Welcome Party
Ni hao
Ég er enn með harðsperrur í kjálkunum eftir gærkvöldið. Það var sem sagt dúndur partý í gærkvöldið. Mega mega stuð og mega gaman.
Málið er að það var haldið Welcome International Student Party upp í skóla. Þar sem boðið var upp á veitingar og drykki. Um 130 manns var boðið og aðeins 40 mættu. Veitingarnar voru eins og vanalega....melónur, bananar, kínverskt súkkulaði (ekkert súkkulaði bragð) ..Drykkir...humm...Coke, appelsínudjús og soda.
Svo var brugðið á leiki eins og kínverjum er einum lagið. Og mín hugsaði með sér: Best að færa sig hingað aftast og vera ósýnileg. En nei nei þá var náð í mig og ég dregin á mitt gólf til að vera með í leiknum. Kræst!!!! Hvað er málið eiginlega, af hverju er bara ekki hægt að hafa venjulegt almennilegt partý þar sem það þarf ekkert að vera skipulagðir leikir eða atburðir.
Allavega, mín tók þátt í einhverjum dansleik. Þar sem nokkur pör áttu að halda á dagblaði og dansa með það og svo þegar tónlistin stoppaði að þá átti maður að skella dagblaðinu á gólfið og stíga á það. Sá sem var síðastur var úr leik. Svo byrjaði tónlistin aftur og þá átti maður að gera það sama nema að brjóta blaðið til helminga og svo stíga á það aftur þegar tónlistin stoppaði. Þannig á endanum var blaðið pinku lítið og stelpan átti helst að vera í fanginu á stráknum. Hljómar vel...er það ekki?
Well, sem betur fer var ég heppin að enda ekki með kínverskum strák sem hefði tekið þetta voða alvarlega og krafist þess að halda á mér. Heldur dansaði ég á móti dana þar sem við gátum hlegið að þessu rugli og dottið snemma úr leik.
Svo voru söngatriði inn á milli....en þess má geta að salurinn er nánast tómur...þetta var bara snilld og ég átti svo erfitt með mig því að þetta var grafasta alvara. En ég hristist alveg til og frá...vá hvað kjálkinn var orðinn stífur. Annars dáist ég að þeim að gera þetta og þora þessu, eitthvað sem við Íslendingar myndu aldrei þora...missa coolið. En myndir segja meira en nokkur orð:
...
Þau voru nokkur þessi söng atriði og get ég því miður ekki sýnt ykkur það allt.
En svo var líka skellt sér í limbó!!! JEIIIII LALLALLALALALALA LALLLALALALALAA
...
En svo í lok kvöldsins fórum við nokkur saman á skemmtistað þar sem þessi fallega óskýra mynd var tekin af mér, Nancy (frá Kanada) og Hanza (frá Pakistan)
Góða helgi :)

7 comments:
Eintom gargandi snilld!!
kv. jakob
Það hefði nú þurft að vera með vínveitingar svo ég hefði meikað þetta:)
guð minn góður, þetta hefur verið rosalegt. ég hefði ekki meikað að vera þarna.
Hervör
men - ég er ekkert smá spennt að koma til þín og sjá allt þetta dýrlega fólk sem þú umgengst!
xx Rúna
Kínverjar eru bara snillingar!
What Kristín...hahah...nú þarf ég að flétta upp :)
hæ asta!eg er buin ad reyna ad horfa a myndbandid en nettengingin neitar ad samarbejde.
eg er buin ad athuga thetta med bloggfjandann og eg held eg se buin ad finna ut ur thvi svo eg reyni ad utskyra thad i maili..
hafdu thad rosa gott og vis sjaumst en gang
hb
Post a Comment