Wednesday, April 25, 2007

Allt að gerast!!!

Hæ hæ


Jeminn það er svo mikið búið að gerast síðustu tvær vikur. Þrátt fyrir að það sé búið að vera rosalega mikið að gera í skólanum þá hef ég nú samt reynt að hafa smá tíma til að gera e-ð skemmtilegt. En við Stefanía ákváðum að túristast alltaf einu sinni í viku. Svo að við skelltum okkur í Lama Temple með henni Lauren um daginn. Okkur fannst það nú reyndar ekkert sérstakt svo að við vorum fljótar að labba þar í gegnum og beint í niður í Hutong hverfið til að setjast niður og chilla í sólinni.

























Síðan skellti ég mér með Jonathan, Bailey og Daniel á the Roots tónleika. Sem spila hipp hopp djassaða tónlist. Það var alveg rosalega gaman að gera e-ð svona öðruvísi. Bara fyndið að heyra söngvarann segja China you are so great...svo lítur maður í kringum sig og BARA útlendingar :) Svo fékk Bailey kjuðann hjá trommaranum og ég hef bara aldrei séð jafn glaðan mann eftir það.




Daginn eftir kynnti Bryndís (sem er líka að læra kínversku hérna) okkur fyrir Mexíkönskum stað. Og ég skyldi ekkert um daginn þegar stelpa sagði við mig í skólanum að ég væri eiginlega ljóshærð fyrr en ég sá mig á þessarri mynd. Held að sólin sé að lýsa á mér hárið smá. Hummm...









Einnig er ég búin að fara í fyrirtækja heimsókn til Lenovo. En Lenovo er kínverskt fyrirtæki sem keypti IBM árið 2005. Alveg hreint ótrúlegt að það skuli vera hægt. En það var alveg æðislega gaman að sjá verksmiðjuna og hlusta á fyrirlestur. Þúsundir af kínverjum að búa til tölvur. Svo í einu herberginu voru nokkrir að prófa gæðin í tölvunum og voru þá bara að leika sér í tölvuleikjum, hlusta á tónlist og horfa á kvikmydnir. Hahaha þvílík vinna :) En það var bannað að taka myndir en ég tók myndir af skónum okkar Jo :)




Síðasta mánudag þá leið mér eins og ég væri allt í einu komin í verkfræði. En í einum tíma áttum við að búa til fyrirtæki og vinna eins og í verksmiðju. Áttum að búa til ákveðna vöru og koma henni til viðskiptavina á ákveðnum tíma (smá færibandavinna). En þetta var eiginlega alveg brillant gaman, allir mjög kappsamir að vinna leikinn og vera það fyrirtæki sem að myndi skila mestum hagnaði. En okkar hópur lenti í öðru sæti sem mér finnst bara mjög gott :)

Jæja, nú er stutt þangað til maður kemur heim til Íslands...aðeins sólarhingur. hlakka til að sjá ykkur!!

Here I come :)

Friday, April 20, 2007

STELPA

HÆ HÆ ALLIR :)


Ég var að eignast krúttulegustu frænku í heimi :) En Svana systir og Skúli eignuðust stelpu á sumardaginn fyrsta!!!


Öllum heilsast vel!!!

Þannig að mér finnst ég ekkert smá rík núna, á lítinn frænda og litla frænku :Þ

Ohhh...þau eru svo mikið krútt bæði tvö !!!

Ásta frænka :)

Tuesday, April 10, 2007

Suspect #1

Gleðilega páska allir saman.


Ég verð nú að segja það að þetta eru búnir að vera aðeins óvenjulegri páskar hjá mér en eins og gengur og gerist. Ekkert páskadót og engin páskaegg. Og núna rétt í þessu er dáldið búið að gerast sem gerist nú ekki á hverjum degi.

Síminn minn íslenski hringir og sagt er: Ásta Björg, þetta er lögreglan. Ég bara: ehe..já. Átt þú gráa Toyotu, bílnúmer PH607. Ég svara því auðvitað játandi. Svo er spurt hvar ég hafi verið á bílnum mínum og ég segi í sakleysi mínu ,,ég er í Kína" Þá segir lögreglan: það hlaut að vera, það er búið að vera erfitt að ná í þig. Dingalingding suspect #1. Svo segir hún: hverjum hefur þú lánað bílinn þinn. En ég hef engum lánað bílinn minn. Og þá spyr ég af hverju. Þá segir lögreglan: bílinn þinn hefur verið notaður í innbrot. Þá spyr hún hvort að ungur strákur hafi aðgang að bílnum mínum. Og ég segi að foreldrar mínir séu þeir einu sem hafa aðgang að honum. Og hugsa með mér ég þekki enga unga pilta.

Allavega, ég upplýsi þá um að kannski hafi e-r fengið að reynsluaka bílinn minn þar sem ég ætla mér nú að selja hann. Þeir þurfa bara að hringja í foreldra mína til að fá frekari upplýsingar. Svo að ég sit óþolinmóð við símann og bíð eftir að löggan tali við foreldra mína og þau hringi svo í mig. Hugsa svo með mér á meðan, aldrei má maður eiga neitt í friði.

Svo hringir löggan í pabba og pabbi heldur nú bara að þetta sé djókur. Fer bara að hlæja og horfir út um gluggann úti á nesi og sér bílinn minn þar. En þegar betur er aðgáð þá kemur í ljós að búið er að stela númeraplötunum á bílnum mínum. Þannig að einverjir ungir piltar hafa sett á nákvæmlega eins bíl og ég á, númeraplöturnar mínar og farið og brotist inn hér og þar. Svo er maður bara "frame-aður." Jahérna meginn...

En svona líka aðeins á léttari nótunum.

Við Stefanía buðum strákunum, Sigga og Halldóri (því miður komst Kiddi ekki) í páskamat heim til mín. Sem var alveg æðislega gaman og einmitt það sem maður þurfti á að halda. En við hlógum, kjöftuðum og spiluðum Póker (auðvitað án peninga) fram á rauða nótt.














Bless í bili
Ásta