Wednesday, March 28, 2007

Þessi enska hjá þeim....humm...

Hæ hæ


Jæja kínverjarnir eru búnir að loka aftur á blogspot og allt sem heitir blogg eitthvað. Þannig að nú þarf maður aftur að nota leyni síðuna til að skoða bloggið sitt og önnur blogg. Bara láta vita af því að ég get ekki commentað á neinar síður.




Allavega ég er að verða stundum brjáluð á því að hafa kínverja sem kennara og reyndar að hafa bara kínverja hér út um allt ...hahaha!!! Nei nei segi svona, en það er einn kennari sem talar alveg skelfilega ensku. Það er bara enginn sem að skilur hana. Ég er komin með smá orðabók á hana:




Ghoss..humm...já GOALS


Fissssible lution....FEASIBLE SOLUTION


Smoke of the line.....HA..NÚ SKIL ÉG EKKERT...já SLOPE of the line.


Urinely...ha er manneskjan að tala um þvag...nei...USUALLY




Þannig að hugurinn ber mig oftast hálfa leið til Íslands í þessum tíma. Meirað segja greyið liltu kínverjarnir botna ekkert í því sem konan er að tala um og eru því búnir að biðja hana um að kenna einu sinni í viku á kínversku. Og viti menn...hún ætlar að gera það. Sem betur fer ætlar hún líka að kenna einu sinni í viku á ensku, en ég meina.... comm on....það þarf heila orðabók á þessa manneskju. Ég skil ekkert hvað hún bullar allan daginn. Greyið litla konan....eða greyið við.




Svo tók ég upp á þeirri "brillant" hugmynd að þegar ég kæmi aftur út til Kína þá ætlaði ég að vera svoldið dugleg að "mingla" við kínverjana. Gera hópavinnu með þeim og þess háttar...svona smá net working. BIG MISTAKE!!!!!!!! Nei nei, ég má nú ekki alveg vera svona gagnrýnin. En jeminn, þetta er ágætt reynsla svo sem. Maður lærir allavega aðeins að rífast og láta ekki vaða yfir sig. Þess má geta að flest allir Kínverjar sem eru með mér í bekk eru einkabörn. Jújú, út af one children policy. Síðan eru þetta venjulega krakkar sem eru bestir í sínum héruðum um allt Kína. Úff...þetta getur tekið vel á. Svo þegar þau geta ekki útskýrt fyrir mér á ensku hvað þau eru að hugsa, þá skipta þau fljótt yfir í kínverskuna og maður heldur bara áfram að blása kúlur með tyggjóinu og horfa út í loftið á meðan þau rífast...NB RÍFAST... á kínversku. En þetta getur líka stundum verið mjög fyndið og ég fer bara að hlægja og þá horfa þau og mig og fara bara líka að hlægja. Hlátur og bros virka nefninlega alveg ótrúlega vel hérna ;-D




Svo að á svona frekar "pirrings dögum" þá er um að gera að dekra við sig. Svo að við Stefanía (sem er nýkomin til Peking mér til mikillar ánægju) og Lauren vinkona hennar skelltum okkur fínt út að borða síðustu helgi.


Bless í bili...
xxx

7 comments:

Anonymous said...

Ahaha jiminn eini eg trui thvi ad thetta geti verdi treytandi med enskuna ;)
Bid rosa vel ad heilsa Stefaníu, ædislegt ad hun sé komin út. Býr hún rett hjá ther?

knus Magga

Anonymous said...

Hæ elsku Ásta. vá hvað þetta hljómar eins og stór hausverkur með alla kínverjana að rífast í kringum sig. En góð og aðdáunarverð tilraun hjá þér samt með minglið;) Þú ert svo dipló

Bestu kveðjur,
Hervör

Inga Lára said...

Hahahahaha sé þig alveg fyrir mér halla þér aftur í stólnum og blása tyggjókúlur á meðan þeir rífast!! Snilld!!

Rúna said...

vó - ekkert smá fyndið, þú verður eiginlega að halda þessari orðabóka til haga!

xx Rúna

Anonymous said...

paaaahahahahaha...þetta er yndislegt ;-D

Anonymous said...

Mjög spes... þetta eru ótrúlegar aðstæður sem þú ert í oft á tíðum, eða réttara sagt alla daga! ÁFRAM Ásta! HROSSAKOSS

Anonymous said...

Halló Ásta mín.
Gleðilega páska.
Gott að sjá að þú er kominn í nýja og fína íbúð. Allt gott héðan.
Gangi þér vel.
Kv.og knús Tobba