Hitt og þetta
Hahaha...ég er svo hæfileikarík eða þannig.
Ég var rétt í þessu að elda, keypti mér kjúlla í Jenny Lous. Ætlaði að vera svaka dugleg að elda, en ekki borða núðlur, pasta eða jógúrt.
Jújú, mín byrjar. Gasið auðvitað svoldið fljótt á sér. Rétt búin að láta olíuna á pönnuna þegar allt rýkur upp. Fer þá fram og fer úr peysunni því að ég vildi ekki fá steikingarlykt í hana. Stend við eldavélina á hlýrabol þegar bjallan hringir. Humm...hver ætli þetta sé. Skelli mér aftur í peysuna. Nei nei...Ætli slökkvuliðið sé ekki mætt!!! Nei OK smá ýkt en einn öryggisvörðurinn niðri spyr mig hvað sé í gangi...og síðan spyr hann mig hvort að ég sé að elda og horfir inn á reykinn. JEMINN eini hvað mér leið ömurlega. Mér leið nú samt vel vitandi af því að þeir fylgjast vel með íbúunum í blokkinni. Hvort að það sé verið að kveikna í e-rj staðar. En ég vil taka það fram...þetta var ekki mikill reykur OG reykskynarinn minn fór ekki í gang!!! En DAMN ÉG ÆTLA ALDREI AFTUR AÐ ELDA. Jakob þú verður að sjá um eldamennskuna...ég bara kann það ekki.
Ég er ekki búin að vera nógu dugleg að blogga sem er bara alls ekki nógu gott. Það gerist alltaf svo rosalega margt í hverri viku hjá mér.
En svo ég byrja á réttum stað þá kom Jakob í heimsókn til Kína. Ég bara næ því ekki hvað það er sem hann vill alltaf sjá hérna. Hann bara dýrkar Kína !!! ;)
Við hittumst í Shanghai. Ég mætti aðeins fyrr til að versla, en því miður var e-r maður sem vildi stoppa mig í því og stal veskinu mínu. Ansans!!! (ætla rétt að vona að Jakob hafi ekki staðið á bak við það og reynt að stoppa mig, hann er náttúrulega komin með gífurleg sambönd við kommúnistana hérna...hehehe)
Allavega, ÉG LÆT HÓTELIÐ VITA AÐ VISA KORTINU MÍNU VAR STOLIÐ, að ég hafi þurft að loka því og að kærastinn minn komi á mánudaginn til "dekka" restina af reikningnum. OK ekkert mál, þeir hafa nú örugglega lent í þessu áður. Þannig að mín var stödd í Shanghai með nokkra aura á sér. Eins gott að ég er á góðu hótlinu, hugsa ég með mér. Strauja þá bara reikninginn vel og fæ mér e-ð gott að borða á hótelinu.
Daginn eftir labba ég í sakleysi mínu niður í lobbý. Dunda mér aðeins meðan ég bíð eftir Jakobi. Svo allt í einu heyrist kallað hátt og skýrt: HEY MISS THE VISA CARD NUMBER YOU PROVIDED IS STOLEN. YOU ARE USING A STOLEN VISA CARD. IT DOESN´T WORK. Öll augu beindust auðvitað beint að krimmanum. Djöfulli fríkað ég út!!! Þarna stóðum við báðar á miðju gólfinu í lobbýinu ég gargandi á hana og hún á mig. Ufff men, hvað ég var pirruð. En svo skyldi hún mig og varð rosa sorry. En manni finnst bara að þetta eigi ekki að gerast á flottum hótelum :/
Daginn eftir labba ég í sakleysi mínu niður í lobbý. Dunda mér aðeins meðan ég bíð eftir Jakobi. Svo allt í einu heyrist kallað hátt og skýrt: HEY MISS THE VISA CARD NUMBER YOU PROVIDED IS STOLEN. YOU ARE USING A STOLEN VISA CARD. IT DOESN´T WORK. Öll augu beindust auðvitað beint að krimmanum. Djöfulli fríkað ég út!!! Þarna stóðum við báðar á miðju gólfinu í lobbýinu ég gargandi á hana og hún á mig. Ufff men, hvað ég var pirruð. En svo skyldi hún mig og varð rosa sorry. En manni finnst bara að þetta eigi ekki að gerast á flottum hótelum :/
Ég var auðvitað fljót að róast þar sem Jakob var að renna í hlað. Í Shanghai var alveg hellingur af fólki. Ég hef sjaldan séð annað eins. Maður labbaði í takt við næsta mann á undan og gat ekki farið til hægri eða vinstri. Gat svo sem sagt mér það sjálf þar sem það var national holiday. Eins og í versta troðningi í austurstræti á menningardeginum. Útsýnið frá hótlinu okkar sést hér á myndinni! Svo að við Jakob vorum alveg rosalega sátt við það að vera upp á lounge á 60 hæð á hótlinu, horfandi niður á maurana, drekkandi rauðvín :) Sweetie life!!!!!
Var e-r að tala um fuglaflensu????hummm Þessi er tekin á götum Shanghai borgar
Gamlahverfið í Shanghai
Krúttulega börn að leik í Shanghai




Kínamatur sem öllum finnst nú svo góður - og Art District 798 hverfið sem var alveg afskaplega skemmtilegt.
Eftir 3 daga í Shanghai skelltum við okkur til Qingdao. Eftir einn dag í Qingdao fær Jakob þessa hrikalega matareitrun. Ég fæ alveg hroll enn núna þegar ég hugsa um það hvernig honum leið greyinu. En sem betur fer er maður ávallt viðbúinn og ég gat skellt nokkrum lyfjum ofan í hann og hann var orðinn sprækur eftir 2 daga.
Tsingdao verksmiðjan, vinsælasti bjórinn í Kína. - Líst ykkur ekki vel á að liggja á þessarri strönd í Qingdao!!! Uff ekki veit ég það :)
Eftir Qingdao vorum við bæði sammála um að fara aftur heim til Peking. Alveg ótrúlegt hvað maður er farinn að fíla borgina mikið. En það tók nú samt smá tíma.
Í Peking prófum við nýja staði. Gerðumst mjög menningarleg og fórum í Art District 798 hverfið, sem var afskaplega sjarmerandi hverfi. Fórum svo á kínverska acrobat sýningu sem kom Jakobi skemmtilega á óvart. (Hann var ekki að nenna, svo næst dreg ég hann í kínversku óperuna)
Kínamatur sem öllum finnst nú svo góður - og Art District 798 hverfið sem var alveg afskaplega skemmtilegt.
Svo bauð ég Jakobi í rómantíska siglingu á the BOND í Shanghai. Hummm...hver dæmi um rómantík fyrir sig!!!
Allavega, svona var nú ferðalagið okkar í þetta skiptið.
Hafið það gott...
xxx Ásta


4 comments:
ohh, ég vildi að ég gæti komið í heimsókn, en sögur af matareitrun og fuglaflensutákn koma því miður endanlega í veg fyrir það að maður geti dregið bumbuna út með sér. Hún biður að heilsa þér;)
Hervör
Hæ skvís
Gaman að fá loksins eitthvað á bloggið. Vertu nú dugleg að skrifa því það er svo gaman að fá fréttir af þér ;-)
kv, Rannveig
Loksins skrifar þú kona! Ég var alveg hætt að kíkja á síðuna :Þ
Ég hef nú heldur ekki góða reynslu af gasinu þínu, hehe. En mér finnst nú að þú ættir að kaupa þér nýjan skynjara - djís!!!
...ætli þeir séu með faldar myndavélar í öllum íbúðum?
hæ og gleðilegt ár...
koma svo, blogga meira!
kv frá brooklyn
doddi
Post a Comment