Takk fyrir mig :)
Hæ hó
Ætli maður verði ekki að fara að blogga aftur áður en alltof mikið hefur gerst og maður veit ekkert hvar maður á að byrja.
En Magga, Kristín, Þórdís og Guðrún Margrét voru hjá mér í lok ágúst og í byrjun sept. Það var alveg yndislegt að fá þær svona rétt til að sýna þeim lífið í Peking.
En við náðum að gera alveg heilan helling. Strax á fyrsta degi var komin dagskrá fyrir næstu viku: Silki markaðurinn, fara til Toby saumakalls, forboðna borgin, torg hins himneska friðar, Hou Hai, Hutong Pizza, Simatai Great Wall, Peking University, Summer Palace, Nudd & neglur, Temple of heaven, Olympíu leikvangurinn, Wang Fujing, Beijing Duck og ég veit ekki hvað og hvað.
Við tókum alveg heilan helling af myndum og er ekkert smá erfitt að velja hvaða myndir fá að fara hingað.
Svo ákváðum við að fara á múrinn, Simatai. En ég var mjög fegin að fara með þær þangað frekar en á Badaling (sem er nær Peking) því að það er svo mikið túrista bæli. Hérna er hægt að taka myndir án þess að kínverjar troði sér líka inn á þær ;)
Dekurdagurinn okkar: vaknað seint og farið í kínverskt nudd sem var svo gott að við þurftum líka að skella okkur í fótanudd. Kínverjinn sem nuddaði lappirnar hennar Tótu var orðinn algjörlega ástfanginn af henni. Fannst hún svo falleg, með góða húð og í góðu líkamlegu ástandi :) Auðvitað þurftum við líka að láta laga naglaböndin okkar og lakka neglurnar.
Torg hins himneska friðar...
Það kemur sko enginn í heimsókn til mín án þess að prófa Hutong Pizzu ;) Mynd af Mao sem er á torginu. Ákváðum að vaka til kl 05:40 til að ná athöfninni sem er við sólarupprás. En það eru verðir sem að þramma um torgið við drungalega tónlist og fáni dregin að húni. Þetta var alveg mögnuð stund sem ég hafði ekki nennt að gera hingað til. (þá hvorki að vaka svo lengi né að vakna svo snemma) Þannig að það var alveg tilvalið að nýta sér djammfélagana til að vaka með manni ;)
Kristín í "tennis" og stendur sig ekkert smá vel. Þetta er tekið í Temple of Heaven.
Kínversk tónlist..hver dæmi fyrir sig ;)
En mér þykir ekkert smá vænt um að þið skylduð geta kíkt á mig. Takk æðislega fyrir frábæran tíma stelpur!!!! RISA KNÚS FRÁ KÍNA
Nú mana ég bara ykkur hin til að koma líka.....double dare you....meirað segja!!!
koss og knús Ásta

13 comments:
Ég ætla að vona að Berglind dúkkulísa hafi verið með... ;)
Nei, segi svona. Vildi að ég gæti komið að heimsækja þig líka... er að deyja úr ferðaþrá, er að spá í að gerast professional ferðamaður.
risaknús frá Fróni
Gaman að sjá hvað þið hafið skemmt ykkur vel stellurnar. Fínt að lesa bloggið þitt aftur snúllan mín. Keep up the good work!
Frábært að geta skoðað video klips og skemmtilegheit. Fínir taktar í tennisnum.
Kv.SM
Ahhh good times!!! :D
Takk kærlega fyrir okkur. Þetta var ALGJÖR snilldarferð :)
Koss og knús til Kína frá Kris
hvað eru mörg ká í því?
Takk fyrir mig, þetta var ÆÐISLEG ferð í alla staði!!
Takk fyrir síðast skutla. Þetta var svo geggjað að ég gæti hneggjað. Enn og aftur takk fyrir frábærar móttökur! Sí jú
þetta er frekar skrýtið ég er oft búin að kíkja síðustu tvær vikur á síðuna þína, en svo kemur allt í einu blogg dagsett 9. september og ég alltaf að kíkja. Ég hlýt að vera eitthvað eftir á í þessu. Mjög skemmtilegt að sjá myndir.
kv. Hervör
Halló Ásta mín.
Takk fyrir síðast.
Ég var farinn að bíða eftir að þú bloggaðir gaman að lesa um ævintýri ykkar vinkvenna.
Hafðu það gott.
Kær kv. Tobba
Hæ skvísípæ!
Loksins kom blogg, það er svo gaman að fylgjast með þér elsku Ásta. Frábært að geta séð videótökur. Flott dagskrá hjá ykkur. Nú langar mig ennþá meira að koma til Peking. En ég held að það verði því miður ekki af því fyrir jól. Hver veit hvað gerist á næsta ári ;)
KOSS
Vilborg
hæhæ, skemmtilegar myndir! ég hefði sko ekki getað farið í fótanudd með ykkur... you know why
xx Rúna
Ohh thetta var alveg geggjud ferd i alla stadi, Innilega takk fyrir mig! Ógisslega gaman ad skoda myndirnar! B-)
knus og kossar Maxy
jiiii - maður fær bara "heimþrá" - vá hvað maður saknar beijing... toby, beijing duck, san li tun og allt bara. gott að heyra að þú skemmtir þér vel, verst að hitta þig ekkert í asíunni.. hafðu það rosa gott. knús*
Hæ skvísí pæ...
Yndislegt að vera farin að fá blogg aftur frá þér =)
Hlakka til að sjá þig tja já kannski bara á morgun ;-D en verðum að láta hitting í Qingdao duga í bili...svo aldrei að vita nema maður komi næst til Peking...haha ;-D
Kossar og knús,
Svana
Hæ hæ
Gaman að þú ert farin að blogga aftur. Ég var nú soldið mikið öfundsjúk að lesa um ferðasöguna hjá stelpunum, en..... vertu nú dugleg að skrifa.
Post a Comment