Thursday, March 20, 2008

Spæjarar að loka á okkur!!!

Oooohhhh....ég kemst ekki inn á mbl og vísi.
Hef heyrt að það sé út af því að það sé verið að mata okkur hér með upplýsingum sem við megum lesa og upplýsingum sem við megum ekki lesa. Hvað er eiginlega verið að skrifa um á mbl og vísi núna. Þið getið svo sem lesið aðeins á milli línanna áður en ég gerist of pólitísk.
En er þetta árið 2008 eða..... þetta gerir mann bara reiðan og pirraðan.
En málið er nú bara að mig langar að lesa stjörnuspána mína og etv hvað sé að gerast með krónuna.
Er ég rík í dag eða ekki rík....
Kemst ég í nudd...eða er nuddið 20% hærra í dag en í gær osfrv....
Hvað er að frétta af Posh og Beckham....
Allt voðalega saklaust sem ég vil lesa mig til um.
$%&//#$
Ásta reiða

1 comment:

Unknown said...

Var bara að sjá linkinn á síðuna þína af Hall-síðunni okkar. Frábært að geta fylgst með þér! Ég sendi þér örugglega póst fljótlega og fæ kannski að sjá hvort þú getir gefið mér smá upplýsingar því ég hugsa að MA-ritgerðin muni tengjast Kína að stóru leyti... ásamt Ástralíu og Íslandi... segi þér betur frá síðar...

En hafðu það rosa gott Ásta mín....
Sendi mínar bestu kveðjur frá Ástralíu yfir til Kína :)
Heiður