Allt að gerast!!!
Hæ hæ
Daginn eftir kynnti Bryndís (sem er líka að læra kínversku hérna) okkur fyrir Mexíkönskum stað. Og ég skyldi ekkert um daginn þegar stelpa sagði við mig í skólanum að ég væri eiginlega ljóshærð fyrr en ég sá mig á þessarri mynd. Held að sólin sé að lýsa á mér hárið smá. Hummm...
Einnig er ég búin að fara í fyrirtækja heimsókn til Lenovo. En Lenovo er kínverskt fyrirtæki sem keypti IBM árið 2005. Alveg hreint ótrúlegt að það skuli vera hægt. En það var alveg æðislega gaman að sjá verksmiðjuna og hlusta á fyrirlestur. Þúsundir af kínverjum að búa til tölvur. Svo í einu herberginu voru nokkrir að prófa gæðin í tölvunum og voru þá bara að leika sér í tölvuleikjum, hlusta á tónlist og horfa á kvikmydnir. Hahaha þvílík vinna :) En það var bannað að taka myndir en ég tók myndir af skónum okkar Jo :)
Síðasta mánudag þá leið mér eins og ég væri allt í einu komin í verkfræði. En í einum tíma áttum við að búa til fyrirtæki og vinna eins og í verksmiðju. Áttum að búa til ákveðna vöru og koma henni til viðskiptavina á ákveðnum tíma (smá færibandavinna). En þetta var eiginlega alveg brillant gaman, allir mjög kappsamir að vinna leikinn og vera það fyrirtæki sem að myndi skila mestum hagnaði. En okkar hópur lenti í öðru sæti sem mér finnst bara mjög gott :)
Jæja, nú er stutt þangað til maður kemur heim til Íslands...aðeins sólarhingur. hlakka til að sjá ykkur!!
Here I come :)

2 comments:
vá þú ert orðin blondie - velkomin í hópinn!!! hehe.
Sneddý að leika túrista í heimalandinu. Sérstaklega gott fyrir okkur sem heimsækjum þig svo þú vitir upp á hár hvert er skemmtilegast að fara.
see you soon ;O)
Til hamingju með nafnið, Hervör sagði mér að hún hefði verið skírð í gær. Fallegt nafn á fallegri dömu.
xx Rúna
Post a Comment