Wednesday, March 26, 2008

Páskadagur

Þá er maður búinn að skila af sér "first draft" af lokaritgerðinni. Sem er mikill léttir :) Svo að ég fór í gær í nudd og slappaði af.


Annars skellti ég mér með Kollu og íslenskri vinkonu hennar á Hilton á páskadag, smá lunch. En maturinn þar var auðvitað bara himneskur. Síðan röltuðum við um Art District 798 hverfið.


Vinkona hennar var svo dugleg að láta sauma á sig hjá Toby að maður fer alveg á flug sjálfur og því langar mig að gera hitt og þetta. Komst svo að því að hann býr til skó líka. Þannig að hann getur coperað uppáhaldsskóna mína og ég get fengið þá í öllum litum. OMG...ég vissi ekki hvert ég ætlaði.


Svo að nú kalla ég hann COPY TOBY!!!


Síðan komust þær í geggjaða töskubúð sem er svona.. usss usss búð, þannig að ég bíð núna bara eftir mömmu og pabba og ætla að draga mömmu með mér þangað ;) Efast nú samt að ég þurfi að draga hana þangað!


Vonandi hafið það haft það gott um páskana...



xxx




Hilton tónlistaratriði
Kolla og Hrafnhildur á Hilton
Páska ungar og kanínur á HiltonArt District 798 - skál fyrir okkur!! Fengum nú smá athygli þarna, ljósmyndari sem tók mynd af okkur und alles!! haha
Björk-in okkar


Enduðum svo daginn í Woudakou - Indverskurstaður sem var alveg geggjað góður..jammý!! Minnti smá á Austur-indía

1 comment:

Anonymous said...

Hæ skvis og takk fyrir sidast. eg var ekki lengi ad háma í mig páskaeggid frá tér takk fyrir tad. eg er gedveikt anægd med bloggid titt. eg fer alltaf ad hlægja og mer veitir ekki af tvi nuna a kvøldvøktunum mínum. haltu åfram ad rokka. bid ad heilsa kollu. kv. gudrunmargret