Monday, July 07, 2008

Kveðja - over and out :)

Sæl öll

Þá er dagurinn sem maður hefur beðið eftir í 2 ár loksins runninn upp :) Loksins búin að fá mér nýja húfu!!!
Annars eru síðustu 10 dagar búnir að vera alveg yndislegir því að bæði Svana og pabbi komu í heimsókn og voru viðstödd útskriftina mína. Erum auðvitað búin að fara allan túrista hringinn hér í Peking ásamt því að skella okkur í nudd og neglur.

Sjálfur útskriftardagurinn var mjög skemmtilegur en í senn líka mjög skrítinn og áhugaverður því að allt fór auðvitað fram á kínversku.

En það er svoldið skrítið að sitja hérna núna og hugsa aðeins til baka. Því þetta er búinn að vera alveg frábært tími og margt sem stendur upp úr.

- þegar ég þurfti að fara í "team work" upp í sveit í fyrstu vikunni minni (held að það hafi verið skelfilegasta lífsreynslan mín)

- þegar ég horfði á búddana reyna að veiða leigubíl en enginn vildi stoppa fyrir þeim

- þegar ég fór fyrst á klósettið í skólanum mínum

- þegar ég lenti á frábærum prófessorum sem kenndu skemmtilega tíma
- þegar ég kynntist Jungim og Nancy

- öll þau skipti sem ég fór á Starbucks með Stefaníu

- þegar Kristín, Þórdís, Guðrún Margrét og Magga komu í heimsókn til mín

- að fá að fylgjast með allri uppbyggingu á Olympíuvettvanginum og CCTV turninum (og í raun allri uppbyggingu hér í Peking)

- öll hláturköstin með Kollu í nuddi

- Chill á Bókaorminum og pizza á The Tree

- þegar pabbi og mamma komu í heimsókn og voru hjá mér í mánuð
- og núna þegar pabbi og Svana eru í heimsókn að ná í litla barnið alla leið til Kína

- og svo má auðvitað ekki gleyma öllum þeim skiptum sem Jakob hefur komið í heimsókn til mín og við saman að flakka um heiminn
- og svo auðvitað margt margt fleira ...að ég veit ekki hvar ég á að hætta...

Svo ég segi bara koss og knús til ykkar allra
Gangi ykkur vel og hlakka til að sjá ykkur sem eruð á Íslandi















Sunday, June 22, 2008

Jakob og Ásta í Asíu

Þá er maður kominn aftur til Peking eftir rúmlega mánaðaflakk. Orðin eins og sannur Pekingbúi um leið og maður er kominn aftur. Þ.e.a.s. farin að labba yfir götu án þess að horfa til hægri eða vinstri, sendandi sms og haldandi á Starbucks í hendinni. Bílar flautandi á mann án þess að maður kippi sér nokkuð upp við það.
Reifst við leigubílstjóra daginn eftir að ég kom (nokkuð stolt því að ég gerði það á kínversku) skellti hurðinni og rauk út. Fór í ræktina, reifst aðeins meira þar, því að það var verið að svindla á mér. Sagði svo við kínverskan mann á íslensku sem var að skyrpa gulu og grænu slími á götuna: "ógeðið þitt." Hann gapti bara á mig og skildi ekkert í mér.

Ummm....sweet..það jafnast sko ekkert á við Peking :) Eftir einn svona dag, ákvað ég að halda mér innan dyra. Kláraði Despó seríuna, Brothers & Sisters, LOST, Greys Anatomy og ég veit ekki hvað og hvað.
Verð nú að viðurkenna það að ég væri ekki á móti því að vera ennþá á sundlaugabakkanum á Koh Tao, á Tælandi

En svo að ég segi ykkur nú aðeins meira frá ferðalaginu okkar Jakobs að eftir að við vorum búin að skoða Yangshou (í Kína) þá tókum við lest til Nanning (í Kína), gistum þar eina nótt og svo bus daginn eftir til Hanoi (Víetnam). Ég held að þetta hafi verið etv erfiðastur svona travel pakkinn okkar. Eftir lestarferðina frá Yangshou til Nanning vorum við að deyja úr hungri. Fengum nánast ekkert að borða alla leiðina, eða eins og sjá má á mynd...e-rn kínverskan mat sem ég veit ekki hvað var...nei þetta er ekki eins og dósabaunir....allavega ekki lyktin.


Svo að þegar við komum til Nanning kl 11 um kvöld þá kom kínverskan mín aftur að góðum notum. Það fyrsta sem við gerðum var að spyrja localinn HVAR ER MACDONALDS. En kínverjar skilja ekki Macdonalds..heldur verður maður að vita hvað það er á kínversku. (Lenti einu sinni í þessu í Peking þegar stelpurnar voru hérna og maður lærir af mistökum sínum...ég lærði að segja MacDonalds svo að ég þyrfti nú ekki að leika það aftur ..humm..góðar minningar ;)

Síðan ferðuðumst við frá n-Víetnam til s-Víetnam, þaðan til Kambódíu og svo til Tælands. Læt hérna nokkrar myndir fylgja með ;)

Gamli kallinn sem tók á móti okkur þegar við komum til Yangshou í Kína. En þetta var nú bara svona trikk til að fá fólk til að taka myndir og svo á maður að borga.

Fórum svo á bambus fleka niður ána í Yangshou...sem var alveg æðislegt. Mæli eiginlega með ferð til Guilin og Yangshou fyrir alla sem ætla að kíkja til Kína.
Svo á afmælisdaginn beið mín surpræs kaka og blóm þegar við komum inn á hótel í Hanoi, Víetnam. Jammý jamm
Halong Bay - Víetnam. Gistum á báti eina nótt á Halong Bay. Þetta landslag er mjög líkt Guilin landslaginu í Kína. Svona flott bungufjöll. Annars kynntumst við á bátnum rosalega skemmtilegu pari frá Ástralíu. Þau fóru að tala um hættuleg dýr sem væru til í Ástralíu...snáka osfrv. Svo að við sögðum að þeim að heima á Íslandi væru svona "killer sheeps" sem væru mjög hættulegar. Þeim fannst það mjög fyndið. Annars eftiráhyggja hefði maður geta sagt að við værum með Ísbirni út um allt. Jahérna megin....Aðalmenningarsjokkið...ef hægt er að kalla það sjokk beint...þá eru það án efa vespurnar og mótórhjólin sem eru út um allt, bæði í Víetnam og Kambódíu. En það er mjög algengt að maður sjái heilu fjölskyldurnar á hjólinu...já..án hjálms. Eða foreldrar með hjálm en ekki börnin. Þessir foreldrar hafa nú búið til samt mjög góðan "safety barnastól" fyrir barnið eins og þið sjáið...svo að það ætti nú að vera bara í góðu lagi...ekki sammála!!!..hummm...
En hið mesta sá maður 5 manna fjölskyldu á litlu hjóli.

Eftir Víetnam fórum við til Kambódíu. Fórum að skoða Angkor Wat...og já ég vissi ekki hvað Angkor Wat var fyrr en tveim vikum áður en við fórum þangað. Og nei ég man ekki mikið eftir Angelínu Jólí í Tomb Raider. En þetta er það flottasta og geggjaðasta sem ég hef séð. Mæli með því að þið kynnið ykkur þetta og setjið það á planið: ...hlutir sem ég ætla að gera í lífinu...

Á einum stað leið mér allt í einu eins og ég væri að leika í tölvuleik og ég væri að bíða eftir vondum kalli sem kæmi fyrir hornið til að skjóta á mig. En það var bara eftir að ég vissi að Tomb Raider var tekið upp þarna.
Þetta var GEGGJAÐ...það eru eiginlega ekki til orð til að lýsa þessu.
Svo þegar komið var til Tælands var okkur Jakobi orðið svoldið heitt, þannig að við skelltum okkur á ísbar. Sem var auðvitað bara geggjað að sjá fólk á stuttbuxum í 10 stiga frosti. Við Jakob vorum hins vegar vel tilbúin, ég fór í langermabol og gallabuxur áður en inn var farið. Gleymdi hins vegar að taka kuldaskóna með mér...var víst bara með sandala. En fengum að láni þessa töff húfu, svona sveip og ullasokka. Svo að ég skellti mér bara í ullaskokkana innanundir sandalana. Það lúkkaði mjög vel ;) Svo tók maður eitt skot til að halda á sér hita. Mér sýnist ég nú samt varla þora að taka þetta skot.

Ég sakna sundlaugarinn á resortinu okkar. Ohhh....það var sem sagt sundlaug ...og svo sá maður sjóinn...jammí...

Það verður nú ein rómantísk og væmin mynd að fylgja með, tekin á Tælandi. Þetta var nú alveg ljúft líf. Horfðum á sólina setjast niður, sötruðum öl og hugsuðum hvað lífið væri nú gott ;)

Jæja, vonandi hafið þið það gott á Íslandi. Frétti nú að það væri Mæjórka veður...spurði svo auðvita: já er það, hvað er heitt?...ca 12 stiga hiti. Úff...það er ekkert smá heitt...svo farið vel með ykkur. Muna eftir sólarvörn!!! ;)
xoxo


Thursday, May 15, 2008

Flakkarar

Hae Hae
Vildi nu bara lata folk vita ad vid Jakob erum a lifi. Vid fundum ekki fyrir jardskjalftanum en vid erum ca 850 km fra tvi svaedi (sem er tho naer en Peking). En eg er sem sagt buin med ritgerdina mina og loka vorn, svo ad ta er ekki haegt ad hangsa heldur skella ser i bakpokaferdalag. En vid erum sem sagt nuna a bakpokaflakki um sudur Kina. (eda svona tvi sem naest kemur bakpokaferdalagi a la Asta...hehehe).

Forum til Guilin sidasta manudag og gistum tar eina nott. Erum nuna i Yangshou sem er alveg yndislega litil borg med geggjudu landslagi. Erum buin ad hjola ut um allt herna i kring. Spjalla vid local folk osfrv. Held ad tad bjargi manni alveg ad kunna svona turista kinversku, tannig ad madur getur adeins spurt localinn hvad madur eigi ad gera. Ta geta tau allavega radlagt manni ad fara tessa leid...tvi ad hun er fallegust...en etv i reynd er tad leid ad heimili teirra tar sem tau vilja ad madur kaupi eitthvad..hehe...en tad er lika bara aevintyri ut af fyrir sig.

Svo forum vid til Nanning (sem er i Kina) i dag med lest gistum tar i eina nott. Daginn eftir er svo planid ad fara med bus til Hanoi i Vietnam.

Thusund thakkir fyrir allar kvedjur fra ykkur!

koss og knus
Asta og Jakob

Tuesday, April 01, 2008

Mamma og pabbi í heimsókn

Mamma og pabbi komin í heimsókn. Skelltum okkur til Xian síðustu helgi.

Þar sáum við Kínverja sprengja kínverja...hehehe

Æ, þessi var smá þunnur...

Wednesday, March 26, 2008

Páskadagur

Þá er maður búinn að skila af sér "first draft" af lokaritgerðinni. Sem er mikill léttir :) Svo að ég fór í gær í nudd og slappaði af.


Annars skellti ég mér með Kollu og íslenskri vinkonu hennar á Hilton á páskadag, smá lunch. En maturinn þar var auðvitað bara himneskur. Síðan röltuðum við um Art District 798 hverfið.


Vinkona hennar var svo dugleg að láta sauma á sig hjá Toby að maður fer alveg á flug sjálfur og því langar mig að gera hitt og þetta. Komst svo að því að hann býr til skó líka. Þannig að hann getur coperað uppáhaldsskóna mína og ég get fengið þá í öllum litum. OMG...ég vissi ekki hvert ég ætlaði.


Svo að nú kalla ég hann COPY TOBY!!!


Síðan komust þær í geggjaða töskubúð sem er svona.. usss usss búð, þannig að ég bíð núna bara eftir mömmu og pabba og ætla að draga mömmu með mér þangað ;) Efast nú samt að ég þurfi að draga hana þangað!


Vonandi hafið það haft það gott um páskana...



xxx




Hilton tónlistaratriði
Kolla og Hrafnhildur á Hilton
Páska ungar og kanínur á HiltonArt District 798 - skál fyrir okkur!! Fengum nú smá athygli þarna, ljósmyndari sem tók mynd af okkur und alles!! haha
Björk-in okkar


Enduðum svo daginn í Woudakou - Indverskurstaður sem var alveg geggjað góður..jammý!! Minnti smá á Austur-indía

Thursday, March 20, 2008

Spæjarar að loka á okkur!!!

Oooohhhh....ég kemst ekki inn á mbl og vísi.
Hef heyrt að það sé út af því að það sé verið að mata okkur hér með upplýsingum sem við megum lesa og upplýsingum sem við megum ekki lesa. Hvað er eiginlega verið að skrifa um á mbl og vísi núna. Þið getið svo sem lesið aðeins á milli línanna áður en ég gerist of pólitísk.
En er þetta árið 2008 eða..... þetta gerir mann bara reiðan og pirraðan.
En málið er nú bara að mig langar að lesa stjörnuspána mína og etv hvað sé að gerast með krónuna.
Er ég rík í dag eða ekki rík....
Kemst ég í nudd...eða er nuddið 20% hærra í dag en í gær osfrv....
Hvað er að frétta af Posh og Beckham....
Allt voðalega saklaust sem ég vil lesa mig til um.
$%&//#$
Ásta reiða

Monday, March 17, 2008

Mengun og API stuðull

Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með mengunarstuðlum í Kína:

http://english.sepa.gov.cn/
En hægra megin á síðunni er hægt að skoða API stuðul fyrir hverja borg.

Svo fer maður á þessa síðu:
http://www.epd-asg.gov.hk/english/advice/advice.php
til að skoða "hættu stigið"

En í Peking er það oftast severe eða very high :(
The general public are advised to reduce physical exertion and outdoor activities!!
Vonandi verður í lagi með Olympíuhlauparana.

Svoldið áhugavert að fylgjast með þessu, hvort að þetta minnki eitthvað núna fyrir Olympíuleikana.

Friday, March 14, 2008

Komin aftur út

Þá maður kominn aftur til Kína. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða og að þetta sé að verða búið, 2 ár bara flogin frá manni.

En ég stoppaði í Kaupmannahöfn hjá Möggu, Guðrúnu Margréti og Hildi Björk á leiðinni út. Það var auðvitað bara yndislegt að rifja upp gamla tíma. Þetta mynnti mig óneitanlega á þegar við Magga vorum skiptinemar haustið 2003 í Koben, kannski ekki margt breyst síðan þá. Svo bauð Hildur Björk okkur í alveg rosalega góðan mat eitt kvöldið. Jammí...og takk fyrir mig :)

En það er töluvert margt búið að gerast frá því að ég kom aftur til Kína. Auðvitað er maður búinn að mæta í sendiráðsboð þar sem íslenskir krakkar úr MBA náminu í HÍ voru í heimsókn. Það líktist nú ekki heimsókn Hamrahlíðarkórsins enda verður seint hægt að slá hann út.

Svo er maður auðvitað búinn að skella sér í nudd. Við Kolbrún skelltum okkur á Bodhi og fengum eitt stk hláturkast. En svo vildi skemmtilega til að nuddarinn minn (KK) ætlaði að fara að teygja e-ð á mér. Ég veit nú ekki hvað hann hélt, en ég held að hann hafi búist við því að hann gæti lyft löppunum mínum beinum upp að eyrum. En svo vildi nú ekki til, heldur gat hann bara rétt svo lyft þeim ca 90°. Ég fór auðvitað að hlægja því þetta var e-ð svo vandræðalegt og hann sagði bara: “ó, you don´t exercise, you have to exercise” Og horfði á mig alvarlegum augum. Svo hélt hann áfram að hrista á mér rassinn og ýta spik...nei húðinni minni...upp og niður. Allavega, eftir þetta óskaði ég eftir því að fá mér nuddara sem talaði ekki ensku. Mér líður bara mjög vel að segja alltaf: “wo bu dong” eða ég skil ekki :)

Síðan var ég líka mjög dugleg og skráði mig í Business Chinese og regular Chinese. Mæti núna 3svar í viku 3 tíma í senn. Kennarinn þar sagði að ég væri alveg eins og bangsi, svo hló hann bara. Og ég hló aðeins ytra...en ekki inn í mér.

Uffff... það er alltaf svo gaman að þessum kínverjum. Nuddarinn hristi spikið og sagði að ég verð að hreyfa mig og kínversku kennarinn sagði að ég væri eins og bangsi!!!! :)

Hvernig er eiginlega hægt að túlka það....

Allavega, ég held ég láti þetta nægja í bili.
Kveðja frá Kína

Sunday, January 27, 2008

Pása

Er í blogg fríi þangað til ég fer aftur út :)