Atvinnulífið í Kína blómstrar
Hæ allir saman
Ég er búin að vera í fríi síðustu daga. Fór í frí síðasta föstudag og er alveg fram á næsta sunnudag :) En málið er að það er National Day hjá kínverjum og þeir taka heila viku í frí. Svona á að gera þetta. Mér finnst að við Íslendingar eigum að taka þetta til fyrirmynda og hafa vikuna í kringum 17.júní bara frí...hehe :)

Annars vaknaði ég kl 6 um morguninn síðasta laugardag. Skellti mér á
múrinn með kínverskri vinkonu minni og kærastanum hennar. En það tók ekkert smá vel á. Löbbuðum upp á topp, fengum okkur að borða þar og svo aftur niður. Ég hélt að ég myndi hrynja á leiðinni niður því að fæturnir mínir hristust svo mikið ;) Var komin aftur heim til mín um 20:30. Þannig að ég missti af tveim boðum; á föstudagskvöldið (út af því að ég þurfti að vakna svo snemma) og á laugardagskvöldið (út af því að ég var svo þreytt eftir labbið)! Algjör aumingi...hehe

En annars var þetta bara rosalega skemmtilegt. Það er ekki mikið búið að laga þennan hluta múrsins og var því mjög sjarmerandi að labba þarna upp. Ég fór með mömmu og pabba fyrir rúmlega ári síðan á fræga túrista múrstaðinn. Það var reyndar líka alveg roslega fínt. Mikið búið að laga stéttina þar og auðvelt að labba. (Mun meira af fólki þar, en þarna var maður nánast einn)

Síðan á miðvikudaginn vaknaði ég og fékk mér geðveikislegan góðan hádegismat, steik og læti. Fór á franskan veitingastað sem heitir Brassiere FLO. Þessi mynd til vinstri er tekin eftir að ég er pakk södd af ýmsu gúmmmilaði. En ég held að besta veðrið hingað til hafi verið á þessum degi. Það sást rosalega vel í bláan himinn því að það var svo lítil mengun ;) og ekki of brjálæðislega heitt (ca 28 stig)
Skellti mér síðan aðeins í búðir. Vandamálið var bara að ég hef engan til að halda á dótinu fyrir mig og þá verð ég að hætta að kaupa :( Kannski bara eins gott..hehe... ekki sniðugt að hafa Ástu eina í borg þar sem er fullt af skóm og töskum...hummm!!! En ég ákvað að hafa þemað SKÓR. Keypti mér 6 pör af skóm og er ekki hætt. Ég er búin með kvótan í bili ...aaahhh...með íþróttaskó.. en nú eru bara fínir háir hælar eftir..hehe!! Keypti mér fína úlpu fyrir veturinn, Grey's Anatomy seriu 1 & 2 sem ég hef aldrei séð en er núna orðin háð. Og þessi fínu D&G sólgleraugu. Jakob veit ekki alveg hvað hann er að fara út í með að koma í heimsókn til mín...múhahaha!!!! ;)
Svo í gær fór ég í þessa fínu andlitsnyrtingu. En með andlitsnyrtingunni fékk ég líka e-ja handahreinsun. Þar sem ég stakk lófunum mínum í e-ð brjálæðislega heitt vax og fékk þá "auka húð" yfir hendurnar mínar. Frekar sniðugt, mér leið eins og í Face Off myndinni þar sem þeir skiptu um andlit nema það að ég var að fá nýjar hendur. Síðan pakkaði konan höndunum í handklæði og lét þær vera þannig á meðan hún nuddaði andlitið mitt með einhverjum hreinsikremum í 70 min. Svo þegar hún var búin að taka þessa "auka" húð af höndunum þá fór hún að nudda hendurnar og láta braka í þeim. Því næst ýtti hún fótunum mínum fram og til baka og tosaði í tærnar. Ýtti á e-ja punta osfrv. Þetta var fyrst allt mega þægilegt. En svo í lokin þá nuddaði hún axlirnar sem var ekki neitt sérstakt, og allt í einu lamdi hún í hausinn á mér. Sem var frekar óþægilegt það kom alveg verkur niður í tær þegar hún gerði það. Skildi ekki alveg tilganginn í því. Gerði þetta aftan á hnakkanum nokkrum sinnum... hummm... Frekar fyndið að halda að maður sé bara að fara í andlitsnyrtingu en fá svo eiginlega í leiðinni nudd. En mér leist allavega það vel á þetta að ég skellti mér á Membership Card til að fá ýmsa afslætti. (Fattaði reyndar eftir á að ég borgaði fyrir afslátta kortið, sem þýðir örugglega að í lokin "græðir" maður ekki neitt...humm....heimsk ég... og ég sem hélt að ég væri viðskiptafræðingur)

En ég lít á þetta sem mitt framlag til atvinnulífsins hér á landinu. Fer í andlitsbað, handsnyrtingu og fótsnyrtingu. Kaupi töskur og skó :-D
Well, ætla að skella mér aftur út í góða veðrið og fá mér eitthvað að borða.
Góða helgi :)
Kínverjinn

7 comments:
Ánægð með þig.... og svo eina tösku fyrir fyrrverandi heimahangandi...
Ekki alslæmt ..hefði verið til í svona verslunarferð:-) Þú ert algjörlega að standa þig í skónum!!
hæ china,
mikið rosalega á ég eftir að prufa þessar snyrtingar og nudd þegar ég skelli mér til þín. og við getum haldið á pokunum fyrir hvora aðra.
þín Hervör
OH ég er abbó mig langar líka í nudd og ódýrt shopping. Thetta hljómar allavega mjog vel...knús
gosh nákvmaemlega... omg hvad eg væri til í eitt svona gott kínverskt shopping sprea. Algjorlega fullkomid, byrjad a thvi og svo farid yfir i slokunina og nuddid. btw er sem sagt alltaf bara bodid upp á kok og djus í kínversku partýunum? ;>
xxx maxy
Hæ skvísí ;)
Maður er nú pínu abbó af þessu búðarrápi á minni...stendur þig vel í þessu....er samt eiginlega mest skotin í bleiku skópörunum hefði sko ekkert á móti þeim ;-P hafðu það gott sæta og haltu áfram að brillera í Kína ;)
kv
Svana
voho!en exotiskt hja ther!kinamur,aukahud og panic attack,thetta er bara eins og i biomyndunum.vona ad thid jakob hafid thad rosa gott og jafnvel ad thu getir laest hann inni gestaherberginu, thvi thad er svo huggulegt ad hafa felagsskap thu veist.spadu i thad.
knus
hb
Post a Comment