Jakob í heimsókn!!!
Ég var svo heppin að bölva við einn strák í skólanum frá "blogg" vandanum mínum að hann benti mér á þessa síðu: http://anonymouse.org
Sem er snilldar síða fyrir okkur sem erum úti í heimi þar sem allt er ritskoðað og maður má ekki neitt...híhíhí :) Maður sem sagt skellir sér á þessa síðu og kemst frá henni yfir á allt sem maður vill...uss ekki segja neinum...!!
Vúff.....eins gott að ég er heima hjá mér en ekki í skólanum....humm....með almennilegt klósett. Trallalla
En ég væri sko til í að skipta á íslensku eðalnammi og
Ég er búin að sýna honum Crem du la Crem af Peking og reyna að sannfæra hann um að flytja til mín. Gengur nú ekki neitt sérstaklega vel...hummm...
Ég reyndi að láta honum líða eins og Lýð Oddssyni, hann fékk humarhala í morgunmat, piparsteik í kvöldmat og gat farið aftur að sofa á morgnanna þegar ég fór í skólann. Hver myndi neita því lífi. Einnig kynntist hann skúringakonu minni sem kemur einu sinni í viku til mín, humm..kannski að hún hafi nú reyndar séð einum of mikið af honum. Því að vegna erfiðleika minna við að skilja kínverksu náði ég því að hún kæmi á þriðjudaginn næst. En ég hélt klukkan 14 en það var reyndar kl 9. Svo að úps...Jakob var bara í sturtu þegar hún æddi inn. Ég gat ekki hætt að hlægja mér fannst þetta allt svo fyndið. En henni fannst þetta sko ekkert tiltökumál. Hélt bara áfram að babbla á kínversku og eina sem ég sagði var bara Ni Hao (halló) og döj döj (já já). Svo reyndi ég að segja við hana kl 14 en hún sagði örugglega (ég skil hana sko ekki) “nei klukkan 9” svo sýndi hún 2 putta upp í loftið. Hummmm... Allir Íslendingar myndu nú taka því sem klukkan tvö. Ekki satt? En allavega nóg bull um það.
Hér koma nokkrar ekta túrista myndir af okkur Jakobi, þ.e.a.s. af mér einni, af honum einum og svo væmin af okkur báðum :) búhahaha En hann var ekkert smá heppinn með veður. Það var eiginlega sól allan tímann. Veðrið er enn rosalega fallegt en samt skítkalt.

Þar sem að Jakob er mikill dýravinur leyfði ég honum að fara með mig í dýragarðinn. En það sem var einna mest spennandi að sjá voru Panda birnirnir. Annars var nú ekki mikið að sjá í þessum dýragarði og vorum við örugglega ekki nema 20 min þarna inni.
Uppáhaldsstaðurinn minn í Peking er HouHai hverfið. En hérna sitjum við sem sagt upp á húsþaki, horfum niður á fjöldann og drekkum bjór. Það er alveg hreint magnað að sitja þarna og horfa á mannlífið. Því að mannlífð er svo frábrugðið vestrænni menningu.
Eftir bjórinn fórum við í hjólreiðatúr um hverfið. En þetta er svona ekta túrista attraction ;) Sátum þarna á meðan lítill kínverji svitnaði að hjóla með okkur :-D
Svo skellti maður sér auðvitað á The Great Wall. Sem er alltaf gaman :)
En vorum svo þreytt eftir labbið upp Fragrance Hill að við tókum cabalinn upp og niður :9
Síðan bauð sendiherrann í Peking okkur í veislu og vá hvað það var góður matur. Maturinn með íslenskubragði....ummm.... jeminn ég held að ég hafi getað borðað endalaust. Lamb, lax, ýmsar sósur...ummm.. ...slurk!!!
Aðalþynnku maturinn í Kína.
Fórum á smá djamm með Íslendingunum eftir sendiráðið. Þá fengu strákarnir sér allir svona kjöt á spjóti. Þetta er reyndar alveg ótrúlega góður matur. Ég ætlaði aldrei að þora en svo er þetta rosalega gott. Jammí
Síðan skelltum við okkur daginn eftir til Sjanghæ. En þegar við komum á flugvöllinn fórum við með rafsegullest niður í miðbæ. Við fórum sem sagt á 310 km hraða, 30 km á ca 8 mín. Spáið í hraða. Þetta var eiginlega bara eins og að vera í rússubana, nema það að þú ferð á mun meiri hraða.
Sjanghæ er alveg afskaplega skemmtileg borg líka. Mæli ég eiginlega með fyrir þá sem eru hvort sem er að koma til Kína að skella sér þangað líka.
Jæja, svo Mr. and Mrs. Wong Fu síðasta kvöldmáltíðin. Vorum með þetta magnaða útsýni meðan við borðuðum. En daginn eftir hélt Jakob heim á leið og lokaði hringnum sínum, þ.e.a.s. hringnum í kringum hnöttinn!

Vonandi hafa e-rjar af þessum myndum gefið ykkur smá sýn hvernig Peking er. En hún er nefnilega rosa fín, reyndar fílaði ég hana mun betur þegar Jakob var hérna. En það er svoleiðis með svo margt, skiptir ekki máli hvar maður er svo lengi sem maður er í góðum félagsskap...ekki satt :)
Allavega, bless í bili
Chin Chin og Wong Fu :)













11 comments:
Það hefur verið yndislegt að hafa hann - en nú tekur hversdagsleikinn aftur við:-) Veit þú stendur þig...xxx sg
Magnað, hlakka rosalega til að koma......
Hervör
æ músin mín...það hefur verið yndislegt að hafa Jakob hjá sér...og þið hafið gert alveg fullt á meðan hann var í heimsókn...og krúttaðar myndirnar af ykkkur ;) skil hann ekki að slá þessu ekki bara upp í kæruleysi og flytja út til þín...hehe...hafðu það gott sæta mín og gangi þér vel í skólanum ;)
En hvað þetta eru sætar myndir vúúúúú og skemmtilegar! Svo fallegt umhverfi og fólkið líka :) Ásta, kannski skiptir Jakob um skoðun, en veistu, tímin er svo fljótur að líða. Við erum öll með þér í huganum. Knús
vohó alveg crazy skemmtilegar myndir, ekkert smá flott þarna.....verð að fara að plana heimsókn!
Hæ Snúllan mín,
Gaman að sjá þessar myndir. Peking og Shanghæ greinilega skemmtilegar borgir. Ég er rosa glöð að sjá að til að fara í göngin á myndinni, þarftu bara að finna VATNIÐ.....þá er þetta komið ;) Eins gott að maður þarf ekki að sigta út eitthvað ákveðið vatn úr fjölda vatna á svæðinu! Hjúkket!
Baráttukveðjur í skólastressið sem nú tekur við. Þú rúllar þessu upp.
Kv.
SM
Hæ hæ dúllan mín! Svo rosa gaman að kíkja á síðuna þína og fylgjast með þér. Þú ert bara hetjan mín að klára þetta. Það hefur greinilega verið gott að fá Jakobinn í heimsókn! Haltu áfram að vera dugleg sæta mín og hlakka til að sjá þig um jólin (sem erubara ALVEG að koma)! Luv Björg
Hejsan síldin mín.
oh hvað það var skemmtilegt ad lesa ferdasoguna og sja myndirnar. Er byrjud ad notera nidur, mig langar ad sja thetta ALLT thegar eg kem hehe ;>
kossar
maxy
Frábært að fá Jakob út - og hvað þetta hefur verið geggjaður tími fyrir ykkur saman. Gaman að fá að sjá myndir af því sem þið gerðuð saman.. og sögurnar bak við:o9
Heyrumst fljótt á msn:
xx Rúna
Gaman að lesa túristasöguna ykkar Jakobs og myndirnar góðar. Þetta hlýtur að vera dásamlegt ævintýri að dvelja svona lengi í annarri menningu. Svo gerir það líka íslenskan mat og nammi hundrað sinnum betra en það er þegar maður borðar það hér !!!
Farðu vel með þig ljúfan mín og njóttu þess sem þú ert að upplifa, þetta er ómetanlegt ævintýri.
Það er alltaf svo gaman að lesa bloggið þitt og ekki verra að hafa myndir með. Hlakka til að fá þig heim eftir áramótin ;-) Svo þarf maður að plana ferð út til þín.
Post a Comment