Hamrahlíðakórinn var í heimsókn um daginn, ca 50 manns. Svo að mín var mætt í sendiráðsbústaðinn eitt laugardagskvöldið til að hitta fólk og kynnast því. Sjá svona hvort að maður myndi ekki þekkja einhver andlit.
---------------------------------------------------------------
Vá ég heyri þennan æðislega söng þegar við göngum inn um dyrnar. Ég svíf þarna aðeins um, næ mér í eitt hvítvínsglas og hlusta á fagran söng og brosi með. Ég er komin með gæsahúð við eitt lagið, þetta er nú rosalega vel gert hjá þeim hugsa ég. Svo eru nokkur lög búin og maður klappar svo kemur annað lag, ég klappa, og svo annað lag....klappa....lag...klappa....lag... klappa.
Ég hugsa með mér: "hhumm...maturinn kominn á borðið, þá hætta þau nú aðeins að syngja og borða" Ohh...nei...þau labba um matarborðið og ná sér í mat og syngja hástöfum. Ég hugsa með mér: "vá þvílíkur hæfileiki að geta borðað og sungið í einu, æ taka þau sér ekki smá pásu, þau eru búin að syngja núna í 2 tíma, mig langar að spjalla við fólk" Það er þá ekkert annað í boði en að svolgra sér aðeins á hvítvíninu.
Eitt svaka hresst lag sem þau eru núna að syngja og ekki nóg með það að þau dansa líka. Þetta er nú hresst og skemmtilegt hugsa ég. Nokkrar stelpur kippa í Kínverja sem eru þarna og dansa við þá. En gaman að sjá þetta...hugsa ég og smelli af nokkrum myndum.
Á milli laga má allt í einu heyra kallað: Ást, Friður....
Ég hugsa með mér: "vá mér líður smá eins og á trúarsamkomu" Svo breytist aðeins lagavalið og þau syngja svoldið þung lög. Allt í einu sjást eitt og eitt stelpu andlit með rauð augu. Ég hugsa með mér: "shit, eitthvað hefur komið fyrir"...hjartað í mér tekur smá kipp, ég reyni að horfa inn í hópinn...en sé ekkert. Trufla þá sönginn hjá einum og spyr : "er ekki allt í lagi, kom eitthvað fyrir?" Þá er svarað:"jú, við erum bara svo tillfinninganæm, það eru svo margar tilfinningar í gangi í hvert skipti sem við syngjum saman." Ein stelpa hleypur upp hágrátandi, ein er inni á baði grátandi og tvær frammi með rauð augu.
Ég hugsa aftur "þetta finnst mér smá skrítið, af hverju hætta þau ekki að syngja svona sorgleg lög sem minna alla á sorglega atburði. Íslensk lög eru kannski bara sorgleg" Allt í einu kemur rosa þögn eftir eitt lagið og enginn segir neitt. "OK nú hefur eitthvað gerst" hugsa ég. Svo heyrist bara kallað Ást, Friður.....og fólk kveður sendiherrann eitt og eitt af öðru syngjandi og labbar út í rútu.
Ég hugsa með mér ...úffff...men hvað ég er lítil listaspíra og svolgra mér aftur ofan í hvítvínsglasið.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Kórinn að syngja, vil ég taka fram að hann er alveg rosalega góður. Þau syngja alveg meiriháttar vel og mæli ég með honum ;) 
Dansinn, sem mér fannst alveg brilliant hugmynd hjá þeim. Ég er svo mikil skræfa að aldrei myndi ég kippa í Kínverja og fara að dansa við hann. Two thumbs up :)
Auðvitað nældi ég mér í Seltirning til að tala við :Þ
(við töluðum aðeins saman meðan kórinn var að syngja) Mér til mikillar gleði, þ.e.a.s. þá fékk ég smá að myngla við fólk!!!
Kínverjarnir, sem að ég held að hafi liðið eins og mér á Peking Operunni :Þ
Eða kannski ekki....ég hló svo mikið með mömmu þar !!!