Monday, October 09, 2006

Helgi og Skúli til hamingju :)

úfff...ég held að ég hefði nú þurft á því að fara til beggja systra minna um helgina. Gunnu á laugardaginn og Svönu á sunnudaginn. Mágar mínir áttu nefninlega afmæli sitthvorn daginn og ég hefði ekkert verið á móti því að skófla í mig fullt af kræsingum ...ummm...svona sérstaklega til að búa mig undir daginn í dag.

En ég svaf nánast ekkert í nótt, svo vaknaði maður og þaut út í morgun til að mæta fyrsta daginn í skólann eftir frí. Jeminn eini...ég held að umferðin sé að þyngjast. Þetta er hreint ótrúlegt. Ég var á nýja flotta hjólinu mínu og komst nánast ekkert áfram. Svo kemur fólk úr öllum áttum, framan á mig, til hliðar og ég veit ekki hvað og hvað. Ég skil ekki hvað er svona erfitt við það að fylgja umferðareglunum. Svei mér þá!!!
Kannski er þetta löggan sem stendur alltaf á horninu með takka og breytir litunum á ljósunum....kannski kann hann bara ekki að stjórna og þá fer enginn eftir ljósunum!!!!

En svo komst ég heil á húfi upp í skóla fór í tíma, China in Transistion, þar sem ég lærði um spillingu stjórnvalda, hlutabréfamarkaðinn og sósialískt/ kapítalískt þjóðfélag. Þar sem kennarinn sagði okkur að hlutabréfamarkaðurinn væri bara crap og spilling alls staðar. Hummm...uppörvandi...en kannski smá áhugavert.

Eftir tíma fór ég svo í mötuneytið með nokkrum stelpum. Um leið og ég kom inn sagði ég við þær: vóoo hvað er mikið af fólki hér. Og þær hinar bara nei nei...þetta er ekkert um daginn var mun meira. En nei nei..svo allt í einu byrjar mín bara að ofanda og stressast upp. Finn bara púlsinn verða hraðari og hraðari. Ég fékk þessa þvílíku innilokunarkennd sem ég hef ALDREI fundið fyrir áður. Ég komst hvergi, fann bara þunga soya lykt og fólk alls staðar...ALLS STAÐAR. En sem betur fer náði ég að komast að exit ganginum og fór út...en nei nei...þá var líka troðið af fólki úti. Ég komst ekkert framhjá...gat ekki andað út af mengun og leið bara frekar illa. Svo loksins gat ég náð í hjólið mitt og hjólað heim. En ....svo stopp eftir 5 min út af umferð og ég komst heldur ekkert áfram þá. Vúfff....

Svo núna sit ég loksins heima hjá mér og tel dagana niður í áfallahjálpina mína...sem kemur núna eftir 13 daga :) mér til mikillar gleði.

Þess á milli reyni ég að flýja "raunveruleikann" (sem er stundum frekar óraunverulegur), skelli MacDreamy og Meridith í DVD spilarann og gleymi mér á e-jum spítala í Seattle :)

10 comments:

Anonymous said...

Vuff thetta hljomar frekar crowded, get alveg sed thetta fyrir mer bara brjalud mergd af kinverjum. Thad er gott thu gast leitad til meredith og co. thegar thu komst heim, hefdi eflaust reynt e-d svipad. Er einmitt meget tilfreds - buin ad finna tha i kassanum hja mer herna uti lika ;-)
Jæja hafdu thad gott skat, vonandi verdur auveldara ad hjola i skolann a morgun.
xxx Magga

Anonymous said...

úff macdreamy og Meredith sítróna geta oft bjargað lífi manns:)
p.s. til hamingju með mágana:)

Anonymous said...

Sæl Ásta mín
má nú bara til með að setja smá kveðju til þín, það er gaman að fá að fylgjast með ævintýrum þínum í útlandinu mikila. Já þú hefðir þurft að vera hjá Skúla og Svönu á sunnudaginn... þar var mikið borðað... og auðvitað þvílíku kræsingarnar.
Gangi þér vel og njóttu þess líka að vera þarna, þetta er eitthvað sem ekki allir fá að upplifa.
Kær kveðja af klakanum
Inga (Svönuvinkona)

Anonymous said...

Hæ Snúllan mín,
Voðalegt er að heyra þetta....allt í fári! Mundu bara að anda djúpt og láta eins og þú sért að stinga þér til sunds! (Snilldar samlíking....not) Eins gott að bjargvætturinn er á leiðinni til þín :-)
Knús til þín, SM

Rúna said...

úfff --- þetta er ekkert smá að lesa þetta! Get ekki ímyndað mér að vera í kringum svona marga að maður fái innilokunarkennd - þú stendur þig eins og hetja, ásta mín:o)
xx Rúna

Anonymous said...

Hljomar ekkert serstaklega ...en otrulega stolt af ther xxx Saedis

Anonymous said...

Sæl Ásta mín.
Hef upplifað þetta með innilokunartilfinninguna....ekki gott.Farðu vel með þig ljúfan mín.
Kv. Tobba.

Anonymous said...

ps.sendi ther blogg info thegar eg er komin til islands..
hb

Anonymous said...

hiho
For ad tinum radum i NY og keypti sma af doti.... reyndar bara buin ad kaupa 2stk strigasko en ekki 700 eins og tu!!
Toskur verda keyptar a eftir.... David kemur vel graeadur ur ferdinni eins og svo oft adur. En hann er buin ad vera med skemmtiatridi uti a nesi...
Erum ad fara a roltid goda skemmtun i skolanum saeta

Anonymous said...

uss uss, skil vel að það sé stundum erfitt að vera innan um svona mikið fólk, man bara eftir metroinu í Moskvu þar sem maður fékk oft innilokunarkennd kramdur milli illa þefjandi rússa kl. 7.30 og allir með gin og tónik í dós, ojjj fæ bara hroll.

Hervör