Takk fyrir mig :)
Hæ hó
Ætli maður verði ekki að fara að blogga aftur áður en alltof mikið hefur gerst og maður veit ekkert hvar maður á að byrja.
En Magga, Kristín, Þórdís og Guðrún Margrét voru hjá mér í lok ágúst og í byrjun sept. Það var alveg yndislegt að fá þær svona rétt til að sýna þeim lífið í Peking.
En við náðum að gera alveg heilan helling. Strax á fyrsta degi var komin dagskrá fyrir næstu viku: Silki markaðurinn, fara til Toby saumakalls, forboðna borgin, torg hins himneska friðar, Hou Hai, Hutong Pizza, Simatai Great Wall, Peking University, Summer Palace, Nudd & neglur, Temple of heaven, Olympíu leikvangurinn, Wang Fujing, Beijing Duck og ég veit ekki hvað og hvað.
Við tókum alveg heilan helling af myndum og er ekkert smá erfitt að velja hvaða myndir fá að fara hingað.
Svo ákváðum við að fara á múrinn, Simatai. En ég var mjög fegin að fara með þær þangað frekar en á Badaling (sem er nær Peking) því að það er svo mikið túrista bæli. Hérna er hægt að taka myndir án þess að kínverjar troði sér líka inn á þær ;)
Dekurdagurinn okkar: vaknað seint og farið í kínverskt nudd sem var svo gott að við þurftum líka að skella okkur í fótanudd. Kínverjinn sem nuddaði lappirnar hennar Tótu var orðinn algjörlega ástfanginn af henni. Fannst hún svo falleg, með góða húð og í góðu líkamlegu ástandi :) Auðvitað þurftum við líka að láta laga naglaböndin okkar og lakka neglurnar.
Torg hins himneska friðar...
Það kemur sko enginn í heimsókn til mín án þess að prófa Hutong Pizzu ;) Mynd af Mao sem er á torginu. Ákváðum að vaka til kl 05:40 til að ná athöfninni sem er við sólarupprás. En það eru verðir sem að þramma um torgið við drungalega tónlist og fáni dregin að húni. Þetta var alveg mögnuð stund sem ég hafði ekki nennt að gera hingað til. (þá hvorki að vaka svo lengi né að vakna svo snemma) Þannig að það var alveg tilvalið að nýta sér djammfélagana til að vaka með manni ;)
Kristín í "tennis" og stendur sig ekkert smá vel. Þetta er tekið í Temple of Heaven.
Kínversk tónlist..hver dæmi fyrir sig ;)
En mér þykir ekkert smá vænt um að þið skylduð geta kíkt á mig. Takk æðislega fyrir frábæran tíma stelpur!!!! RISA KNÚS FRÁ KÍNA
Nú mana ég bara ykkur hin til að koma líka.....double dare you....meirað segja!!!
koss og knús Ásta
