Teambuilding...no The Scare Factor!!!
Jæja þá ætla ég að reyna að skella inn nokkrum "litlum" myndum því í að tengingin mín er hæg.
En í fyrstu vikunni sem skólinn var þá fór ég upp í sveit í "Teambuilding Day" sem var bara skelfilegt ;-D Þetta var bara bandarískt sem að ég fílaði engan veginn :)
Allavega við fórum í rútu og gistum í eina nótt. Við vorum komin þangað um kvöldmatarleytið og fengum okkur strax að borða. Ég var ekki alveg komin inn í þetta kínverska umhverfi og fannst maturinn ekkert æði. En fann mér eitthvað við mitt hæfi. Svo um kvöldið þá áttum við að mynda hópa, búa til nafn á hópinn, búa til fána, slagorð og söng. Jee dúdda mía, gvuð hvað ég var ekki að fíla þetta :-D Leið eins og ég væri í skátunum.
Svo valdi hver hópur leiðtoga sem að kynnti hópinn, nafnið á hópnum, fánann, slagorðið og svo söng hver hópur fyrir sig lagið sem hann hafði samið. Þetta var allt frekar hallærislega skemmtilegt og ég skildi voða lítið því að þetta var allt í kínverksu.
En svo var farið að sofa og vaknað eldsnemma um morguninn. Hlupum smá hring, smá kínversk leikfimi, smá teygjur og síðan byrjaði keypnin á milli hópa. Fyrst áttum við að fara í snú snú og 10 manns áttu að hoppa 15 sinnum saman í snú snú...vei..Við vorum næst síðust..humm.
Síðan fengum við okkur morgunmat og hann er nú ekki neitt sérstakur. Ég vil nú bara helst fá mitt Cheerios og mjólk, eða ristað brauð og ost. En ekki djúpsteikt brauð! Takk fyrir...hehehe :)
En eftir morgummatinn byrjaði loftleikfimi! Þá byrjaði ég að horfa á klukkuna og hugsa með mér....ok bara 12 tímar eftir.

Hérna áttum við að standa upp á þessum palli, snúa baki í alla, binda hendur saman með reipi og láta okkur detta á hópinn. NEI TAKK, þetta langaði mig ekki að gera!!! Greyið kínverjarnir myndu festast við jörðina eins og nagli við vegg þegar ég myndi detta á þá og ég myndi enda sem stjörnufiskur á jörðinni. En það þýddi ekkert fyrir mig að segja nei við þá. Heldur byrjuðu þau að öskra: Asta you can do it, come on, one for the team. Svo sungu þau "slag" söngin okkar og klöppuðu mér á bakið. Jesus kristur!!!! Þá leit ég á klukkuna aftur og aðeins 11 tímar og 50 min eftir.
Svo þurftum við að klifra upp 4 metra háan vegg, án þess að nota reipi eða hjálpartæki. Bara skella sér í klappstýrubúninginn hugsaði ég með mér. Greyið litlu kínversku strákarnir sem ég traðkaði á :-D
Á mili leikja áttum við að setjast niður og ræða tilfinningarnar okkar. Hvernig okkur leið eftir að við höfðum gert þetta og hvað var það fyrst sem kom upp í hugann og blablabla. Well maður bullaði eitthvað þar...mér fannst þetta vera svona frekar asnalegt Hehehe

En hér er ég að undirbúa mig fyrir að klifra 8 metra háa súlu. Brosi gjörsamlega í gagnum tárin og hræðsluna. Fékk þennan fallega hjálm og allir vildu hjálpa mér að setja hann á mig!!! En svo byrjaði fjörið....And then up we go.......

Og svo bara ekkert mál, stökkva á milli ..og aftur til baka.
Sounds like fun...doesn't it?

Jæja, hópurinn minn í lok dagsins. Á heildina litið var þetta svona ágætt eftir á og ég kynntist þarna flestum sem ég þekki í dag. Ég var nú samt orðin afskaplega þreytt og hlakkaði mikið til að komast í íbúðina mína. En ég verð nú að viðurkenna það að mig langaði einna mest að vera komin heim á Skotó, sitja inn í eldhúsi, horfa út á tjörnina, hlusta á góða tónlist með rauðvínsglas í hönd :)
p.s. Þeir sem hafa áhuga á loftleikfimi er bent á síðuna: www.teambuilding.com.cn
Ég er allavega útskrifuð og fékk skirteini upp á það :)



11 comments:
Úff ég hefði ekki meikað svona drasl, það var nógu erfitt að gamla daga að þjást með ..ohh hvað hét það unglingafræðslan eða e-ð. Please nennir e-r að muna hvað þessi skelfilegu samtök hétu. Farið með mann út á land til að pynta mann... Uss anyways það er gott að þú lifðir þetta af :)
Guuuð hvað ég skil þig ógeðslega vel! Ég hefði dáið, djö... stóðstu þig vel :)
Jesús hvað þú ert góður penni Ásta mín... er búin að grenja úr hlátri yfir þessari færslu!! Guð hvað ég skil þig vel að hafa verið nett pirruð yfir þessu, við Nesstelpurnar erum nú ekki þekktar fyrir að fíla svona vitleysu... hahahah! En ætli við hefðum ekki allar gott af því að vera hent í djúpu laugina ;)
Hahahahaha!thetta er nu alveg crazy,ekki vissi eg ad kinverjar væru svona miklir grinistar!mer fannst allavega hryllilegt ad fara i rustur i DK thar sem teambuidling gekk ut a bjordrykkju i sveit.thad var of skatalegt fyrir mig.
eg daist ad ther og thvi ad thu hafir ekki fake-ad meidsli og fluid heim.
GO ACE!!
Ásta mín, Þú ert soddan snillingur. ;-) Go girl!
Bwahahahahahaha....hrikalega var þetta skemmtileg lesning...ég gjörsamlega dó úr hlátri...ég og Vilborg sátum hérna sitthvoru megin við tölvurnar okkar og hlógum og hlógum...en kreizí stöff þetta...hahahaha...en þú ert hetja og kláraðir þetta ;)
Elsku gullið mitt, ég fékk bara sting. En hvað lætur maður sig ekki hafa til að vera "alþjóðlegur".
Mér finnst þú hafa staðið þig frábærlega !!! Enda ertu "Team Spirit kind of a girl".
Takk fyrir skrifin, farðu vel með þig.
vohó þetta hefði ég aldrei meikað. sérstaklega ekki þetta með að setjast niður og tjá tilfinningarnar, nema náttúrlega ef ég hefði verið full......
Rosalega gaman að fá að fylgjast með kínversku lífi. Hafðu það rosalega gott...
kveðja Lisa
Ég fer nú bara að hugsa um það þegar við fórum í river rafting (ég þú og Hervör) og við máttum hoppa niður einhverja klöpp og þú stóðst ein eftir uppi... say no more! Þú manst þetta líka hehe...
Það hefur eflaust hjálpað þér í gegnum þessi crazzyheit Kínverjanna:o)
Jæja, þá er komið að 25 ára afmælinu hennar miss kriss og ykkar útlendinga verður sárt saknað næstkomandi laugardag! Hugsa ég fái mér einn bjór til heiðurs ykkar!jibbí
xx
Þetta er bara eins og var gert við stelpurnar í Piparsveininum og pörin í brúðkaupsþættinum Já - eitthvað hópeflis dæmi....hehe. Frekar fyndið ;-)
svaka stolt af þér Kínastelpa...þú ert alveg frábær. Ég vona samt þín vegna að það séu ekki margar svona uppákomur hjá þeim. Kv. mamma.
Post a Comment