Tuesday, May 22, 2007

Takk :)

Hæ hæ
Takk kærlega allir fyrir afmæliskveðjurnar :) Ekkert smá gaman að heyra frá ykkur...
En síðasta vika er búin að vera alveg æðisleg. Ég skellti mér auðvitað í manicure og pedicure á afmælisdaginn. Svo um kvöldið fórum við stelpurnar, (Stefanía, Bryndís og Erla) út að borða á ítalskan veitingastað. Sátum úti í alveg dúndur góðu veðri. Maður hefði þess vegna geta verið staddur á Ítalíu þetta var svo æðislegt. Gleymdi bara því miður myndavélinni minni.
Svo vorum við svo rosalega sniðugar að við fundum hótel með úti sundlaug og skelltum okkur í sólbað á föstudaginn. Vorum bara mættar þangað um 11 og lágum á sundlaugabakkanum til klukkan þrjú í ca 32 stiga hita. Aldrei datt mér nú í hug að maður gæti gert þetta í Peking...en allt er nú hægt ;)
Á föstudagskvöldið hélt ég smá partý með Jo. En hún Jo á afmæli 17.maí svo að það var alveg tilvalið að bjóða nokkrum í smá djamm. Það var alveg dúndur stuð. Ég keypti OPAL skot þegar ég var á Íslandi og kom með þetta með mér til baka til að leyfa útlendingum að smakka og þetta bara sló svona rosalega vel í gegn ;) hehehe
Á laugardaginn var maður mættur aftur í Lama Temple-ið, aðalfundur Íslendingafélagsins í Peking. Röltum um það og fengum okkur svo að borða á kínverskum veitingastað. Og viti menn, ætli maður sé ekki bara orðinn formaður Íslendingafélagsins hér í Peking. Svo að nú er næsta plan að undirbúa 17.júní hátíð Íslendinga í Peking ;)
Ja hérna megin....
Þess á milli er ég á fullu í skólanum, var að halda fyrirlestur í dag fyrir framan 20 lögfræðinga...það tók nú smá á taugarnar því að svo gusuðust bara yfir flóknar spurningar. En það gekk nú vel að lokum. Síðan var einn Þjóðverji að segja við mig að hann skyldi ekki neitt...spurði mig svo hvað þýðir "ratio" og við vorum í fjármála tíma. Ég var ekki viss hvort að hann væri að gera grín af mér eða hvað. Það er nefninlega alveg magnað hvað margir nota orðatiltækið hérna: "but english is not my native speaking language" Hvort sem er Þjóðverjar eða Kínverjar...spurning hvort að maður fari ekki bara að segja þetta líka:
"I DON´T UNDERSTAND...ENGLISH IS NOT MY NATIVE SPEAKING LANGUAGE...SORRY!" Annars lenti ég nú í Þjóðverja sem vorkenndi mér svo mikið að vera frá Íslandi að það væru örugglega engin atvinnutækifæri fyrir mig þar. Sagði svo við mig: eins gott að þú talar smá dönsku þá geturðu farið að vinna fyrir danskt fyrirtæki. Ég benti honum nú bara nett á það að nokkrur góðir frumkvöðlar á Íslandi ættu nú bara ansi mikið af dönskum fyrirtækjum... ..humm..hehe :)
Anyhow, vonandi var helgin nú góð líka hjá ykkur...
..læt hérna nokkrar myndir fylgja með...reyndar er ég nú ekki búin að vera dugleg að taka myndir :/


Wo, Lauren frá USA og Jungim frá S-Kóreu


Sætu skvísurnar sitja úti á verönd sötrandi Strawberry Daquirí


Íslendingahópur í Lama Temple að hlusta á leiðsögumann :)

5 comments:

Unknown said...

Vá frábær afmælisdagur :)

Ekki vissi ég að maður gæti legið í sólbaði við sundlaugarbakka í Peking, en það er núna komið á to-do listann!

Anonymous said...

Hæ skvís og innilega til hamingju með daginn um daginn. ég heyri að þú hefur haldið vel upp á hann. Núna get ég farið róleg að sofa þegar ég veit að íslendingafélagið í Peking er í góðum höndum!!! Til hamingju með stöðuna. það verður örugglega þrusuhátíðarhöld 17. júní. Keep up the good work!
luv
guðrún m

Anonymous said...

úúú nice hjá þinnz...bara beeelaður hiti og alles...minnz langar í SUMAR OG SÓL...hérna skiptist á bara að vera sól, haglél, snjókoma og bara name it...núna er reyndar sól en brrrr hrikalega kalt...geturu ekki pakkað niður smá sól og hita og sent með hraðsendingu til okkar á klakanum?? hehe...
Haltu áfram að hafa það svona gott skvísí pæ ;*

Rúna said...

Geðveikt, gott að það sé hægt að sóla sig þarna... ekki bara í pústi heldur alvöru sól! Ég veit nú ekki hvað yrði sagt ef ég mætti með mínar tær í manikjúr ... yrði örugglega neitað um þjónustu, hehe! xx Rúna

Anonymous said...

Oh.....mættu fleiri taka sér þá til fyrirmyndar....hvað maður hefði getað sloppið við margt hneykslismálið ef bara!!!!
Kv.
SM