Félagslíf og fólk sem ég umgengst
Ég hef held ég bara ekkert talað um félagslífið hér í Kína. En svona smá update, þá sit ég ekki heima alla daga á rassinum og læri :) Sem er auðvitað bara mjög gott!!
En föstudaginn fyrir viku var fyrsta prófið okkar og auðvitað fórum við "vestrænu" nemendurnir á smá skrall eftir það. En það vill svo heppilega til að það eru tveir skemmtistaðir (pöbbar) sem að eru hérna rétt hjá þar sem ég bý. Þannig að það er minnsta mál fyrir mig að rölta þangað og rölta aftur heim. En persónulega finnst mér þessir staðir ekkert æði. Annar þeirra heitir Propaganda, þar sem allar kóreskustelpurnar standa upp á sviði í sní... (hummm) stuttum pilsum og vestrænu strákarnir slefandi á eftir þeim. Hinn staðurinn heitir Zub og er svona aðeins smekklegri að mínu mati.
Allavega, það er langskemmtilegast að fara á skemmtistaði í Sanlitun-hverfinu (niðrí bæ). En það tekur ca 40 min í leigubíl, sem er slatta langt að mínu mati. En það er svo sum fljótlegra á leiðinni heim þegar engir bílar eru á ferð ;)
Ég ákvað að skella með einni mynd af okkur á skemmtistað sem heitir MIX. En þar var frekar sveitt andrúmsloftið.
Þetta eru sem sagt krakkarnir (gvuð eða fullorðna fólkið) sem ég er oftast með.

David, Alexandra, Ciara og ég. Þau eru öll þrjú frá Kanada. David og Alexandra eru kærustupar.
Svo á laugardagskvöldið fyrir viku, þá ákvað ég að hrista af mér mygluna frá því kvöldið áður. Skellti mér í afmæli til Sigga, í almennilegt Íslendingapartý. Naut þess auðvitað í botn að geta talað íslensku!!!
Flotta afmæliskakan:
Sætu Íslendingarnir: Emill kærasti Fanneyjar, Fanney, Siggi afmælisbarn og Hildur!

Svo á miðvikudagskvöldið síðasta þá ákváðum við nokkrar stelpur í skólanum að hafa wine&cheese night. Svo að ég bauð heim til mín nokkrum stelpum: Ciara (Kanada) Emma (Frakkland) og Pien(Holland) En við vorum allar farnar að vorkenna okkur svo mikið og kvarta og kveina yfir Kína, að við þurftum á almennilegu stelpukvöldi að halda. Sem var auðvitað bara gaman. Svo var ákveðið í framhaldi af því að hafa fleiri þema kvöld, beer&nuts, Desperate Housewifes maraþon á 3.seríu og þess háttar.
Hér fyrir neðan er Emma að skera niður brauð og osta!! Algjör Delux matur hér í Kína, en þar sem ég er naut (mikil nautnarmanneskja) þá auðvitað leyfi ég mér þetta þokkalega oft :-D
Get því miður ekki lifað á hrísgrjónum og núðlum alla daga!!!!

Svo var auðvitað skálað, slúðrað og kjaftað fram á nóttu....
Jæja, nú er ég búin að kynna nokkra nýja leikmenn til leiks, eini gallinn er sá að þetta er allt krakkar sem að eru að fara heim til sín eftir próf og ég sé þau ekkert aftur. Reyndar eru David og Alexandra líka í fullu IMBA prógrammi eins og ég, en þau ákváðu að taka 1 ár í Singapore og koma svo aftur til Kína á fjórðu önn. Þannig að þegar ég kem aftur út eftir áramót, þá þekkir maður ekki eins marga sem er frekar fúlt og þarf því að kynnast fólki upp á nýtt.
Jæja, vonandi eruð þið nú að njóta þess að horfa á jólaljósin, hlusta á jólatónlistina í útvarpinu, festa bílinn í snjónum. Auk þess að njóta þess að borða: piparsteik í rauðvínssósu, humar í hvítvínssósu, bláberjaskyr, fisk, kotasælu, ferskt salat sem þið fáið ekki niðurgang af og annað slíkt!!!
Ég veit það allavega með vissu að ég ætla að njóta þess í botn þegar ég kem heim...
Fyrir þá sem ekki vita það þá kem ég heim seint 23.desember og fer aftur út um miðjan febrúar!!! Langt og gott frí á Íslandi!!!
ÍSLAND ER BEST Í HEIMI :-)

8 comments:
Hæ pæ!
Þetta virdist vera hid besta fólk allt saman :-) Mjög gaman ad sjá myndirnar!
hafðu það gott síldin min
xxx M.
Lokaspretturinn hafinn snúllan mín. Hlökkum til að sjá þig heima. Nauðsynlegt að hafa kringum sig gott fólk eins og þú virðist hafa kynnst. Hallt órauð áfram. Kveðja, SOS
Hæ hæ.
Gaman að sjá myndir, væri til í rauðvín og ostakvöld.
Njóta þess að festa bílinn í snjónum? Ég gerði nú betur í nótt og festi sjálfa mig í snjónum... þurfti s.s. að vaða í snjó upp að mitti til að komast heim!!! Ég er ekki að ýkja.
Nú styttist í þig sæta. Hlakka ýkt til!
Koss, Key
Gott að sjá fólkið sem þú umgengst -var farin að ímynda mér að þú værir aðallega að hanga með "mengun og kúk"... ef þú skilur hvað ég á við:o)
Jebb.. ég festi sko skodan okkar í dag... nágranninn kom og ýtti (tveir meira að segja), Friðþjófur kom og ýtti - bæjarvinnan kom og skóf sérstaklega fyrir mig... virkaði samt ekki og svo loks kom einn annar maður og ýtti með Friðþjófi og þá loks komst ég út úr götunni!
crazy snjór en kuldinn loks að minnka svo að ég er glöð:o)
Skráði mig úr einu fagi í dag, tek það í ágúst svo að ég er líka glöð með það - Einar Arnar lærði að segja eins og hesturinn - glöð með það:o)
Hann ætlar sem sagt að læra að segja allt áður en hann lærir að segja beisikið - mamma og pabbi!
xx Rúna
Hlakka til ad sja thig um jolin, vid skulum hafa islenska átveislu.... ;)
Hæ sæta!!
Takk fyrir kveðjuna - hlakka mikið til að sjá þig um jólin...þetta styttist:-)
xxxSG
æ músín mín STÓRT KNÚS ;* ég og Vilborg erum í því að telja niður dagana þangað til þú kemur heim...okkur hlakkar hrikalega mikið til að sjá þig og knúsa þig...Jakob kom hérna upp um daginn og spjallaði aðeins við okkur og gaman að heyra hans skoðun á Kína...haha ;-D en hafðu það gott sæta og hlökkum til að hitta þig og allt það...kiss kiss og knús ;*
hæ asta,gaman ad sja myndir af folkinu og serstaklega wine&cheese kvoldinu,væri thokkalega til i thad nuna,tho thad se ekki komid hadegi.gedveikt ad thu nair ad vera heima i svo langan tima thegar thu loksins ferd heim.tha nærdu ad hlakka til ad fara aftur ut,no?
knus
hb
Post a Comment