Saturday, September 23, 2006

Íbúðin mín

Vegna fjölda áskorana koma loksins myndir af íbúðinni minni. En ég bý frekar central í því hverfi sem ég er í. En annars er miðbærinn í Beijing ca 25 min í leigubíl frá mér. Ef það væri engin umferð þá væri ég ekki nema 10 min þangað.

Well, þetta er herbergið sem ég sef í ásamt kínverskri stelpu......

....uuuu....hummm...
....NOT....

En þetta er herbergið sem ég fékk til að vera á heimavist. Fötin mín hefðu ekki einu sinni komist þarna inn. (Rúmið er mega hart)


.....ANYWAYS.....



Blokkin mín er í frekar gömlu kínversku hverfi. (Glugginn minn er þriðji frá hægri, næst efsti) Það eru alltaf gamlar konur sem sitja úti með barnabörnin sín og bíða eftir því að ég komi og hendi rulsinu mínu. Þá stökkva þær á það og ég hugsa alltaf í hvert skipti...hummm....hverju henti ég núna sem þær geta notað. Því að einhvern veginn er ruslið mitt alltaf verðmætt ...humm... Ég er reyndar farin að setja dósirnar mínar alltaf í sér poka og rétta þeim...og ef þær eru ekki beint fyrir utan þá læt ég þær í endurvinnslu ruslið. En svo fara þær í kapphlaup og slást um pokann. Það er alveg mögnuð sjón. Vonandi næ ég því á video e-rn tíma og get sýnt ykkur.


Stigagangurinn er frekar ömurlegur og þeir sem koma í heimsókn fá létt menningarsjokk. En hér vinstra megin má sjá hurðina heima hjá mér. Mjög lekkert!
(Annars er íbúðin ekkert æði gæði, nútími 21.öldin)


Svo er það svefniherberfið mitt / stofa. Ég sef í sama herbergi og þar sem stofan er. Mjög notalegt að því leyti að þá skellir maður einni DVD mynd í sjónvarpið og fer undir sæng...ummmm.

p.s. takið eftir skemmtilega kaktusnum mínum sem ég keypti, er í hillunni fyrir miðju, hægri mynd. (mjög litríkur)



Eldhúsið er frekar lítið og er rétt pláss fyrir tvo þarna inni. Einn til að elda og hinn til að vaska upp...hehehe!!

Pant elda!!

Á ganginum þegar maður kemur inn er ískápurinn ásamt eldhúsborði.



Svo er það gestiherbergið fyrir þá sem koma í heimsókn :) En þess má geta að sófinn í hinu herberginu er svefnsófi fyrir tvo sem hægt er að skella inn í þetta herbergi!!

Ég nota þetta í dag sem lærdómsherbergi, er með tölvuna og bækur þarna. Þessi mynd er tekin daginn sem ég fékk íbúðina.

Þannig að ég er með rúm fyrir alls fimm manns, þ.e. two double bed and one single bed.
Breakfast, sightseeing and a lot of laughter included.

Hope to see you some day!!!
Ásta Inn

10 comments:

Anonymous said...

Mér finnst íbúðin þín ferlega krúttaraleg....maður lokar bara augunum á ganginum og þá er þetta í fínu lagi! Og svo er allt svo dæmalaust snyrtilegt og fínt hjá þér......eins og klippt út úr Hús og híbýlablaði! Sætt að heyra hvað þú ert góð við kínversku konurnar í hverfinu :)
Knús til þín,
SM

Anonymous said...

Oh en gaman ad fá að sjá myndir af íbuðinni, sem lítur nú bara vel út þykir mér. Kúl að fá að sjá hvar maður mun sofa þegar mar kemur svo í heimsókn í stóra veldið ;)
haltu afram að vera sona dugleg að blogga síldin mín, þú ert að standa þig vel!
magga

Anonymous said...

Mér líst bara vel á íbúðina, bara mjög kósí:) Bið að heilsa gömlu vinkonum þínum:)

Anonymous said...

Íbúðin þín er mjög sæt og vonandi get ég heimsótt þig þangað sem fyrst ;-)

Berglind said...

Þetta virkar bara flott!
Ég kem pottþétt í heimsókn... veit ekki alveg hvenær en POTTÞÉTT! :)

Anonymous said...

Þetta lítur bara mjög vel út Ásta mín. Home sweet home.

Anonymous said...

hæhæ, gott að sjá hvar þú heldur til;) hafðu það gott.

kv. Hervör

Anonymous said...

Gaman að skoða myndir frá Kína. Íbúðin lítur bara vel út. Er þetta ekki nokkuð mikið pláss miðað við Kína??
Það væri nú gaman að koma einhverntíman í heimsókn, þar sem manni býðst svona fín gisting.
Kv. Hildur Sig

Anonymous said...

geðveikt fínt allt hjá þér ásta mín!
xx Rúna

Anonymous said...

Íbúðin er rosa fín Ásta og lítur örugglega út eins og fínasta Kínverskt heimili í dag. Gott að geta séð þig fyrir sér heima. Takk vinkona.