Wednesday, March 28, 2007

Þessi enska hjá þeim....humm...

Hæ hæ


Jæja kínverjarnir eru búnir að loka aftur á blogspot og allt sem heitir blogg eitthvað. Þannig að nú þarf maður aftur að nota leyni síðuna til að skoða bloggið sitt og önnur blogg. Bara láta vita af því að ég get ekki commentað á neinar síður.




Allavega ég er að verða stundum brjáluð á því að hafa kínverja sem kennara og reyndar að hafa bara kínverja hér út um allt ...hahaha!!! Nei nei segi svona, en það er einn kennari sem talar alveg skelfilega ensku. Það er bara enginn sem að skilur hana. Ég er komin með smá orðabók á hana:




Ghoss..humm...já GOALS


Fissssible lution....FEASIBLE SOLUTION


Smoke of the line.....HA..NÚ SKIL ÉG EKKERT...já SLOPE of the line.


Urinely...ha er manneskjan að tala um þvag...nei...USUALLY




Þannig að hugurinn ber mig oftast hálfa leið til Íslands í þessum tíma. Meirað segja greyið liltu kínverjarnir botna ekkert í því sem konan er að tala um og eru því búnir að biðja hana um að kenna einu sinni í viku á kínversku. Og viti menn...hún ætlar að gera það. Sem betur fer ætlar hún líka að kenna einu sinni í viku á ensku, en ég meina.... comm on....það þarf heila orðabók á þessa manneskju. Ég skil ekkert hvað hún bullar allan daginn. Greyið litla konan....eða greyið við.




Svo tók ég upp á þeirri "brillant" hugmynd að þegar ég kæmi aftur út til Kína þá ætlaði ég að vera svoldið dugleg að "mingla" við kínverjana. Gera hópavinnu með þeim og þess háttar...svona smá net working. BIG MISTAKE!!!!!!!! Nei nei, ég má nú ekki alveg vera svona gagnrýnin. En jeminn, þetta er ágætt reynsla svo sem. Maður lærir allavega aðeins að rífast og láta ekki vaða yfir sig. Þess má geta að flest allir Kínverjar sem eru með mér í bekk eru einkabörn. Jújú, út af one children policy. Síðan eru þetta venjulega krakkar sem eru bestir í sínum héruðum um allt Kína. Úff...þetta getur tekið vel á. Svo þegar þau geta ekki útskýrt fyrir mér á ensku hvað þau eru að hugsa, þá skipta þau fljótt yfir í kínverskuna og maður heldur bara áfram að blása kúlur með tyggjóinu og horfa út í loftið á meðan þau rífast...NB RÍFAST... á kínversku. En þetta getur líka stundum verið mjög fyndið og ég fer bara að hlægja og þá horfa þau og mig og fara bara líka að hlægja. Hlátur og bros virka nefninlega alveg ótrúlega vel hérna ;-D




Svo að á svona frekar "pirrings dögum" þá er um að gera að dekra við sig. Svo að við Stefanía (sem er nýkomin til Peking mér til mikillar ánægju) og Lauren vinkona hennar skelltum okkur fínt út að borða síðustu helgi.


Bless í bili...
xxx

Wednesday, March 21, 2007

Nýja íbúðin mín

Jæja, þá kom að flutningsdeginum mikla :) LOKSINS!!!

Ég verð nú að viðurkenna það að ég var svoldið stressuð. Ég flutti um kvöld ca klukkan 11. Ég fékk kínverskt flutningafyrirtæki til að koma og ná í allt fyrir mig. Þannig að um klukkan 11 mætti risastór bíll til að taka fimm ferðatöskur og nokkra pappakassa :) Þetta voru bráðvaskir fimm litlir kínverjar sem höfðu ekkert fyrir þessu. Skelltu bara töskunum á bakið og hlógu og hlógu. Sem betur fer fékk ég Jo og Jerry bresku vini mína til að hjálpa mér að standa vörð um farangurinn minn meðan þeir hlupu með hann milli hæða.
En jú ég kvaddi gömlu íbúðina mína...og hugsaði með mér...úfff...ég vona að ég sé ekki að fara úr öskunni í eldinn. Ég hef nú aldrei lent í neinum vandræðum í gömlu íbúðinni og alltaf liðið vel þar. Er ég ekki örugglega að gera rétt....ójú...losna við landlordinn sem reyndi við mig og fá gott eldhús og gott baðherbergi :)


Ég hefði nú aldrei getað gert þetta án þess að hafa Jo & Jerry. En Jo talar alveg perfect kínversku og gat hjálpað mér með öll samskipti við "flutningskallana". Hér fyrir neðan situm við tvær frammí hjá bílstjóranum sem var alveg afskaplega vel skemmt :)


Þetta er inngangurinn að íbúðinni. Áramótatréð stendur reyndar ekki þarna ennþá. Eins og sjá má er ég alveg hæst ánægð með að hafa fundið þessa íbúð. Ég ætla bara að skella nokkrum myndum hérna fyrir neðan....













Ójújú, mín er búin að skella sér í sund!!!
Sem telst mikið kraftaverk fyrir þá sem þekkja mig vel. En dagurinn byrjaði reyndar á að fara niður í ræktina, svo í sund og gufu. Það er mjög mikill munur að hafa svona í húsinu heldur en að þurfa að ferðast í 20min til að komast í ræktina sína.

















Svo varð ég auðvitað að taka eina mynd út um stofugluggann. Ég er mjög fegin að það séu ekki hús beint fyrir framan gluggann minn. Ég er með svona smá útsýni. Það sést í góðu skyggni í fjall þarna á milli húsanna. Sólin sest eiginlega þar niður ;)

En íbúðin sem ég bý í heitir the Somerset, svoldið mikill munur á þessu húsi og húsinu mínu gamla þar sem fólk hafði dúfur úti á svölum. En auðvitað er alltaf gaman að hafa prófað að búa í kínverskuhverfi og hefði ég ekki viljað sleppa því. En 6 mánuðir eru alveg nóg fyrir mig, ég er of mikill Íslendingur ;)

Tuesday, March 13, 2007

Hong Kong

Hæ allir
Svoldið langt síðan ég hef skrifað síðast, en það er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér. Mér finnst nú að maður verði að byrja á byrjuninni. En ég fór sem sagt aftur út 21.febrúar 2007 :) Þá skelltum við Jakob okkur til London og þaðan beint til Hong Kong. Vorum þar í 6 daga og flugum svo til Peking. En þá byrjaði leitin mikla af íbúð handa Ástu pástu. Sú leit byrjaði skemmtilega, varð síðan leiðinleg og stressandi en góðir hlutir gerast hægt...og tarrra...við bara fundum drauma íbúðina.

Áður en ég segi ykkur frá íbúðinni, þá verð ég nú eiginlega að segja smá ferðasögu frá Hong Kong. Sem minnir mig reyndar á eitt já..merkilegt nokk. Áður en ég fór aftur út til Kína ákváðum við Kristín vinkona að skella okkur til spákonu. Hún byrjar eitthvað að bulla og ég bara jeminn..greyið konan getur bara ekkert. Sagði við mig eftir að hún vissi að ég væri í námi í Kína: "já, bíddu þú býrð í litlu smáþorpi" Ég bara humm....reyndi að brosa og sagði:"nei, reyndar ekki" Hugsaði með mér ÞAÐ BÚA AÐEINS 16 MILLJÓNIR Í PEKING. Svo sagði hún:"en þú býrð þá aðeins fyrir utan borgina og þarft að komast inn í hana" Aftur brosti ég kurteisislega og sagði skýrt: "Nei, veistu það ég að ég bý nánast í miðri Peking".

Allavega, merkilegt nokk!!!
Svo komum við Jakob til Hong Kong og við gistum (án þess að ég hafi haft hugmynd um það) í litlu smáþorpi rétt fyrir utan Central Hong Kong. Og viti menn þá var lýsingin hennar á þorpinu afskaplega lík smábænum okkar. Jáhá...og geri aðrir betur!!

En við vorum sem sagt í Hong Kong yfir kínverksu áramótin.






Við gistum í litlum bæ sem heitir Mu Woi í Lantau Island og tókum 20min ferju á hverjum degi til Central Hong Kong. Hérna stend ég við bryggjuna í Central HK :)
Hér fyrir ofan er sem sagt Silvermine Beach Hotelið okkar í Hong Kong. Stórglæsilegt hótel við ströndina...haha. Engir kakkalakkar allavega ;) Maturinn var reyndar rosalega góður!!


Við Jakob erum mjög lík að því leitinu til að það er varla neitt sem heitir frí hjá okkur. Þannig að við löbbuðum um allt Hong Kong og vorum duglega að túristast eins og okkur er einum lagið. Myndirnar bæði fyrir ofan og neðan eru teknar í Hong Kong Park. Bara gaman að sjá hvernig garðurinn er þakinn stórbyggingum allt í kring.






Svo skelltum við okkur í TIVOLI. Sem var auðvitað mjög gaman. Það var uppi á hæð og útsýnið var rosalegt allt í kring.


Ég verð nú auðvitað að láta mynd fylgja af drekunum sem voru úti um allt út af áramótunum. En það er nú reyndar svoldið áhugavert að sjá þá dansa. Ótrúleg fimi sem þarf í þetta.

Svo tókum við þátt í happadrætti rosalega spennt auðvitað en ekki hvað. En í ár er ár svínsins...eða hið Gullna Svín sem er rosalega gott ár. Þannig að núna sér maður nokkrar stelpur í skólanum komnar með bumbu því að það þykir mjög gott að eignast börn á þessu ári :) Og heyrið þið það sem eruð óléttar eða eruð að íhuga það...enn tími ;-D (tími fram í febrúar á næsta ári samkvæmt kínversku dagatali)


Útsýnið frá Kowloon yfir Central Hong Kong var ekki af verri kantinum. Það er einmitt á svona momentum sem maður vildi óska þess að maður væri brjálaður ljósmyndari með þrífótinn sinn og allt til að taka næturmyndir!



Því næst var farið á aðaldjamm svæðið í Hong Kong, Lan Kwai Fong. En þetta er hún Rebekka vinkona hans Jakobs sem tók okkur aðeins á djammið. En ég fékk alveg á tilfinninguna strax að Hong Kong er mikil djamm borg. Enda voru krakkar sem sögðu við mig þegar ég var að spá í að fara í skiptinám til Hong Kong: Það er yndislegt að djamma þar, frábær staður að fara þegar maður er single. Þannig að ég nenni hvorki að verða single né fá hausverk. Svo að ég ætla bara að vera í Peking ;)

Við fórum í smá ferðalag í eyjunni okkar. Sáum Giant Buddha og slíkt. Tókum svo kapal niður aftur að flugvellinum. Það var ekkert smá spúki, það var þvílík þoka efst uppi í fjöllunum. Sáum einu sinni ekki lengra en ca 3 metra framm.

Jæja, ég á erfitt með að velja myndir. Langar helst að setja þetta allt. En einhvers staðar verður maður að stoppa. Ég er pottþétt að gleyma einhverju því að það er svo langt síðan við vorum þarna. Ég skal reyna að vera duglega að blogga svo ég geti bloggað nútímann ;)

Bæjó spæjó!

Friday, March 02, 2007

Komin aftur

Hae hae
A bara til med ad lata vita ad eg er heil a hufi :) eda svona naestum tvi. Ordin kaerastalaus, internetlaus og DVD-laus allt a sama tima. Nuna er eg sem sagt maett aftur i koresku internetbulluna mina. Uppahaldsstadinn minn!!! eda tannig. Tad situr koreskur strakur vid hlidina a mer og getur ekki haett ad sotra coke-id sitt og jortra a tyggjo-inu sinu. Svo styrir hann eins og taugaveikladur unglingur tolvuleiknum sinum.

Fyrir aftan mig gargar einhver kinverji i simann og eina sem eg skil hann segja er MEI JO, sem tydir: eg a tad ekki, eda ekki til, eda bara NEI. Lyktin er frekar thung og sveitt andrumsloftid. Eg sit vid innganginn og reyni ad anda i hvert skiptid sem ad tad kemur "ferkst" loft inn.

Hvad get eg sagt...hummm...Alltaf gott ad vera komin til Kina

Tuesday, December 26, 2006

MERRY 寒假

Gleðileg jól og farsælt komandi ár!!!
寒假
Takk fyrir að nenna að lesa bloggið og commenta :)
En núna er ég komin aftur til Íslands og ætla ég í blogg pásu þangað til um miðjan febrúar þegar ég fer aftur út!!!
Hlakka til að sjá ykkur

Thursday, December 14, 2006

Skemmtilegar sögur!

Ég verð eiginlega að deila þessu mér ykkur. Ég er búin að hlægja svo mikið af þessu. Kannski er ég smá vond að setja þetta hérna á netið.
En ég ætlaði sem sagt að hitta einkaþjálfarann sem ég var búin að segja ykkur frá síðasta mánudag. En er búin að vera með e-ð leiðinda kvef og varð að hætta við tímann. Svo er ég búin að fá nánast á hverjum degi frá honum einhver sms.
T.d. fékk ég þetta um daginn:
"Only to kno about your healht i hope is bether .have a nice night god protect you"
Svo fékk ég í dag:
"Hey .lady how are you feel ? enjoy this sun days .because live is like sun chine good afternoon"
Þá svaraði ég honum að ég væri orðin svoldið upptekin og kæmist ekkert áður en ég færi til Íslands. Ég myndi bara hafa samband við hann þegar ég kæmi svo aftur til Kína.
Þá sagði hann:
"Okay lady good travel and take cake .make father god protect you all time .which you good .and hope u nice"
Hahaha..mér finnst þetta ekkert smá krúttulegt. HAHAHA...Ég get hlegið endalaust af þessu. Ég fór allavega að hans ráðum og fékk mér bara köku bita!!! (held reyndar að þetta átti að vera take care)
Ég verð nú að segja það að hann á hrós skilið fyrir að tala og skrifa ensku. Mér finnst þetta bara ljómandi gott hjá honum. Guð blessi hann!!!
Ég bara varð að deila þessu með ykkur.
Minnir mig reyndar líka á aðra sögu sem einn prófessorinn sagði okkur frá.
Sagan gerist í USA þegar hann var við nám í Berkeley háskólanum. Þá sem sagt ætlar einn Kínverji að setjast hjá einum USA manni í matsalnum.
Kínverjinn segir við hann: "Are you single?" USA maðurinn horfði á hann og sagði ekki neitt...heldur bara... ehhh..hummm. Þá sagði Kínverjinn aftur: "are you lonely?"
Greyið Kínverjinn skildi svo ekkert í svipbrigðum USA mannsins sem hélt að hann væri að reyna við sig. En vildi sem sagt bara setjast hjá honum og ætlaði að spyrja hann hvort hann mætti "join him". :Þ
Mér finnst þetta yndisleg saga líka. Líka gaman að segja frá því að ástæðan fyrir að prófessorinn var að segja söguna við bekkinn var sú að Kínverjarnir ættu ekki að vera hræddir að tala ensku við okkur hin. Heldur ættu þeir bara að nota okkur sem æfingadýr, þó svo að e-ð asnalegt komi út úr þeim. Allir lenda í því e-rn tíma og verður bara til skemmtileg saga fyrir vikið.
Allavega gott að hafa húmor fyrir sjálfum sér!!! :)
Þeir reyna svoldið að vera fyndnir prófessorarnir í skólanum. Einn kom með djók um að MBA námið stæði fyrir Married But Available. (fyrir þá sem ekki vita þá er ég í MBA námi sem stendur fyrir Master of Business Administration)
Jújú..Kínverjar geta verið fyndnir...eða misfyndnir.
Allavega...
Bless í bili
Ásta

Wednesday, December 06, 2006

Hitt og þetta")

Hæ allir :)

Ég veit nú ekki alveg hvar ég á að byrja. Þegar maður hugsar um vikuna þá er maður alltaf að upplifa eitthvað nýtt og nýtt.
Kannski ágætt að byrja að segja frá flóðinu í íbúðinni minni. En það fór allt á flot. Sem betur fer kom ég einmitt heim þegar allt fór að leka. Fékk fyrst smá panic attack að reyna að koma batterýum í vasaljósið til að sjá hvar lekinn væri til að geta sett fötu fyrir. En það lak úr krana....bara bein buna. En þetta er gallinn við að búa einn í Kína að maður getur ekkert hringt í elsku mömmu og beðið hana um að hjálpa sér að þrífa. Svo að mín var allan daginn að skófla vatni í fötu. Þurfti svo að hringja í leigusalann minn sem mig langaði ekki að gera því að hann reyndi við mig í vikunni áður. Bað því Ciöru um að koma til mín til að vera siðgæðisvörður og þýða kínverskuna/enskuna. En hann reyndi sem betur fer ekkert við mig aftur, sem þýðir það hann hefur skilið skilaboðin mín...NEI TAKK :)


Ég er byrjuð í prófum! Fór í fyrsta prófið mitt í fyrradag sem var frekar öðruvísi upplifun. Ég var í Quantative Methods prófi sem var mjög sanngjarnt að öllu leiti. Prófið var allt unnið á excel en þess má geta að allar tölvur í skólanum mínum hafa excel á kínversku. Svo að við útlendingarnir fengum leyfi til að koma með okkar eigin fartölvu og vinna prófið á henni. En það er svona frekar skrítið eftir á að hyggja því að það hefði verið minnsta mál fyrir mann að senda prófið á e-mail til e-rs sem væri brillant góður í tölfræði og biðja hann um að senda lausnina á næstu 2 tímum. En þar sem maður er nú heiðarlegur nemandi þá tekur maður engar áhættur. Síðan átti maður bara að setja prófið sitt á USB tengi og skella því á desktopinn hjá leiðbeinandanum. Frekar frumstætt allt saman :) Svo að auðvitað lenti maður í enn einni röðinni eftir prófið, þar sem allir "útlendingar" (ekki kínverjar) voru að bíða eftir að setja prófið sitt á desktopinn.

Það er svoldið fyndið svona þegar líða tekur á þessa önn, þá allt í einu er það eins og sumir Kínverjar vakni til lífsins og spurji og spurji prófessorana spurningar. En þess má geta að þátttaka í tímum gildir venjulega um 20% :)

Annars er Ciara kanadíska vinkona mín búin að gista hjá mér í nokkrar nætur. Sem mér finnst bara afskaplega skemmtilegt. Við erum búnar að skiptast á að útbúa morgunmat og kvöldmat. Svaka lúxus að hafa hana. Svo mútaði hún mér líka með 3.seríu af Desperate Housewifes :) (hummmm..sem btw er mjög spennandi) Svo að við erum búin að hafa það rosa kósý, en hún reyndar fór í gær til Chengdu í smá ferðalag og gistir hjá mér aftur í kringum 15.des.


Hey já...hahaha...svo fékk ég frekar fyndið símtal í gær!!!! Jeminn...humm...allavega ef ég byrja á byrjuninni. Í september fór í e-rn tíman að versla og stelpurnar í búðinni horfðu á mig og sögðu bara við mig án þess að ég væri að spyrja: "We don't have any BIG size" ég bara JEEE THANKS ÉG SPURÐI ALDREI......hugsaði bara með mér...HALLO....ég gæti nú alveg verið að kaupa handa e-rjum öðrum!!!!!! Bölvaður dónaskapur ")

Þannig að eftir þessa skelfilegu lífsreynslu ;) hugsaði ég stórt...og keypti mér líkamsræktarkort í INTELLIFITNESS. En jújú, mín mætti þarna nokkrum sinnum í september og smá í október. En svo var hjólinu mínu rænt og ég hef bara ekki farið eftir það.

Allavega...svo fékk ég þetta yndilega símtal í gær: Hello, hello is this Asta? This is Intellifitness. You bought a Membership card sometime ago, but you haven't been here for awhile. I want to be your personal trainer. Hahahaha...ég mér finnst þetta sko flott þjónusta! Bara verið að fylgjast með manni!! Þannig að ég spurði bara hvað það kostaði og það kostar ca 2000 kall 10 tímar. Sem er auðvitað ekki neitt. En allavega, mér finnst þetta ekkert smá fyndið. Var að velta því fyrir mér hvort að þeir væru nokkuð að njósna hversu mörg súkkulaði stk ég fengi mér yfir mánuðinn.

Svo er maður stöðugt í e-rju veislum. Hún Valgerður Sverrisdóttir var hérna síðast, þær Þorgeður Katrín og Siv Friðleifsdóttir hafa líka komið í heimsókn síðustu 3 1/2 mánuði. En einn íslenskur strákur sem er hérna spilaði á pianóið fyrir fjöldann í veislunni og kínversk stelpa söng undir. Þau tóku eitt kínverskt lag og eitt íslenskt lag. Voðalega fínt hjá þeim.

Eftir veisluna skellti ég mér á blómamarkað. Var að reyna að gera smá jólalegt hjá mér, keypti mér krans sem mér finnst núna reyndar líta meira út eins og brúðarskreyting :) (Og skellti líka upp rauðri jólaseríu.)


Svo í dag var ég að koma úr mjög slæmu/góðu fótanuddi. Skellti mér með Pien og Emmu. Þeir byrjuðu fyrst að nudda axlirnar og bakið meðan fæturnir voru í heitu fótabaði. Síðan lág maður bara flatur meðan það var verið að ýta á einverja punkta undir ilinni. Vá hvað þetta var samt svoldið gott. Já verð nú eiginelga að taka það líka fram...borgaði heilar 18RMB sem eru ca 150 kr fyrir 1 klukkutíma.

ALLTAF AÐ GRÆÐA...BULLANDI HAGNAÐUR!!!!
Jæja, best að halda áfram .....
Hafið það rosa gott
Sjáumst fljótt....
")

Wednesday, November 29, 2006

Dúfnabú!!!

Ni Hao!!!!
Jæja, ég verð að viðurkenna það að það fer að verða svoldið erfitt að vakna á morgnanna. Ég veit það ekki, einhvern veginn finnst mér miklu meira kosý að vera að leika mér í draumi við Davíð og ímynda mér bumbuna hjá Svönu systur. En jú, fyrir þá sem ekki vita þá er Svana systir ólétt. Ég vil endilega meina það að missirinn við að hafa litlu systur í útlöndum sé svo gífurlega mikill að báðar systur mínar eignast börn þegar ég er erlendis :) En Gunna eignaðist Davíð þegar ég var í námi í Kaupmannahöfn og svo núna Svana systir þegar ég er í Kína!

En já annars átti ég alveg eftir að segja ykkur hvernig ég kem mér alltaf í skólann. Ég byrjaði auðvitað í september að labba og keypti mér svo hjól í október (átti það í 2 vikur).
Ég reyndi að taka strætó einn morguninn, jeminn ég átti að verða fyrst inn (samkvæmt því að standa í röð), strætó hurðin opnaðist beint fyrir framan nefið mitt og mín ætlaði að labba inn en snerist eins og þyrla í hringi á sama stað þar sem fólk skaust fram hjá mér beggja megin. Svo horfði ég á síðasta manninn troða sér....NB TROÐA SÉR...inn í strætó. Allir eins og sardínur í dós og ca 75 kínversk nef klesst upp við rúðuna. Jeminn, ég stóð eftir og horfði á eftir strætó fara varð svoldið ringluð eftir snúningana en hló svo og hló. Eftir það hef ég haldið mér frá strætó kl 8:30 á morgnanna.

Auðvitað get ég keypt mér nýtt hjól (sem verður reyndar horfið aftur 2 vikum seinna) og hjólað eins og bavíani í þessari umferð. En ég eiginlega nenni því ekki lengur, það er bara stórhættulegt. Ég get líka haldið áfram að labba, sem ég geri stundum. En þó oftast labba ég heim úr skólanum. Svo að mín er búin að hafa einkabílstjóra núna á hverjum degi í nánast 2 mánuði, þ.e. leigubílstjóra. Það finnst mér besti ferðamátinn hér í Peking. Reyndar....humm....það er oftast skelfilega lykt inni í bílnum (andfýlulykt út af te drykkju) og svo þarf maður að hlusta í THX á kínverskt leikrit. En þetta er bara mjög hressandi svona snemma á morgnanna þegar maður er nývaknar ;P

Læt hérna fylgja með mynd af okkur þegar nokkur okkar skelltum okkur á Crown Plaza hótelið í Thanksgiving dinner sem var alveg ljómandi gott. Var með þremur ameríkönum sem að sögðu mér að það væri sko skylda að borða almennilega. Það er auðvitað aldrei vandamál fyrir mig...ummm.... en við komum þangað kl 18:40 og fórum aftur kl 11:00, held að ég hafi bara aldrei borðað svona lengi.


En já, ég verð eiginlega að láta eina mynd fylgja líka með, kræst, þetta er blokkin á móti mér.

ÞAÐ ER DÚFNABÚ ÚT Á SVÖLUM
-for crying outloud-

haha....ég er að spá í að breyta svölunum mínum líka.
Mér finnst þetta nefninlega svo snyrtilegt :-9

Jæja, svo koma bara nokkrar mannlífsmyndir...











Bless í biliÁsta

Sunday, November 19, 2006

Félagslíf og fólk sem ég umgengst

Sædís, María Kristín og Dísa!!
Innilega til hamingju með krúsidúllurnar ykkar!!!
Þúsund kossar frá mér :)
Annars...hæ öll!!!!!
Ég hef held ég bara ekkert talað um félagslífið hér í Kína. En svona smá update, þá sit ég ekki heima alla daga á rassinum og læri :) Sem er auðvitað bara mjög gott!!

En föstudaginn fyrir viku var fyrsta prófið okkar og auðvitað fórum við "vestrænu" nemendurnir á smá skrall eftir það. En það vill svo heppilega til að það eru tveir skemmtistaðir (pöbbar) sem að eru hérna rétt hjá þar sem ég bý. Þannig að það er minnsta mál fyrir mig að rölta þangað og rölta aftur heim. En persónulega finnst mér þessir staðir ekkert æði. Annar þeirra heitir Propaganda, þar sem allar kóreskustelpurnar standa upp á sviði í sní... (hummm) stuttum pilsum og vestrænu strákarnir slefandi á eftir þeim. Hinn staðurinn heitir Zub og er svona aðeins smekklegri að mínu mati.
Allavega, það er langskemmtilegast að fara á skemmtistaði í Sanlitun-hverfinu (niðrí bæ). En það tekur ca 40 min í leigubíl, sem er slatta langt að mínu mati. En það er svo sum fljótlegra á leiðinni heim þegar engir bílar eru á ferð ;)

Ég ákvað að skella með einni mynd af okkur á skemmtistað sem heitir MIX. En þar var frekar sveitt andrúmsloftið.

Þetta eru sem sagt krakkarnir (gvuð eða fullorðna fólkið) sem ég er oftast með.


David, Alexandra, Ciara og ég. Þau eru öll þrjú frá Kanada. David og Alexandra eru kærustupar.

Svo á laugardagskvöldið fyrir viku, þá ákvað ég að hrista af mér mygluna frá því kvöldið áður. Skellti mér í afmæli til Sigga, í almennilegt Íslendingapartý. Naut þess auðvitað í botn að geta talað íslensku!!!


Flotta afmæliskakan:

Sætu Íslendingarnir: Emill kærasti Fanneyjar, Fanney, Siggi afmælisbarn og Hildur!



Svo á miðvikudagskvöldið síðasta þá ákváðum við nokkrar stelpur í skólanum að hafa wine&cheese night. Svo að ég bauð heim til mín nokkrum stelpum: Ciara (Kanada) Emma (Frakkland) og Pien(Holland) En við vorum allar farnar að vorkenna okkur svo mikið og kvarta og kveina yfir Kína, að við þurftum á almennilegu stelpukvöldi að halda. Sem var auðvitað bara gaman. Svo var ákveðið í framhaldi af því að hafa fleiri þema kvöld, beer&nuts, Desperate Housewifes maraþon á 3.seríu og þess háttar.

Hér fyrir neðan er Emma að skera niður brauð og osta!! Algjör Delux matur hér í Kína, en þar sem ég er naut (mikil nautnarmanneskja) þá auðvitað leyfi ég mér þetta þokkalega oft :-D

Get því miður ekki lifað á hrísgrjónum og núðlum alla daga!!!!

Svo var auðvitað skálað, slúðrað og kjaftað fram á nóttu....

Jæja, nú er ég búin að kynna nokkra nýja leikmenn til leiks, eini gallinn er sá að þetta er allt krakkar sem að eru að fara heim til sín eftir próf og ég sé þau ekkert aftur. Reyndar eru David og Alexandra líka í fullu IMBA prógrammi eins og ég, en þau ákváðu að taka 1 ár í Singapore og koma svo aftur til Kína á fjórðu önn. Þannig að þegar ég kem aftur út eftir áramót, þá þekkir maður ekki eins marga sem er frekar fúlt og þarf því að kynnast fólki upp á nýtt.

Jæja, vonandi eruð þið nú að njóta þess að horfa á jólaljósin, hlusta á jólatónlistina í útvarpinu, festa bílinn í snjónum. Auk þess að njóta þess að borða: piparsteik í rauðvínssósu, humar í hvítvínssósu, bláberjaskyr, fisk, kotasælu, ferskt salat sem þið fáið ekki niðurgang af og annað slíkt!!!

Ég veit það allavega með vissu að ég ætla að njóta þess í botn þegar ég kem heim...

Fyrir þá sem ekki vita það þá kem ég heim seint 23.desember og fer aftur út um miðjan febrúar!!! Langt og gott frí á Íslandi!!!

ÍSLAND ER BEST Í HEIMI :-)

Sunday, November 05, 2006

Jakob í heimsókn!!!


Ég var svo heppin að bölva við einn strák í skólanum frá "blogg" vandanum mínum að hann benti mér á þessa síðu: http://anonymouse.org

Sem er snilldar síða fyrir okkur sem erum úti í heimi þar sem allt er ritskoðað og maður má ekki neitt...híhíhí :) Maður sem sagt skellir sér á þessa síðu og kemst frá henni yfir á allt sem maður vill...uss ekki segja neinum...!!

En jeminn eini, hvað mér er illt í maganum. Búin að gúffa í mig nammið sem að mamma sendi Jakob með til mín :) Djöfulli er nú samt kúlusúkk og nóakropp gott ...aaaahhhh....sweet.

Vúff.....eins gott að ég er heima hjá mér en ekki í skólanum....humm....með almennilegt klósett. Trallalla

En ég væri sko til í að skipta á íslensku eðalnammi og
PRADA
töskum hvenær sem er :-D
Anyways..Jakob minn farinn og þá tekur lestur og lærdómur aftur við.


Ég er búin að sýna honum Crem du la Crem af Peking og reyna að sannfæra hann um að flytja til mín. Gengur nú ekki neitt sérstaklega vel...hummm...
Ég reyndi að láta honum líða eins og Lýð Oddssyni, hann fékk humarhala í morgunmat, piparsteik í kvöldmat og gat farið aftur að sofa á morgnanna þegar ég fór í skólann. Hver myndi neita því lífi. Einnig kynntist hann skúringakonu minni sem kemur einu sinni í viku til mín, humm..kannski að hún hafi nú reyndar séð einum of mikið af honum. Því að vegna erfiðleika minna við að skilja kínverksu náði ég því að hún kæmi á þriðjudaginn næst. En ég hélt klukkan 14 en það var reyndar kl 9. Svo að úps...Jakob var bara í sturtu þegar hún æddi inn. Ég gat ekki hætt að hlægja mér fannst þetta allt svo fyndið. En henni fannst þetta sko ekkert tiltökumál. Hélt bara áfram að babbla á kínversku og eina sem ég sagði var bara Ni Hao (halló) og döj döj (já já). Svo reyndi ég að segja við hana kl 14 en hún sagði örugglega (ég skil hana sko ekki) “nei klukkan 9” svo sýndi hún 2 putta upp í loftið. Hummmm... Allir Íslendingar myndu nú taka því sem klukkan tvö. Ekki satt? En allavega nóg bull um það.

Hér koma nokkrar ekta túrista myndir af okkur Jakobi, þ.e.a.s. af mér einni, af honum einum og svo væmin af okkur báðum :) búhahaha En hann var ekkert smá heppinn með veður. Það var eiginlega sól allan tímann. Veðrið er enn rosalega fallegt en samt skítkalt.
Ég byrjaði sem sagt á því að fara með Jakob á Campusinn minn. Þar er afskaplega fallegur gamall garður, með þessum típísku gömlu kínversku húsum. Margir kínverjar sem búa á campus fara þangað til að læra. Þeir sem ekki þurfa að mæta í tíma um morguninn eru sem sagt mættir þangað um 5 eða 6. Reyndar eru þeir líka margir þarna sem liggja á bekkjunum og sofa. Greyin, greinilega dauðþreyttir og fá enga almennilega hvíld út af herbergisfélögunum.
Svo fórum við auðvitað í forboðnu borgina. Leigubíllinn skellti okkur út á röngum stað svo að við fengum far með þessum kalli. Svona pinkulítið mótorhjól í kassa. Svo sátum við aftan á...hehe... þetta var svoldið gaman ;)
En hann ætlaði reyndar að rukka okkur um heilar 400 kr fyrir ferðina. Ég held nú ekki...auðvitað fer maður að hugsa eins og kínverskur stúdent! Og hana nú!!!
Hvað er Kína án þess að fá sér smá te? En eftir forboðnu borgina skelltum við okkur á þetta fína tehús og keyptum okkur sitthvorn tebollann :)
Matseðillinn var skrifaður á blævanginn. Þetta var svoldið öðruvísi og en það er alltaf gaman að fara í smá teboð :9
Hérna stend ég svo við Summer Palace. En það er afsaplega fallegt að labba þarna um í garðinum.








Svo vorum við rosalega dugleg, löbbuðum upp á Fragrance Hill til að horfa yfir Peking og horfa á sólin setjast niður. En ákáðum svo að taka stólalyftuna niður því að það var orðið kolniðamyrkur og kalt...brzzzz. En samt mjög kósý að sitja í 20 min í stólalyftunni og horfa á ljósin yfir Peking og hlusta á náttúruna. (eða hlusta á stólalyftuna braka..múhaha)








Þar sem að Jakob er mikill dýravinur leyfði ég honum að fara með mig í dýragarðinn. En það sem var einna mest spennandi að sjá voru Panda birnirnir. Annars var nú ekki mikið að sjá í þessum dýragarði og vorum við örugglega ekki nema 20 min þarna inni.




Uppáhaldsstaðurinn minn í Peking er HouHai hverfið. En hérna sitjum við sem sagt upp á húsþaki, horfum niður á fjöldann og drekkum bjór. Það er alveg hreint magnað að sitja þarna og horfa á mannlífið. Því að mannlífð er svo frábrugðið vestrænni menningu.

Eftir bjórinn fórum við í hjólreiðatúr um hverfið. En þetta er svona ekta túrista attraction ;) Sátum þarna á meðan lítill kínverji svitnaði að hjóla með okkur :-D

Svo skellti maður sér auðvitað á The Great Wall. Sem er alltaf gaman :)

En vorum svo þreytt eftir labbið upp Fragrance Hill að við tókum cabalinn upp og niður :9



Síðan bauð sendiherrann í Peking okkur í veislu og vá hvað það var góður matur. Maturinn með íslenskubragði....ummm.... jeminn ég held að ég hafi getað borðað endalaust. Lamb, lax, ýmsar sósur...ummm.. ...slurk!!!
Ég er virkilega farin að sakna þess að borða góðan íslenskan mat!




Aðalþynnku maturinn í Kína.

Fórum á smá djamm með Íslendingunum eftir sendiráðið. Þá fengu strákarnir sér allir svona kjöt á spjóti. Þetta er reyndar alveg ótrúlega góður matur. Ég ætlaði aldrei að þora en svo er þetta rosalega gott. Jammí

Síðan skelltum við okkur daginn eftir til Sjanghæ. En þegar við komum á flugvöllinn fórum við með rafsegullest niður í miðbæ. Við fórum sem sagt á 310 km hraða, 30 km á ca 8 mín. Spáið í hraða. Þetta var eiginlega bara eins og að vera í rússubana, nema það að þú ferð á mun meiri hraða.

Sjanghæ er alveg afskaplega skemmtileg borg líka. Mæli ég eiginlega með fyrir þá sem eru hvort sem er að koma til Kína að skella sér þangað líka.
En myndin til hægri er tekin þegar við erum að fara undir vatnið til þess að komst yfir ánna. (sjá vatn á mynd fyrir neðan) En þá ferðu inn í lítið kapalhús sem að dregur þig áfram á teinum. Á meðan horfirðu á ljósadýrð. Þetta var eiginlega alveg geggjað líka ;)
Svo er það fallega útsýnið yfir öll háhýsin. Myndin er bara þúsund sinnum skemmtilegri aðeins stærri.

Jæja, svo Mr. and Mrs. Wong Fu síðasta kvöldmáltíðin. Vorum með þetta magnaða útsýni meðan við borðuðum. En daginn eftir hélt Jakob heim á leið og lokaði hringnum sínum, þ.e.a.s. hringnum í kringum hnöttinn!

Vonandi hafa e-rjar af þessum myndum gefið ykkur smá sýn hvernig Peking er. En hún er nefnilega rosa fín, reyndar fílaði ég hana mun betur þegar Jakob var hérna. En það er svoleiðis með svo margt, skiptir ekki máli hvar maður er svo lengi sem maður er í góðum félagsskap...ekki satt :)

Allavega, bless í bili

Chin Chin og Wong Fu :)