Hong Kong
Við gistum í litlum bæ sem heitir Mu Woi í Lantau Island og tókum 20min ferju á hverjum degi til Central Hong Kong. Hérna stend ég við bryggjuna í Central HK :)
Hér fyrir ofan er sem sagt Silvermine Beach Hotelið okkar í Hong Kong. Stórglæsilegt hótel við ströndina...haha. Engir kakkalakkar allavega ;) Maturinn var reyndar rosalega góður!!
Svo skelltum við okkur í TIVOLI. Sem var auðvitað mjög gaman. Það var uppi á hæð og útsýnið var rosalegt allt í kring.
Ég verð nú auðvitað að láta mynd fylgja af drekunum sem voru úti um allt út af áramótunum. En það er nú reyndar svoldið áhugavert að sjá þá dansa. Ótrúleg fimi sem þarf í þetta.
Svo tókum við þátt í happadrætti rosalega spennt auðvitað en ekki hvað. En í ár er ár svínsins...eða hið Gullna Svín sem er rosalega gott ár. Þannig að núna sér maður nokkrar stelpur í skólanum komnar með bumbu því að það þykir mjög gott að eignast börn á þessu ári :) Og heyrið þið það sem eruð óléttar eða eruð að íhuga það...enn tími ;-D (tími fram í febrúar á næsta ári samkvæmt kínversku dagatali)
Útsýnið frá Kowloon yfir Central Hong Kong var ekki af verri kantinum. Það er einmitt á svona momentum sem maður vildi óska þess að maður væri brjálaður ljósmyndari með þrífótinn sinn og allt til að taka næturmyndir!
Því næst var farið á aðaldjamm svæðið í Hong Kong, Lan Kwai Fong. En þetta er hún Rebekka vinkona hans Jakobs sem tók okkur aðeins á djammið. En ég fékk alveg á tilfinninguna strax að Hong Kong er mikil djamm borg. Enda voru krakkar sem sögðu við mig þegar ég var að spá í að fara í skiptinám til Hong Kong: Það er yndislegt að djamma þar, frábær staður að fara þegar maður er single. Þannig að ég nenni hvorki að verða single né fá hausverk. Svo að ég ætla bara að vera í Peking ;)
Við fórum í smá ferðalag í eyjunni okkar. Sáum Giant Buddha og slíkt. Tókum svo kapal niður aftur að flugvellinum. Það var ekkert smá spúki, það var þvílík þoka efst uppi í fjöllunum. Sáum einu sinni ekki lengra en ca 3 metra framm.
Jæja, ég á erfitt með að velja myndir. Langar helst að setja þetta allt. En einhvers staðar verður maður að stoppa. Ég er pottþétt að gleyma einhverju því að það er svo langt síðan við vorum þarna. Ég skal reyna að vera duglega að blogga svo ég geti bloggað nútímann ;)
Bæjó spæjó!

12 comments:
Vá æðislegar myndir og þvílíkt gaman hjá ykkur! Held samt að þú hafir eitthvað ruglast með 21. mars því þá værir þú ekki farin út :-) Svo þurfum við að fá myndir úr nýju íbúðinni!
Vá - hlakka til að sjá þetta allt í sumar ;O)
Knús, Kris
Loksins ertu farin að skrifa aftur. Þetta hefur verið algjört æði hjá ykkur, ótrúlega gaman að skoða myndirnar.
Kv. Hildur Sig
Ekki alltaf taka mark á bullinu í mér...hehe.
VÁ!! Þetta hljómar allt ótrúlega vel... ég segi bara next stop.. HONG KONG!! Eða allavega eitt af næstu stoppum.. hehe! Hafðu það áfram gott og vertu dugleg ;) Hlakka til að sjá íbúðina líka!
Vó ekkert smá spennó allt! get ekki beðið eftir að koma út til þín... þurfum að finna einhvern góðan tíma sem hentar þér að fá okkur út;o)
hlakka til að sjá myndir af villunni!
xx Rúna
Vá Ásta myndirnar eru ædislegar :) OMG hvad eg hlakka til að sjá þetta allt. Og þvílikir skýjakljúfar þarna vóooo.
xx Magga
Hæ gaman að sjá myndir fæ alveg fiðring...sjæse hlakka til að sjá þetta allt í ágúst og aðalatriðið : ÞIG:*
En gaman að fá fréttir af þér. Þetta hefur verið ævintýraleg og fróðleg ferð hjá ykkur. Hlakka til að sjá og heyra allt um nýju íbúðina. Það gengur vel í vinnunni. Ég er svo ánægð með hjálpina og stuðninginn frá þér í janúar. Gangi þér vel elsku dúlla.
þetta var ég hérna áðan, Ástakveðjur Vilborg
svaka flott allt, maður fær bara í magann yfir öllu þessu fólki og stórhýsum.
kv. Hervör
ja en spennandi!er thetta thoka i tivolinu thvi thid erud svo hatt uppi eda hvad?!
ja og til hamningju med draumaibudina, thær alltaf bestar!
knus fra KBH
hb
Post a Comment