Dúfnabú!!!
Ni Hao!!!!
Jæja, ég verð að viðurkenna það að það fer að verða svoldið erfitt að vakna á morgnanna. Ég veit það ekki, einhvern veginn finnst mér miklu meira kosý að vera að leika mér í draumi við Davíð og ímynda mér bumbuna hjá Svönu systur. En jú, fyrir þá sem ekki vita þá er Svana systir ólétt. Ég vil endilega meina það að missirinn við að hafa litlu systur í útlöndum sé svo gífurlega mikill að báðar systur mínar eignast börn þegar ég er erlendis :) En Gunna eignaðist Davíð þegar ég var í námi í Kaupmannahöfn og svo núna Svana systir þegar ég er í Kína!
En já annars átti ég alveg eftir að segja ykkur hvernig ég kem mér alltaf í skólann. Ég byrjaði auðvitað í september að labba og keypti mér svo hjól í október (átti það í 2 vikur).
Ég reyndi að taka strætó einn morguninn, jeminn ég átti að verða fyrst inn (samkvæmt því að standa í röð), strætó hurðin opnaðist beint fyrir framan nefið mitt og mín ætlaði að labba inn en snerist eins og þyrla í hringi á sama stað þar sem fólk skaust fram hjá mér beggja megin. Svo horfði ég á síðasta manninn troða sér....NB TROÐA SÉR...inn í strætó. Allir eins og sardínur í dós og ca 75 kínversk nef klesst upp við rúðuna. Jeminn, ég stóð eftir og horfði á eftir strætó fara varð svoldið ringluð eftir snúningana en hló svo og hló. Eftir það hef ég haldið mér frá strætó kl 8:30 á morgnanna.
Auðvitað get ég keypt mér nýtt hjól (sem verður reyndar horfið aftur 2 vikum seinna) og hjólað eins og bavíani í þessari umferð. En ég eiginlega nenni því ekki lengur, það er bara stórhættulegt. Ég get líka haldið áfram að labba, sem ég geri stundum. En þó oftast labba ég heim úr skólanum. Svo að mín er búin að hafa einkabílstjóra núna á hverjum degi í nánast 2 mánuði, þ.e. leigubílstjóra. Það finnst mér besti ferðamátinn hér í Peking. Reyndar....humm....það er oftast skelfilega lykt inni í bílnum (andfýlulykt út af te drykkju) og svo þarf maður að hlusta í THX á kínverskt leikrit. En þetta er bara mjög hressandi svona snemma á morgnanna þegar maður er nývaknar ;P
Læt hérna fylgja með mynd af okkur þegar nokkur okkar skelltum okkur á Crown Plaza hótelið í Thanksgiving dinner sem var alveg ljómandi gott. Var með þremur ameríkönum sem að sögðu mér að það væri sko skylda að borða almennilega. Það er auðvitað aldrei vandamál fyrir mig...ummm.... en við komum þangað kl 18:40 og fórum aftur kl 11:00, held að ég hafi bara aldrei borðað svona lengi.

En já, ég verð eiginlega að láta eina mynd fylgja líka með, kræst, þetta er blokkin á móti mér.
ÞAÐ ER DÚFNABÚ ÚT Á SVÖLUM
-for crying outloud-
haha....ég er að spá í að breyta svölunum mínum líka.
Mér finnst þetta nefninlega svo snyrtilegt :-9
Jæja, svo koma bara nokkrar mannlífsmyndir...





Bless í biliÁsta

6 comments:
snilld að vera með einkabílstjóra :)
Já Ásta lætur nú ekki bjóða sér hvað sem er ;-)
Til hamingju með systur þína.
Lúxuspía ertu! Og klár stelpa ;) Nú styttist í heimför, jibbí jey!
ööössss....þú lifir bara eins og drottning þarna úti stelpa...leigubíll á hverjum degi...færum nú fljótt á hausinn ef við myndum leifa okkur þetta hérna heima...úúúffff....haha...en algjör snilld...þú ert snillibilli ;-D já svo styttist í heimferð..hlakka ógó mikið til að sjá þig skvís...knúsidí knús ;*
TIl hamingju aftur með Svönu, til hamingju Svana og Skúli:)
Ekkert smá gaman að sjá svona margar myndir....styttist í djamm á ísl:)
cool komin með nýtt look á síðuna ;-)
Sorrý náði ekki að segja góða nótt áðan - þurfti að rjúka á fund. Skrítið að þú farir að sofa þegar ég er nývöknuð!
See you soon, hlakka til að djamma með ykkur útlendingunum :)
Post a Comment