Thursday, December 14, 2006

Skemmtilegar sögur!

Ég verð eiginlega að deila þessu mér ykkur. Ég er búin að hlægja svo mikið af þessu. Kannski er ég smá vond að setja þetta hérna á netið.
En ég ætlaði sem sagt að hitta einkaþjálfarann sem ég var búin að segja ykkur frá síðasta mánudag. En er búin að vera með e-ð leiðinda kvef og varð að hætta við tímann. Svo er ég búin að fá nánast á hverjum degi frá honum einhver sms.
T.d. fékk ég þetta um daginn:
"Only to kno about your healht i hope is bether .have a nice night god protect you"
Svo fékk ég í dag:
"Hey .lady how are you feel ? enjoy this sun days .because live is like sun chine good afternoon"
Þá svaraði ég honum að ég væri orðin svoldið upptekin og kæmist ekkert áður en ég færi til Íslands. Ég myndi bara hafa samband við hann þegar ég kæmi svo aftur til Kína.
Þá sagði hann:
"Okay lady good travel and take cake .make father god protect you all time .which you good .and hope u nice"
Hahaha..mér finnst þetta ekkert smá krúttulegt. HAHAHA...Ég get hlegið endalaust af þessu. Ég fór allavega að hans ráðum og fékk mér bara köku bita!!! (held reyndar að þetta átti að vera take care)
Ég verð nú að segja það að hann á hrós skilið fyrir að tala og skrifa ensku. Mér finnst þetta bara ljómandi gott hjá honum. Guð blessi hann!!!
Ég bara varð að deila þessu með ykkur.
Minnir mig reyndar líka á aðra sögu sem einn prófessorinn sagði okkur frá.
Sagan gerist í USA þegar hann var við nám í Berkeley háskólanum. Þá sem sagt ætlar einn Kínverji að setjast hjá einum USA manni í matsalnum.
Kínverjinn segir við hann: "Are you single?" USA maðurinn horfði á hann og sagði ekki neitt...heldur bara... ehhh..hummm. Þá sagði Kínverjinn aftur: "are you lonely?"
Greyið Kínverjinn skildi svo ekkert í svipbrigðum USA mannsins sem hélt að hann væri að reyna við sig. En vildi sem sagt bara setjast hjá honum og ætlaði að spyrja hann hvort hann mætti "join him". :Þ
Mér finnst þetta yndisleg saga líka. Líka gaman að segja frá því að ástæðan fyrir að prófessorinn var að segja söguna við bekkinn var sú að Kínverjarnir ættu ekki að vera hræddir að tala ensku við okkur hin. Heldur ættu þeir bara að nota okkur sem æfingadýr, þó svo að e-ð asnalegt komi út úr þeim. Allir lenda í því e-rn tíma og verður bara til skemmtileg saga fyrir vikið.
Allavega gott að hafa húmor fyrir sjálfum sér!!! :)
Þeir reyna svoldið að vera fyndnir prófessorarnir í skólanum. Einn kom með djók um að MBA námið stæði fyrir Married But Available. (fyrir þá sem ekki vita þá er ég í MBA námi sem stendur fyrir Master of Business Administration)
Jújú..Kínverjar geta verið fyndnir...eða misfyndnir.
Allavega...
Bless í bili
Ásta

9 comments:

Anonymous said...

Ekkert smá krútti...þjálfarinn hefur greinilega personal interest á heilsu þinni...

Anonymous said...

HAHAHAHAHA!en hressandi ad vera i kina.
knus
hb

Anonymous said...

pwwwwahahahahaha...þetta blogg bjargaði alveg deginum hjá mér...múúúhahahahaha...meiri krúttið samt þessi þjálfari..sæi þá í anda hérna heima sýna manni svona mikinn áhuga...þeir myndu bara fussa og sveija ef maður mætti ekki og fara í fílu...haha...en já greinilega stuð í Kína ;-D

Anonymous said...

En sætt og EKKERT SMÁ FYNDIÐ! Ég bíð spennt eftir næsta SMSi frá þjálfaranum... ;)
Koss,
Vilborg

Anonymous said...

HAHAHAHAHA þetta voru hressandi sögur svona í miðjum próflestri. Mig langar í svona committed einkaþjálfara!

Anonymous said...

Hahahaha.... en fyndinn þjálfari. Mig langar í svona þjálfara....þá myndi maður pottþétt mæta í ræktina ;-)

Anonymous said...

en sætt:)
HP

Anonymous said...

gæinn greinilega mjög devoted ;>
hlakka t að sjá þig eftir nokkra daga! :)
xxx Magga

Berglind said...

Ásta þú ert ógeðslega góður penni :)
Þetta er uppáhaldsbloggið mitt