Wednesday, December 06, 2006

Hitt og þetta")

Hæ allir :)

Ég veit nú ekki alveg hvar ég á að byrja. Þegar maður hugsar um vikuna þá er maður alltaf að upplifa eitthvað nýtt og nýtt.
Kannski ágætt að byrja að segja frá flóðinu í íbúðinni minni. En það fór allt á flot. Sem betur fer kom ég einmitt heim þegar allt fór að leka. Fékk fyrst smá panic attack að reyna að koma batterýum í vasaljósið til að sjá hvar lekinn væri til að geta sett fötu fyrir. En það lak úr krana....bara bein buna. En þetta er gallinn við að búa einn í Kína að maður getur ekkert hringt í elsku mömmu og beðið hana um að hjálpa sér að þrífa. Svo að mín var allan daginn að skófla vatni í fötu. Þurfti svo að hringja í leigusalann minn sem mig langaði ekki að gera því að hann reyndi við mig í vikunni áður. Bað því Ciöru um að koma til mín til að vera siðgæðisvörður og þýða kínverskuna/enskuna. En hann reyndi sem betur fer ekkert við mig aftur, sem þýðir það hann hefur skilið skilaboðin mín...NEI TAKK :)


Ég er byrjuð í prófum! Fór í fyrsta prófið mitt í fyrradag sem var frekar öðruvísi upplifun. Ég var í Quantative Methods prófi sem var mjög sanngjarnt að öllu leiti. Prófið var allt unnið á excel en þess má geta að allar tölvur í skólanum mínum hafa excel á kínversku. Svo að við útlendingarnir fengum leyfi til að koma með okkar eigin fartölvu og vinna prófið á henni. En það er svona frekar skrítið eftir á að hyggja því að það hefði verið minnsta mál fyrir mann að senda prófið á e-mail til e-rs sem væri brillant góður í tölfræði og biðja hann um að senda lausnina á næstu 2 tímum. En þar sem maður er nú heiðarlegur nemandi þá tekur maður engar áhættur. Síðan átti maður bara að setja prófið sitt á USB tengi og skella því á desktopinn hjá leiðbeinandanum. Frekar frumstætt allt saman :) Svo að auðvitað lenti maður í enn einni röðinni eftir prófið, þar sem allir "útlendingar" (ekki kínverjar) voru að bíða eftir að setja prófið sitt á desktopinn.

Það er svoldið fyndið svona þegar líða tekur á þessa önn, þá allt í einu er það eins og sumir Kínverjar vakni til lífsins og spurji og spurji prófessorana spurningar. En þess má geta að þátttaka í tímum gildir venjulega um 20% :)

Annars er Ciara kanadíska vinkona mín búin að gista hjá mér í nokkrar nætur. Sem mér finnst bara afskaplega skemmtilegt. Við erum búnar að skiptast á að útbúa morgunmat og kvöldmat. Svaka lúxus að hafa hana. Svo mútaði hún mér líka með 3.seríu af Desperate Housewifes :) (hummmm..sem btw er mjög spennandi) Svo að við erum búin að hafa það rosa kósý, en hún reyndar fór í gær til Chengdu í smá ferðalag og gistir hjá mér aftur í kringum 15.des.


Hey já...hahaha...svo fékk ég frekar fyndið símtal í gær!!!! Jeminn...humm...allavega ef ég byrja á byrjuninni. Í september fór í e-rn tíman að versla og stelpurnar í búðinni horfðu á mig og sögðu bara við mig án þess að ég væri að spyrja: "We don't have any BIG size" ég bara JEEE THANKS ÉG SPURÐI ALDREI......hugsaði bara með mér...HALLO....ég gæti nú alveg verið að kaupa handa e-rjum öðrum!!!!!! Bölvaður dónaskapur ")

Þannig að eftir þessa skelfilegu lífsreynslu ;) hugsaði ég stórt...og keypti mér líkamsræktarkort í INTELLIFITNESS. En jújú, mín mætti þarna nokkrum sinnum í september og smá í október. En svo var hjólinu mínu rænt og ég hef bara ekki farið eftir það.

Allavega...svo fékk ég þetta yndilega símtal í gær: Hello, hello is this Asta? This is Intellifitness. You bought a Membership card sometime ago, but you haven't been here for awhile. I want to be your personal trainer. Hahahaha...ég mér finnst þetta sko flott þjónusta! Bara verið að fylgjast með manni!! Þannig að ég spurði bara hvað það kostaði og það kostar ca 2000 kall 10 tímar. Sem er auðvitað ekki neitt. En allavega, mér finnst þetta ekkert smá fyndið. Var að velta því fyrir mér hvort að þeir væru nokkuð að njósna hversu mörg súkkulaði stk ég fengi mér yfir mánuðinn.

Svo er maður stöðugt í e-rju veislum. Hún Valgerður Sverrisdóttir var hérna síðast, þær Þorgeður Katrín og Siv Friðleifsdóttir hafa líka komið í heimsókn síðustu 3 1/2 mánuði. En einn íslenskur strákur sem er hérna spilaði á pianóið fyrir fjöldann í veislunni og kínversk stelpa söng undir. Þau tóku eitt kínverskt lag og eitt íslenskt lag. Voðalega fínt hjá þeim.

Eftir veisluna skellti ég mér á blómamarkað. Var að reyna að gera smá jólalegt hjá mér, keypti mér krans sem mér finnst núna reyndar líta meira út eins og brúðarskreyting :) (Og skellti líka upp rauðri jólaseríu.)


Svo í dag var ég að koma úr mjög slæmu/góðu fótanuddi. Skellti mér með Pien og Emmu. Þeir byrjuðu fyrst að nudda axlirnar og bakið meðan fæturnir voru í heitu fótabaði. Síðan lág maður bara flatur meðan það var verið að ýta á einverja punkta undir ilinni. Vá hvað þetta var samt svoldið gott. Já verð nú eiginelga að taka það líka fram...borgaði heilar 18RMB sem eru ca 150 kr fyrir 1 klukkutíma.

ALLTAF AÐ GRÆÐA...BULLANDI HAGNAÐUR!!!!
Jæja, best að halda áfram .....
Hafið það rosa gott
Sjáumst fljótt....
")

8 comments:

Anonymous said...

En hvað þú ert heppin að vera búin að fá personal trainer, bara eins og moviestar. Miss you hlakka til að sjá þig um jólin:*

Anonymous said...

Hæ elskan - væri þess virði að koma til Kína ...bara í dekur:-) Ánægð með kransinn þinn!

Gangi þér vel í prófunum - hlakka til að sjá þig..

xxx SG

Anonymous said...

Vá ekki amalegt að fá personal trainer og bara dekur á ekki neitt.
Það er alltaf jafn gaman að lesa síðuna þína. Hlakka til að sjá þig og heyra enn fleiri sögur frá Kína.

Kveðja,
Unnur Ylfa

Unknown said...

Vá þjónustan! Ekki slæmt að fá einkaþjálfara fyrir svona lítinn pening - veit samt ekki hvort það bætir upp fyrir dónaskapinn í búðum :S

Þetta er sko ekki vandamál hér í bna, haha. Hér eru fötin sko til í XXXXL, þ.a. stærð er ekki vandamál for a change :)

Gangi þér vel í prófunum, see you soon

Anonymous said...

hæ china pæ.
þetta er nú meiri ævintýraheimurinn hjá þér elsku Ásta. hafðu það gott í jólaaðventunni.
Hervör

Anonymous said...

Hej síldin mín.. þetta kostar bara ekki neitt þarna úti hjá þér, personal trainer, fótanudd og eg veit ekki hvad og hvad...alltaf ad græda bara.
Gott thu ert byrjud ad gera jóló í kringum þig. Eg var ad reyna ad rifja upp jólaskreytinguna okkar á Pile Allé ;-)
Styttist óðum í heimkomu.
knus Magga

Anonymous said...

Kertin á kransinum er voða jólaleg...
Gangi þér vel í prófunum, þú rúllar þess upp, kemur svo heim og verslar bara föt hér. Hér fást sko föt á alvöru kroppa! Gaman gaman.

Knús,
Vilborg

Anonymous said...

Mig langar líka í nudd fyrir 150 krónur!! Gangi þér vel í prófunum!!