn, Grey's Anatomy seriu 1 & 2 sem ég hef aldrei séð en er núna orðin háð. Og þessi fínu D&G sólgleraugu. Svo í gær fór ég í þessa fínu andlitsnyrtingu. En með andlitsnyrtingunni fékk ég líka e-ja handahreinsun. Þar sem ég stakk lófunum mínum í e-ð brjálæðislega heitt vax og fékk þá "auka húð" yfir hendurnar mínar. Frekar sniðugt, mér leið eins og í Face Off myndinni þar sem þeir skiptu um andlit nema það að ég var að fá nýjar hendur. Síðan pakkaði konan höndunum í handklæði og lét þær vera þannig á meðan hún nuddaði andlitið mitt með einhverjum hreinsikremum í 70 min. Svo þegar hún var búin að taka þessa "auka" húð af höndunum þá fór hún að nudda hendurnar og láta braka í þeim. Því næst ýtti hún fótunum mínum fram og til baka og tosaði í tærnar. Ýtti á e-ja punta osfrv. Þetta var fyrst allt mega þægilegt. En svo í lokin þá nuddaði hún axlirnar sem var ekki neitt sérstakt, og allt í einu lamdi hún í hausinn á mér. Sem var frekar óþægilegt það kom alveg verkur niður í tær þegar hún gerði það. Skildi ekki alveg tilganginn í því. Gerði þetta aftan á hnakkanum nokkrum sinnum... hummm... Frekar fyndið að halda að maður sé bara að fara í andlitsnyrtingu en fá svo eiginlega í leiðinni nudd. En mér leist allavega það vel á þetta að ég skellti mér á Membership Card til að fá ýmsa afslætti. (Fattaði reyndar eftir á að ég borgaði fyrir afslátta kortið, sem þýðir örugglega að í lokin "græðir" maður ekki neitt...humm....heimsk ég... og ég sem hélt að ég væri viðskiptafræðingur)
En ég lít á þetta sem mitt framlag til atvinnulífsins hér á landinu. Fer í andlitsbað, handsnyrtingu og fótsnyrtingu. Kaupi töskur og skó :-D
Posted by
Asta 阿斯塔
at
7:48 PM
7
comments
Friday, September 29, 2006
Welcome Party
Ni hao
Ég er enn með harðsperrur í kjálkunum eftir gærkvöldið. Það var sem sagt dúndur partý í gærkvöldið. Mega mega stuð og mega gaman.
Málið er að það var haldið Welcome International Student Party upp í skóla. Þar sem boðið var upp á veitingar og drykki. Um 130 manns var boðið og aðeins 40 mættu. Veitingarnar voru eins og vanalega....melónur, bananar, kínverskt súkkulaði (ekkert súkkulaði bragð) ..Drykkir...humm...Coke, appelsínudjús og soda.
Svo var brugðið á leiki eins og kínverjum er einum lagið. Og mín hugsaði með sér: Best að færa sig hingað aftast og vera ósýnileg. En nei nei þá var náð í mig og ég dregin á mitt gólf til að vera með í leiknum. Kræst!!!! Hvað er málið eiginlega, af hverju er bara ekki hægt að hafa venjulegt almennilegt partý þar sem það þarf ekkert að vera skipulagðir leikir eða atburðir.
Allavega, mín tók þátt í einhverjum dansleik. Þar sem nokkur pör áttu að halda á dagblaði og dansa með það og svo þegar tónlistin stoppaði að þá átti maður að skella dagblaðinu á gólfið og stíga á það. Sá sem var síðastur var úr leik. Svo byrjaði tónlistin aftur og þá átti maður að gera það sama nema að brjóta blaðið til helminga og svo stíga á það aftur þegar tónlistin stoppaði. Þannig á endanum var blaðið pinku lítið og stelpan átti helst að vera í fanginu á stráknum. Hljómar vel...er það ekki?
Well, sem betur fer var ég heppin að enda ekki með kínverskum strák sem hefði tekið þetta voða alvarlega og krafist þess að halda á mér. Heldur dansaði ég á móti dana þar sem við gátum hlegið að þessu rugli og dottið snemma úr leik.
Svo voru söngatriði inn á milli....en þess má geta að salurinn er nánast tómur...þetta var bara snilld og ég átti svo erfitt með mig því að þetta var grafasta alvara. En ég hristist alveg til og frá...vá hvað kjálkinn var orðinn stífur. Annars dáist ég að þeim að gera þetta og þora þessu, eitthvað sem við Íslendingar myndu aldrei þora...missa coolið. En myndir segja meira en nokkur orð:
...
Þau voru nokkur þessi söng atriði og get ég því miður ekki sýnt ykkur það allt.
En svo var líka skellt sér í limbó!!! JEIIIII LALLALLALALALALA LALLLALALALALAA
...
En svo í lok kvöldsins fórum við nokkur saman á skemmtistað þar sem þessi fallega óskýra mynd var tekin af mér, Nancy (frá Kanada) og Hanza (frá Pakistan)
Góða helgi :)
Posted by
Asta 阿斯塔
at
6:43 PM
7
comments
Saturday, September 23, 2006
Íbúðin mín
Vegna fjölda áskorana koma loksins myndir af íbúðinni minni. En ég bý frekar central í því hverfi sem ég er í. En annars er miðbærinn í Beijing ca 25 min í leigubíl frá mér. Ef það væri engin umferð þá væri ég ekki nema 10 min þangað.
Well, þetta er herbergið sem ég sef í ásamt kínverskri stelpu......
En þetta er herbergið sem ég fékk til að vera á heimavist. Fötin mín hefðu ekki einu sinni komist þarna inn. (Rúmið er mega hart)

Svo er það svefniherberfið mitt / stofa. Ég sef í sama herbergi og þar sem stofan er. Mjög notalegt að því leyti að þá skellir maður einni DVD mynd í sjónvarpið og fer undir sæng...ummmm.
p.s. takið eftir skemmtilega kaktusnum mínum sem ég keypti, er í hillunni fyrir miðju, hægri mynd. (mjög litríkur)

Eldhúsið er frekar lítið og er rétt pláss fyrir tvo þarna inni. Einn til að elda og hinn til að vaska upp...hehehe!!
Pant elda!!
Á ganginum þegar maður kemur inn er ískápurinn ásamt eldhúsborði.
Svo er það gestiherbergið fyrir þá sem koma í heimsókn :) En þess má geta að sófinn í hinu herberginu er svefnsófi fyrir tvo sem hægt er að skella inn í þetta herbergi!!
Ég nota þetta í dag sem lærdómsherbergi, er með tölvuna og bækur þarna. Þessi mynd er tekin daginn sem ég fékk íbúðina.
Þannig að ég er með rúm fyrir alls fimm manns, þ.e. two double bed and one single bed.
Breakfast, sightseeing and a lot of laughter included.
Hope to see you some day!!!
Ásta Inn
Posted by
Asta 阿斯塔
at
9:42 PM
10
comments
Monday, September 18, 2006
Teambuilding...no The Scare Factor!!!
Jæja þá ætla ég að reyna að skella inn nokkrum "litlum" myndum því í að tengingin mín er hæg.
En í fyrstu vikunni sem skólinn var þá fór ég upp í sveit í "Teambuilding Day" sem var bara skelfilegt ;-D Þetta var bara bandarískt sem að ég fílaði engan veginn :)
Allavega við fórum í rútu og gistum í eina nótt. Við vorum komin þangað um kvöldmatarleytið og fengum okkur strax að borða. Ég var ekki alveg komin inn í þetta kínverska umhverfi og fannst maturinn ekkert æði. En fann mér eitthvað við mitt hæfi. Svo um kvöldið þá áttum við að mynda hópa, búa til nafn á hópinn, búa til fána, slagorð og söng. Jee dúdda mía, gvuð hvað ég var ekki að fíla þetta :-D Leið eins og ég væri í skátunum.
Svo valdi hver hópur leiðtoga sem að kynnti hópinn, nafnið á hópnum, fánann, slagorðið og svo söng hver hópur fyrir sig lagið sem hann hafði samið. Þetta var allt frekar hallærislega skemmtilegt og ég skildi voða lítið því að þetta var allt í kínverksu.
En svo var farið að sofa og vaknað eldsnemma um morguninn. Hlupum smá hring, smá kínversk leikfimi, smá teygjur og síðan byrjaði keypnin á milli hópa. Fyrst áttum við að fara í snú snú og 10 manns áttu að hoppa 15 sinnum saman í snú snú...vei..Við vorum næst síðust..humm.
Síðan fengum við okkur morgunmat og hann er nú ekki neitt sérstakur. Ég vil nú bara helst fá mitt Cheerios og mjólk, eða ristað brauð og ost. En ekki djúpsteikt brauð! Takk fyrir...hehehe :)
En eftir morgummatinn byrjaði loftleikfimi! Þá byrjaði ég að horfa á klukkuna og hugsa með mér....ok bara 12 tímar eftir.

Hérna áttum við að standa upp á þessum palli, snúa baki í alla, binda hendur saman með reipi og láta okkur detta á hópinn. NEI TAKK, þetta langaði mig ekki að gera!!! Greyið kínverjarnir myndu festast við jörðina eins og nagli við vegg þegar ég myndi detta á þá og ég myndi enda sem stjörnufiskur á jörðinni. En það þýddi ekkert fyrir mig að segja nei við þá. Heldur byrjuðu þau að öskra: Asta you can do it, come on, one for the team. Svo sungu þau "slag" söngin okkar og klöppuðu mér á bakið. Jesus kristur!!!! Þá leit ég á klukkuna aftur og aðeins 11 tímar og 50 min eftir.
Svo þurftum við að klifra upp 4 metra háan vegg, án þess að nota reipi eða hjálpartæki. Bara skella sér í klappstýrubúninginn hugsaði ég með mér. Greyið litlu kínversku strákarnir sem ég traðkaði á :-D
Á mili leikja áttum við að setjast niður og ræða tilfinningarnar okkar. Hvernig okkur leið eftir að við höfðum gert þetta og hvað var það fyrst sem kom upp í hugann og blablabla. Well maður bullaði eitthvað þar...mér fannst þetta vera svona frekar asnalegt Hehehe

En hér er ég að undirbúa mig fyrir að klifra 8 metra háa súlu. Brosi gjörsamlega í gagnum tárin og hræðsluna. Fékk þennan fallega hjálm og allir vildu hjálpa mér að setja hann á mig!!! En svo byrjaði fjörið....And then up we go.......

Og svo bara ekkert mál, stökkva á milli ..og aftur til baka.
Sounds like fun...doesn't it?

Jæja, hópurinn minn í lok dagsins. Á heildina litið var þetta svona ágætt eftir á og ég kynntist þarna flestum sem ég þekki í dag. Ég var nú samt orðin afskaplega þreytt og hlakkaði mikið til að komast í íbúðina mína. En ég verð nú að viðurkenna það að mig langaði einna mest að vera komin heim á Skotó, sitja inn í eldhúsi, horfa út á tjörnina, hlusta á góða tónlist með rauðvínsglas í hönd :)
p.s. Þeir sem hafa áhuga á loftleikfimi er bent á síðuna: www.teambuilding.com.cn
Ég er allavega útskrifuð og fékk skirteini upp á það :)
Posted by
Asta 阿斯塔
at
10:27 PM
11
comments

















