Wednesday, March 21, 2007

Nýja íbúðin mín

Jæja, þá kom að flutningsdeginum mikla :) LOKSINS!!!

Ég verð nú að viðurkenna það að ég var svoldið stressuð. Ég flutti um kvöld ca klukkan 11. Ég fékk kínverskt flutningafyrirtæki til að koma og ná í allt fyrir mig. Þannig að um klukkan 11 mætti risastór bíll til að taka fimm ferðatöskur og nokkra pappakassa :) Þetta voru bráðvaskir fimm litlir kínverjar sem höfðu ekkert fyrir þessu. Skelltu bara töskunum á bakið og hlógu og hlógu. Sem betur fer fékk ég Jo og Jerry bresku vini mína til að hjálpa mér að standa vörð um farangurinn minn meðan þeir hlupu með hann milli hæða.
En jú ég kvaddi gömlu íbúðina mína...og hugsaði með mér...úfff...ég vona að ég sé ekki að fara úr öskunni í eldinn. Ég hef nú aldrei lent í neinum vandræðum í gömlu íbúðinni og alltaf liðið vel þar. Er ég ekki örugglega að gera rétt....ójú...losna við landlordinn sem reyndi við mig og fá gott eldhús og gott baðherbergi :)


Ég hefði nú aldrei getað gert þetta án þess að hafa Jo & Jerry. En Jo talar alveg perfect kínversku og gat hjálpað mér með öll samskipti við "flutningskallana". Hér fyrir neðan situm við tvær frammí hjá bílstjóranum sem var alveg afskaplega vel skemmt :)


Þetta er inngangurinn að íbúðinni. Áramótatréð stendur reyndar ekki þarna ennþá. Eins og sjá má er ég alveg hæst ánægð með að hafa fundið þessa íbúð. Ég ætla bara að skella nokkrum myndum hérna fyrir neðan....













Ójújú, mín er búin að skella sér í sund!!!
Sem telst mikið kraftaverk fyrir þá sem þekkja mig vel. En dagurinn byrjaði reyndar á að fara niður í ræktina, svo í sund og gufu. Það er mjög mikill munur að hafa svona í húsinu heldur en að þurfa að ferðast í 20min til að komast í ræktina sína.

















Svo varð ég auðvitað að taka eina mynd út um stofugluggann. Ég er mjög fegin að það séu ekki hús beint fyrir framan gluggann minn. Ég er með svona smá útsýni. Það sést í góðu skyggni í fjall þarna á milli húsanna. Sólin sest eiginlega þar niður ;)

En íbúðin sem ég bý í heitir the Somerset, svoldið mikill munur á þessu húsi og húsinu mínu gamla þar sem fólk hafði dúfur úti á svölum. En auðvitað er alltaf gaman að hafa prófað að búa í kínverskuhverfi og hefði ég ekki viljað sleppa því. En 6 mánuðir eru alveg nóg fyrir mig, ég er of mikill Íslendingur ;)

11 comments:

Anonymous said...

Geggjað flott íbúð, til hamingju.

Hervör

Unknown said...

Vá congrats - ýkt flott með laug og alles!

Unnur Ylfa said...

vá alveg glæsileg íbúð og ekki er nú verra að hafa sundlaug og líkamsræktina og útsýnið geggjað.

Alltaf jafn gaman að fylgjast með þér og sjá myndir :)

Við Andri Þór biðjum að heilsa.

Kveðja,
Unnur Ylfa

Anonymous said...

Hej skat til lukku með nýju íbúðina. Lítur ædislega út. Rosa flott einmitt ad hafa sundlaug og gym á sama stað.

Anonymous said...

oh my bagels,eru viss um thetta se ekki hotel?
thetta er alveg storglæsilegt og thad er svo mikilvægt med first impressions, ef thu varst spennt i ibudinni fra byrjun, it´s the one!
knus
hb

Anonymous said...

Jii en æðisleg íbúð..til lukku með þetta skvísí pæ ;o)

//svana

Anonymous said...

Þetta lítur ekkert smá vel út!! Til hamingju með nýju húsakynnin ;)

Rúna said...

ú - geggjuð íbúð! Ýkt gaman að heyra í þér um daginn og nú eru bara 4 vikur í að þú komir heim - tíminn líður ekkert smá hratt, jæja, ætla að hunskast til að byrja að læra... búin að fresta því núna í 2 tíma;o(

xx Rúna

Anonymous said...

Innilega til hamingju með þessa frábæru íbúð, hún lítur rosalega vel út.

Kv. Hildur

Anonymous said...

vó hvad mig langar i laugina!!! lítur mjog vel út:)

Anonymous said...

Djííí ekkert smá flott íbúð! Ha! Hún er æði, þetta lítur út eins og svíta. Sé alveg í anda hvað þú hefur það huggulegt þarna. Vilborg