Tuesday, October 17, 2006

Ekki fyrir viðkvæma :-P

Ég steingleymdi að kynna ykkur fyrir klósett aðstæðum mínum í skólanum :-D Hehe..Jibbý

(Þeir sem eru viðkvæmir er bent á að sleppa að lesa næstu málsgreinar og fara beint í fræðslustund vikunnar í lok bloggsins...múhaha!!!)

En sem sagt ég læt mynd fylgja með.....


.....þetta er holan sem ég þarf að pissa í á hverjum degi. En ég er búin að komast að því að þetta er alls ekkert svo slæmt...humm...eða kannski er ég að reyna að hugsa jákvætt. ...múhahahaaaa

En trikkið er í fyrsta lagi að reyna að halda niðri í sér andanum, því að lyktin er viðurstyggileg. En það hef ég ekki enn getað gert nema í 30 sek...svo að Yoga getur vonandi hjálpað mér að bæta tímann.

Því næst lokar maður að sér, þess má geta að sums staðar eru ekki skilrúm, heldur bara allir pissa saman...vhíhíhíhí híhí ...svo svo gaman!!! :-D

Næsta trikk er að kippa buxnaskálmunum upp....NB UPP að hnjám og síðan girðir maður NIÐUR að hnjám. Trikkið er að buxurnar séu ALLAR við hné. Ef viðkomandi tekst ekki að gera þetta, þá munu buxnaskálmarnar verða rennandi blautar...og við skulum ekki einu sinni hugsa lengra en það....jakk!!!

Því næst þarf maður aðeins að anda og ég mæli aðeins með "stuttu/litlu andi inn"

Síðan er trikkið að pissa með ákveðnu tempói, ég mæli ekki með of hægu eða of hröðu tempói.
Of hægt tempó getur valdið dauða, mundu þú ert að halda niðrí þér andanum. Of hratt tempó getur valdið leiðinlegum "skvettum" sem við viljum endilega forðast.

Eftir að þú hefur gert allt sem þú þarft að gera þá stígur þú með fæti þínum á "sturtarann". Pís off keik!!! Ekki satt???

Annars er um að gera að hugsa jákvætt, þú þarft ekki snerta neitt og þetta gæti ekki verið snyrtilegra ...humm... Nema stundum eru ruslatunnurnar fullar af ákveðnu ....humm...rauðu dóti...þar sem "það" snýr upp á við...ásamt því að gólfið getur verið ansi hált. Stundum skil ég nú ekki hvað getur verið erfitt við það að hitta í þessa holu en kínverskum stúlkum finnst þetta greinilega afar erfitt. Þess má geta að ég rann einu sinni til í bleytu og sá fyrir mér andlitið mitt ofan í holunni en sem betur fer náði ég fótfestu og komst heil á húfi út.


Þetta klósett hér til vinstri er einnig til boða fyrir okkur stúlkurnar en enn hefur mér ekki tekist að finna út úr því hvernig á að nota það. Ég held ég láti kínverjum það eftir....

Annars ráðlegg ég ykkur (eða sjálfri mér) eindregið að halda ykkur frá ýmiss konar drykkju, vatnsdrykkju, kaffidrykku, alls konar drykkju á meðan kennslustund stendur yfir.


Vonandi hefur þessi lesning ekki valdið ykkur miklum viðbjóði :-P

Vildi bara deila með ykkur daglegum þrekum sem ég þarf nú á dögum að glíma við..hehe :-D

Fræðslustund vikunnar:
Merkilegt nokk, prófessorinn minn í China in Transistion, sagði að það væri enginn ástæða til að hafa áhyggjur af mengun því að hún hefur engin áhrif á efnahagslífið. Við þyrftum sko ekkert að vera meðvituð um hana núna, væri bara seinni tíma vandamál. Humm...vitur maður.

9 comments:

Anonymous said...

kræst Ásta....
Ég er búin að gráta úr hlátri yfir þessu....
Mæli líka með því að þú haldir þér frá öllu sem mögulega gæti valdið því að skila þyrfti stærri eintökum í ekki eins fljótandi formi á meðan skólahaldi stendur!!!
Vonandi ertu með venjulegt klósett heima.....

Anonymous said...

bwwwahahahahaha....HAHAHAHAHA...HEHEHEHEHE ;-D snilldar blogg...og ekki get ég nú sagt að ég öfundi þig að þessum klósettum ef klósett skulu kallast...en þykir mér þú nú ansi dugleg að ná að gera allt það sem þarf að gera án þess hreinlega að pissa bara í buxurnar...eins gott að vera ekki alveg í spreng....össs það getur ekki endað vel...en gangi þér vel með þetta skvís og lætur okkur vita þegar þú hefur fundið út úr því hvernig á að nota hitt apparatið ;)
knúsi knús

Anonymous said...

Ég ætlaði að stinga upp á pilsi en þá geturðu ekki verið í sokkabuxum...eða sko, það færi ekki vel ef að þú missir tempóið í "of hratt"! En nú skil ég hvers vegna maður sér svona margar kínverskar konur í kvartbuxum... Ég held bara áfram að hugsa upp hátt... Geturðu ekki bara farið í stígvélum í skólann? Þú yrðir nú aldeilis flott gúmmístígvélum og hnébuxum við, hahahhaha æjæjæææ. Fyrigefðu Ásta mín, ég er alveg að missa mig hérna. Bloggin þín eru svo fyndin að ég hlæ mig máttlausa í hvert sinn.
Gangi þér vel esskan.

Anonymous said...

Sko Ásta mín.

Úff!

Ég sé bara tvennt í stöðunni....nú þegar ég er búin að jafna mig af hláturskastinu (fyrirgefðu að ég skuli vera að hlæja á þinn kostnað...þetta var bara spurning um það að velja á milli hláturs og gráturs!)

Valkostur A (sem ég tel síðri af þeim tveimur reyndar) - láta setja upp hjá sér þvaglegg svo maður geti bara gert það helsta í poka hangandi út um allt. Helst að bera hann utan á sér svo aðrir fái að njóta líka ;-) (smekklegt eins og klósettaðstaðan)

Valkostur B (mun skárri kostur....úr því við erum farnar að ræða ,,kúk og piss - faktorinn") - mæta á svæðið með bekken - svei mér þá ef ég myndi ekki bara gera það hvort sem er!

Eitt svona til hughreystingar. Mundu bara gatið í gólfinu hjá Tyrkjunum og slönguna sem notuð var til að spúla eftir herlegheitin....þetta er þó alla vega skárra en það!

Og að lokum....fyrir alla muni...haltu bara í þér (ég þekki lítinn strák sem gæti sagt þér allt um það hvernig gera á svoleiðis)!!!!

Baráttukveðjur,
SM

Anonymous said...

iss piss.
Hervör

Anonymous said...

Vá ekkert smá fyndid, væri nú samt til í ad prófa wc-græjurnar;)

Rúna said...

Merkilegt nok! Er það ekki rétt munað hjá mér að þú ert ekki þessi týpa sem fer í tjaldferðalög því maður þarf að pissa úti?? Hmm... þú bara þokkalega á leið í útileigu næsta sumar;o) - sú útreið verður barnaleikur miðað við lífið í Kína. Nú fer Jakob að koma til þín og það verður nú meiri vítamínsprautan þar - njótið næstu daga saman.

xx Rúna

Anonymous said...

Ég hef aldrei skilið af hverju þessar "holu" þjóðir eru ekki búnar að finn gólfefnin sem verða ekki sleip !!!
Það þarf mikla leikni í þetta ;-)
Gangi þér vel Ásta mín

Hildur said...

HAHAHAHAHA!oh.my.bagles.hvad eg er buin ad hlæja mikid.thetta var einmitt thad sem eg thurfti a ad halda,ad grata ur hlatri!
eina lausnin sem eg se a hugsanlega pils-&sokkabuxna probleminu er ad kaupa sokkabuxur i vafasamri fullordinsbud.
knus&kossar hb
ps.eg get svosem svarid thad ad eg helt nidri i mer andanum a medan eg las thessa færslu...