Friday, March 14, 2008

Komin aftur út

Þá maður kominn aftur til Kína. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða og að þetta sé að verða búið, 2 ár bara flogin frá manni.

En ég stoppaði í Kaupmannahöfn hjá Möggu, Guðrúnu Margréti og Hildi Björk á leiðinni út. Það var auðvitað bara yndislegt að rifja upp gamla tíma. Þetta mynnti mig óneitanlega á þegar við Magga vorum skiptinemar haustið 2003 í Koben, kannski ekki margt breyst síðan þá. Svo bauð Hildur Björk okkur í alveg rosalega góðan mat eitt kvöldið. Jammí...og takk fyrir mig :)

En það er töluvert margt búið að gerast frá því að ég kom aftur til Kína. Auðvitað er maður búinn að mæta í sendiráðsboð þar sem íslenskir krakkar úr MBA náminu í HÍ voru í heimsókn. Það líktist nú ekki heimsókn Hamrahlíðarkórsins enda verður seint hægt að slá hann út.

Svo er maður auðvitað búinn að skella sér í nudd. Við Kolbrún skelltum okkur á Bodhi og fengum eitt stk hláturkast. En svo vildi skemmtilega til að nuddarinn minn (KK) ætlaði að fara að teygja e-ð á mér. Ég veit nú ekki hvað hann hélt, en ég held að hann hafi búist við því að hann gæti lyft löppunum mínum beinum upp að eyrum. En svo vildi nú ekki til, heldur gat hann bara rétt svo lyft þeim ca 90°. Ég fór auðvitað að hlægja því þetta var e-ð svo vandræðalegt og hann sagði bara: “ó, you don´t exercise, you have to exercise” Og horfði á mig alvarlegum augum. Svo hélt hann áfram að hrista á mér rassinn og ýta spik...nei húðinni minni...upp og niður. Allavega, eftir þetta óskaði ég eftir því að fá mér nuddara sem talaði ekki ensku. Mér líður bara mjög vel að segja alltaf: “wo bu dong” eða ég skil ekki :)

Síðan var ég líka mjög dugleg og skráði mig í Business Chinese og regular Chinese. Mæti núna 3svar í viku 3 tíma í senn. Kennarinn þar sagði að ég væri alveg eins og bangsi, svo hló hann bara. Og ég hló aðeins ytra...en ekki inn í mér.

Uffff... það er alltaf svo gaman að þessum kínverjum. Nuddarinn hristi spikið og sagði að ég verð að hreyfa mig og kínversku kennarinn sagði að ég væri eins og bangsi!!!! :)

Hvernig er eiginlega hægt að túlka það....

Allavega, ég held ég láti þetta nægja í bili.
Kveðja frá Kína

No comments: