Tuesday, April 01, 2008

Mamma og pabbi í heimsókn

Mamma og pabbi komin í heimsókn. Skelltum okkur til Xian síðustu helgi.

Þar sáum við Kínverja sprengja kínverja...hehehe

Æ, þessi var smá þunnur...

Wednesday, March 26, 2008

Páskadagur

Þá er maður búinn að skila af sér "first draft" af lokaritgerðinni. Sem er mikill léttir :) Svo að ég fór í gær í nudd og slappaði af.


Annars skellti ég mér með Kollu og íslenskri vinkonu hennar á Hilton á páskadag, smá lunch. En maturinn þar var auðvitað bara himneskur. Síðan röltuðum við um Art District 798 hverfið.


Vinkona hennar var svo dugleg að láta sauma á sig hjá Toby að maður fer alveg á flug sjálfur og því langar mig að gera hitt og þetta. Komst svo að því að hann býr til skó líka. Þannig að hann getur coperað uppáhaldsskóna mína og ég get fengið þá í öllum litum. OMG...ég vissi ekki hvert ég ætlaði.


Svo að nú kalla ég hann COPY TOBY!!!


Síðan komust þær í geggjaða töskubúð sem er svona.. usss usss búð, þannig að ég bíð núna bara eftir mömmu og pabba og ætla að draga mömmu með mér þangað ;) Efast nú samt að ég þurfi að draga hana þangað!


Vonandi hafið það haft það gott um páskana...



xxx




Hilton tónlistaratriði
Kolla og Hrafnhildur á Hilton
Páska ungar og kanínur á HiltonArt District 798 - skál fyrir okkur!! Fengum nú smá athygli þarna, ljósmyndari sem tók mynd af okkur und alles!! haha
Björk-in okkar


Enduðum svo daginn í Woudakou - Indverskurstaður sem var alveg geggjað góður..jammý!! Minnti smá á Austur-indía

Thursday, March 20, 2008

Spæjarar að loka á okkur!!!

Oooohhhh....ég kemst ekki inn á mbl og vísi.
Hef heyrt að það sé út af því að það sé verið að mata okkur hér með upplýsingum sem við megum lesa og upplýsingum sem við megum ekki lesa. Hvað er eiginlega verið að skrifa um á mbl og vísi núna. Þið getið svo sem lesið aðeins á milli línanna áður en ég gerist of pólitísk.
En er þetta árið 2008 eða..... þetta gerir mann bara reiðan og pirraðan.
En málið er nú bara að mig langar að lesa stjörnuspána mína og etv hvað sé að gerast með krónuna.
Er ég rík í dag eða ekki rík....
Kemst ég í nudd...eða er nuddið 20% hærra í dag en í gær osfrv....
Hvað er að frétta af Posh og Beckham....
Allt voðalega saklaust sem ég vil lesa mig til um.
$%&//#$
Ásta reiða

Monday, March 17, 2008

Mengun og API stuðull

Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með mengunarstuðlum í Kína:

http://english.sepa.gov.cn/
En hægra megin á síðunni er hægt að skoða API stuðul fyrir hverja borg.

Svo fer maður á þessa síðu:
http://www.epd-asg.gov.hk/english/advice/advice.php
til að skoða "hættu stigið"

En í Peking er það oftast severe eða very high :(
The general public are advised to reduce physical exertion and outdoor activities!!
Vonandi verður í lagi með Olympíuhlauparana.

Svoldið áhugavert að fylgjast með þessu, hvort að þetta minnki eitthvað núna fyrir Olympíuleikana.

Friday, March 14, 2008

Komin aftur út

Þá maður kominn aftur til Kína. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða og að þetta sé að verða búið, 2 ár bara flogin frá manni.

En ég stoppaði í Kaupmannahöfn hjá Möggu, Guðrúnu Margréti og Hildi Björk á leiðinni út. Það var auðvitað bara yndislegt að rifja upp gamla tíma. Þetta mynnti mig óneitanlega á þegar við Magga vorum skiptinemar haustið 2003 í Koben, kannski ekki margt breyst síðan þá. Svo bauð Hildur Björk okkur í alveg rosalega góðan mat eitt kvöldið. Jammí...og takk fyrir mig :)

En það er töluvert margt búið að gerast frá því að ég kom aftur til Kína. Auðvitað er maður búinn að mæta í sendiráðsboð þar sem íslenskir krakkar úr MBA náminu í HÍ voru í heimsókn. Það líktist nú ekki heimsókn Hamrahlíðarkórsins enda verður seint hægt að slá hann út.

Svo er maður auðvitað búinn að skella sér í nudd. Við Kolbrún skelltum okkur á Bodhi og fengum eitt stk hláturkast. En svo vildi skemmtilega til að nuddarinn minn (KK) ætlaði að fara að teygja e-ð á mér. Ég veit nú ekki hvað hann hélt, en ég held að hann hafi búist við því að hann gæti lyft löppunum mínum beinum upp að eyrum. En svo vildi nú ekki til, heldur gat hann bara rétt svo lyft þeim ca 90°. Ég fór auðvitað að hlægja því þetta var e-ð svo vandræðalegt og hann sagði bara: “ó, you don´t exercise, you have to exercise” Og horfði á mig alvarlegum augum. Svo hélt hann áfram að hrista á mér rassinn og ýta spik...nei húðinni minni...upp og niður. Allavega, eftir þetta óskaði ég eftir því að fá mér nuddara sem talaði ekki ensku. Mér líður bara mjög vel að segja alltaf: “wo bu dong” eða ég skil ekki :)

Síðan var ég líka mjög dugleg og skráði mig í Business Chinese og regular Chinese. Mæti núna 3svar í viku 3 tíma í senn. Kennarinn þar sagði að ég væri alveg eins og bangsi, svo hló hann bara. Og ég hló aðeins ytra...en ekki inn í mér.

Uffff... það er alltaf svo gaman að þessum kínverjum. Nuddarinn hristi spikið og sagði að ég verð að hreyfa mig og kínversku kennarinn sagði að ég væri eins og bangsi!!!! :)

Hvernig er eiginlega hægt að túlka það....

Allavega, ég held ég láti þetta nægja í bili.
Kveðja frá Kína

Sunday, January 27, 2008

Pása

Er í blogg fríi þangað til ég fer aftur út :)

Saturday, November 17, 2007

Hitt og þetta

Hahaha...ég er svo hæfileikarík eða þannig.


Ég var rétt í þessu að elda, keypti mér kjúlla í Jenny Lous. Ætlaði að vera svaka dugleg að elda, en ekki borða núðlur, pasta eða jógúrt.

Jújú, mín byrjar. Gasið auðvitað svoldið fljótt á sér. Rétt búin að láta olíuna á pönnuna þegar allt rýkur upp. Fer þá fram og fer úr peysunni því að ég vildi ekki fá steikingarlykt í hana. Stend við eldavélina á hlýrabol þegar bjallan hringir. Humm...hver ætli þetta sé. Skelli mér aftur í peysuna. Nei nei...Ætli slökkvuliðið sé ekki mætt!!! Nei OK smá ýkt en einn öryggisvörðurinn niðri spyr mig hvað sé í gangi...og síðan spyr hann mig hvort að ég sé að elda og horfir inn á reykinn. JEMINN eini hvað mér leið ömurlega. Mér leið nú samt vel vitandi af því að þeir fylgjast vel með íbúunum í blokkinni. Hvort að það sé verið að kveikna í e-rj staðar. En ég vil taka það fram...þetta var ekki mikill reykur OG reykskynarinn minn fór ekki í gang!!! En DAMN ÉG ÆTLA ALDREI AFTUR AÐ ELDA. Jakob þú verður að sjá um eldamennskuna...ég bara kann það ekki.

Ég er ekki búin að vera nógu dugleg að blogga sem er bara alls ekki nógu gott. Það gerist alltaf svo rosalega margt í hverri viku hjá mér.

En svo ég byrja á réttum stað þá kom Jakob í heimsókn til Kína. Ég bara næ því ekki hvað það er sem hann vill alltaf sjá hérna. Hann bara dýrkar Kína !!! ;)

Við hittumst í Shanghai. Ég mætti aðeins fyrr til að versla, en því miður var e-r maður sem vildi stoppa mig í því og stal veskinu mínu. Ansans!!! (ætla rétt að vona að Jakob hafi ekki staðið á bak við það og reynt að stoppa mig, hann er náttúrulega komin með gífurleg sambönd við kommúnistana hérna...hehehe)

Allavega, ÉG LÆT HÓTELIÐ VITA AÐ VISA KORTINU MÍNU VAR STOLIÐ, að ég hafi þurft að loka því og að kærastinn minn komi á mánudaginn til "dekka" restina af reikningnum. OK ekkert mál, þeir hafa nú örugglega lent í þessu áður. Þannig að mín var stödd í Shanghai með nokkra aura á sér. Eins gott að ég er á góðu hótlinu, hugsa ég með mér. Strauja þá bara reikninginn vel og fæ mér e-ð gott að borða á hótelinu.
Daginn eftir labba ég í sakleysi mínu niður í lobbý. Dunda mér aðeins meðan ég bíð eftir Jakobi. Svo allt í einu heyrist kallað hátt og skýrt: HEY MISS THE VISA CARD NUMBER YOU PROVIDED IS STOLEN. YOU ARE USING A STOLEN VISA CARD. IT DOESN´T WORK. Öll augu beindust auðvitað beint að krimmanum. Djöfulli fríkað ég út!!! Þarna stóðum við báðar á miðju gólfinu í lobbýinu ég gargandi á hana og hún á mig. Ufff men, hvað ég var pirruð. En svo skyldi hún mig og varð rosa sorry. En manni finnst bara að þetta eigi ekki að gerast á flottum hótelum :/


Ég var auðvitað fljót að róast þar sem Jakob var að renna í hlað. Í Shanghai var alveg hellingur af fólki. Ég hef sjaldan séð annað eins. Maður labbaði í takt við næsta mann á undan og gat ekki farið til hægri eða vinstri. Gat svo sem sagt mér það sjálf þar sem það var national holiday. Eins og í versta troðningi í austurstræti á menningardeginum. Útsýnið frá hótlinu okkar sést hér á myndinni! Svo að við Jakob vorum alveg rosalega sátt við það að vera upp á lounge á 60 hæð á hótlinu, horfandi niður á maurana, drekkandi rauðvín :) Sweetie life!!!!!


Var e-r að tala um fuglaflensu????hummm Þessi er tekin á götum Shanghai borgarGamlahverfið í Shanghai Krúttulega börn að leik í Shanghai



Eftir 3 daga í Shanghai skelltum við okkur til Qingdao. Eftir einn dag í Qingdao fær Jakob þessa hrikalega matareitrun. Ég fæ alveg hroll enn núna þegar ég hugsa um það hvernig honum leið greyinu. En sem betur fer er maður ávallt viðbúinn og ég gat skellt nokkrum lyfjum ofan í hann og hann var orðinn sprækur eftir 2 daga.








Tsingdao verksmiðjan, vinsælasti bjórinn í Kína. - Líst ykkur ekki vel á að liggja á þessarri strönd í Qingdao!!! Uff ekki veit ég það :)

Eftir Qingdao vorum við bæði sammála um að fara aftur heim til Peking. Alveg ótrúlegt hvað maður er farinn að fíla borgina mikið. En það tók nú samt smá tíma.

Í Peking prófum við nýja staði. Gerðumst mjög menningarleg og fórum í Art District 798 hverfið, sem var afskaplega sjarmerandi hverfi. Fórum svo á kínverska acrobat sýningu sem kom Jakobi skemmtilega á óvart. (Hann var ekki að nenna, svo næst dreg ég hann í kínversku óperuna)



Kínamatur sem öllum finnst nú svo góður - og Art District 798 hverfið sem var alveg afskaplega skemmtilegt.




Svo bauð ég Jakobi í rómantíska siglingu á the BOND í Shanghai. Hummm...hver dæmi um rómantík fyrir sig!!!
Allavega, svona var nú ferðalagið okkar í þetta skiptið.
Hafið það gott...
xxx Ásta

Monday, October 15, 2007

Öðruvísi íslensk upplifun í Kína!!!!

Hamrahlíðakórinn var í heimsókn um daginn, ca 50 manns. Svo að mín var mætt í sendiráðsbústaðinn eitt laugardagskvöldið til að hitta fólk og kynnast því. Sjá svona hvort að maður myndi ekki þekkja einhver andlit.
---------------------------------------------------------------
Vá ég heyri þennan æðislega söng þegar við göngum inn um dyrnar. Ég svíf þarna aðeins um, næ mér í eitt hvítvínsglas og hlusta á fagran söng og brosi með. Ég er komin með gæsahúð við eitt lagið, þetta er nú rosalega vel gert hjá þeim hugsa ég. Svo eru nokkur lög búin og maður klappar svo kemur annað lag, ég klappa, og svo annað lag....klappa....lag...klappa....lag... klappa.


Ég hugsa með mér: "hhumm...maturinn kominn á borðið, þá hætta þau nú aðeins að syngja og borða" Ohh...nei...þau labba um matarborðið og ná sér í mat og syngja hástöfum. Ég hugsa með mér: "vá þvílíkur hæfileiki að geta borðað og sungið í einu, æ taka þau sér ekki smá pásu, þau eru búin að syngja núna í 2 tíma, mig langar að spjalla við fólk" Það er þá ekkert annað í boði en að svolgra sér aðeins á hvítvíninu.


Eitt svaka hresst lag sem þau eru núna að syngja og ekki nóg með það að þau dansa líka. Þetta er nú hresst og skemmtilegt hugsa ég. Nokkrar stelpur kippa í Kínverja sem eru þarna og dansa við þá. En gaman að sjá þetta...hugsa ég og smelli af nokkrum myndum.


Á milli laga má allt í einu heyra kallað: Ást, Friður....


Ég hugsa með mér: "vá mér líður smá eins og á trúarsamkomu" Svo breytist aðeins lagavalið og þau syngja svoldið þung lög. Allt í einu sjást eitt og eitt stelpu andlit með rauð augu. Ég hugsa með mér: "shit, eitthvað hefur komið fyrir"...hjartað í mér tekur smá kipp, ég reyni að horfa inn í hópinn...en sé ekkert. Trufla þá sönginn hjá einum og spyr : "er ekki allt í lagi, kom eitthvað fyrir?" Þá er svarað:"jú, við erum bara svo tillfinninganæm, það eru svo margar tilfinningar í gangi í hvert skipti sem við syngjum saman." Ein stelpa hleypur upp hágrátandi, ein er inni á baði grátandi og tvær frammi með rauð augu.


Ég hugsa aftur "þetta finnst mér smá skrítið, af hverju hætta þau ekki að syngja svona sorgleg lög sem minna alla á sorglega atburði. Íslensk lög eru kannski bara sorgleg" Allt í einu kemur rosa þögn eftir eitt lagið og enginn segir neitt. "OK nú hefur eitthvað gerst" hugsa ég. Svo heyrist bara kallað Ást, Friður.....og fólk kveður sendiherrann eitt og eitt af öðru syngjandi og labbar út í rútu.


Ég hugsa með mér ...úffff...men hvað ég er lítil listaspíra og svolgra mér aftur ofan í hvítvínsglasið.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Kórinn að syngja, vil ég taka fram að hann er alveg rosalega góður. Þau syngja alveg meiriháttar vel og mæli ég með honum ;)

Dansinn, sem mér fannst alveg brilliant hugmynd hjá þeim. Ég er svo mikil skræfa að aldrei myndi ég kippa í Kínverja og fara að dansa við hann. Two thumbs up :)
Auðvitað nældi ég mér í Seltirning til að tala við :Þ

(við töluðum aðeins saman meðan kórinn var að syngja) Mér til mikillar gleði, þ.e.a.s. þá fékk ég smá að myngla við fólk!!!

Kínverjarnir, sem að ég held að hafi liðið eins og mér á Peking Operunni :Þ

Eða kannski ekki....ég hló svo mikið með mömmu þar !!!

Sunday, September 09, 2007

Takk fyrir mig :)

Hæ hó

Ætli maður verði ekki að fara að blogga aftur áður en alltof mikið hefur gerst og maður veit ekkert hvar maður á að byrja.

En Magga, Kristín, Þórdís og Guðrún Margrét voru hjá mér í lok ágúst og í byrjun sept. Það var alveg yndislegt að fá þær svona rétt til að sýna þeim lífið í Peking.

En við náðum að gera alveg heilan helling. Strax á fyrsta degi var komin dagskrá fyrir næstu viku: Silki markaðurinn, fara til Toby saumakalls, forboðna borgin, torg hins himneska friðar, Hou Hai, Hutong Pizza, Simatai Great Wall, Peking University, Summer Palace, Nudd & neglur, Temple of heaven, Olympíu leikvangurinn, Wang Fujing, Beijing Duck og ég veit ekki hvað og hvað.

Við tókum alveg heilan helling af myndum og er ekkert smá erfitt að velja hvaða myndir fá að fara hingað.

Á hverjum degi var auðvitað byrjað á því að fá sér hressandi morgunverð heima hjá mér svo við hefðum e-rja orku yfir daginn.

Toby saumakall var orðinn vinur okkar allra. Hér er hann að taka mál af Kris ;)




Svo ákváðum við að fara á múrinn, Simatai. En ég var mjög fegin að fara með þær þangað frekar en á Badaling (sem er nær Peking) því að það er svo mikið túrista bæli. Hérna er hægt að taka myndir án þess að kínverjar troði sér líka inn á þær ;)




Dekurdagurinn okkar: vaknað seint og farið í kínverskt nudd sem var svo gott að við þurftum líka að skella okkur í fótanudd. Kínverjinn sem nuddaði lappirnar hennar Tótu var orðinn algjörlega ástfanginn af henni. Fannst hún svo falleg, með góða húð og í góðu líkamlegu ástandi :) Auðvitað þurftum við líka að láta laga naglaböndin okkar og lakka neglurnar.



Torg hins himneska friðar...



Það kemur sko enginn í heimsókn til mín án þess að prófa Hutong Pizzu ;)
Mynd af Mao sem er á torginu. Ákváðum að vaka til kl 05:40 til að ná athöfninni sem er við sólarupprás. En það eru verðir sem að þramma um torgið við drungalega tónlist og fáni dregin að húni. Þetta var alveg mögnuð stund sem ég hafði ekki nennt að gera hingað til. (þá hvorki að vaka svo lengi né að vakna svo snemma) Þannig að það var alveg tilvalið að nýta sér djammfélagana til að vaka með manni ;)




Kristín í "tennis" og stendur sig ekkert smá vel. Þetta er tekið í Temple of Heaven.


Kínversk tónlist..hver dæmi fyrir sig ;)


En mér þykir ekkert smá vænt um að þið skylduð geta kíkt á mig. Takk æðislega fyrir frábæran tíma stelpur!!!! RISA KNÚS FRÁ KÍNA


Nú mana ég bara ykkur hin til að koma líka.....double dare you....meirað segja!!!

koss og knús Ásta

Tuesday, June 26, 2007

MYNDIR

FULLT AF MYNDUM AF MER...HAHAHAHA ;)




Threytt eftir 9 tima prof.... Tar sem professorinn var alveg ad missa sig...greyid konan. Her eru sem sagt nokkrir af hopnum minum!!!



Suludansinn hja Kinverjarnum...algjorlega mognud tilthrif.



BUT YOU HAD TO BE THERE ;)




Lokaparty hja Hamza... i Pakistanska sendiradinu. Her erum vid asamt henni Betty ;)




Bestu vinir minir, Daniel, Nancy (Kanada/Hong Kong) og hin frabaera Jungim sem er fra S-Koreu. Algjor gullmoli :) Kinverskur / pakistanskur matur...spicy og godur ;)Eg og einn sterkur i kommunistaflokknum...hehehe ;)
Hae ho og jibby jei.... 17.juni party hja Axel og Gudnyu daginn adur en lagt var af stad til Kuala Lumpur.

Jokull ad grilla...ummm....

Sunday, June 17, 2007

Mognud tilþrif

Hæ hæ

Ég var rænd um daginn...en viljug. Ég keypti mér Cheerios pakka á heilar 800 krónur!!!! Það er greinilega dýrt að flytja inn til Kína, eða býst ég allavega við miðað við þetta verð. Kannski er ég bara að breytast í nískupúka á þvi að vera í Kína og vil helst ekkert dýrt kaupa. Ég man það samt ekki, kostar Cheerios pakki á Íslandi 800 krónur? Það má svo sem vel vera.

Ég fékk Jakob til mín í byrjun júní, lokaði hann inni og hann horfði bara á 24 og Lost meðan ég var að læra. Rosa gaman að koma í heimsókn til mín.

Kláraði svo prófin á miðvikudaginn og þá var farid um kvoldid i Pakistanska sendiradid. En tad er einn strakur med mer i bekk sem er Pakistani og pabbi hans er sendiherra i Peking. Hann var svo rosalega flottur a tvi ad hann baud 90 manna bekknum minum ollum heim til sin i mat. Svo var audvitad farid i leiki, dansad og sungid. Eg tok sem betur fer bara thatt i einum lettum leik, truth or dare. En thurfti ekkert ad segja eda gera. En einn Kinverji thurfti ad dansa suludans. Og mikid rosalega var tad fyndid. Tarin gjorsamlega ringdu nidur hja mer. En tetta minnti mig svoldid a hana Jamie Lee Curtis i True Lies fyrir ta sem hafa sed ta mynd. Fyrst var hann svona stirdur og gerdi ekkert. Svo kom svona sma thrystingur a hann ad gera tetta almennilega. Ta bara breyttist minn i kvennmann. Hann lokadi augunum, sveifladi "thykjustunni" harinu sinu, sveifladi mjodmunum, for i nokkra hringi um stongina og klifradi upp. Tetta var alveg magnad.

Anyways, nuna erum vid Jakob lent i Paradis, fra allri mengun, traffik og havada. Komin til Kuala Lumpur, fljugum svo a morgun a e-rja litillar eyju herna (Tioman) og liggjum tar adeins lengur... svo ad vid komum nu orugglega eldraud heim.

Skelli nokkrum myndum med fra Peking...










Saturday, June 02, 2007

Bad hair day!!!

Mín mætir í skólann með rosa flotta fléttu í hárinu einn daginn. Svo eftir hádegi er fléttan aðeins farin að vera smá sjúskuð.
Kínversk stelpa: Hi, Asta....what happened to your hair?
Ásta vandræðaleg og tekur um hárið: Ha...ehe...what?
Kínversk stelpa: Did you just wake up?
Ásta brosandi: ...ehe..no not really.
Kínversk stelpa: You look like a crazy women!!!!
Ásta skellihlægjandi: What, really, ehemmmeeemm....well I am a bit crazzzzy....
Kínverska stelpan horfir skrítin á mig og segir: ...ehe..really? .....You should have your hair like you did two days ago (svo sýnir hún mér) .....you looked so pretty then.
Allavega, þetta var alveg yndislegt. Kínverjar eru svo hreinskilnir. Þeir hika ekki við að segja við mann hvað maður lítur skelfilega illa út, spyrja mann hvort að maður sé þreyttur því að maður er með bauga, spyrja hvort maður sé að fitna, segja við mann að maður líti nú mun betur út án bólunnar á enninu og þess háttar.
Hehehe...já þessir Kínverjar eru sko skemmtilegir :Þ

Tuesday, May 22, 2007

Takk :)

Hæ hæ
Takk kærlega allir fyrir afmæliskveðjurnar :) Ekkert smá gaman að heyra frá ykkur...
En síðasta vika er búin að vera alveg æðisleg. Ég skellti mér auðvitað í manicure og pedicure á afmælisdaginn. Svo um kvöldið fórum við stelpurnar, (Stefanía, Bryndís og Erla) út að borða á ítalskan veitingastað. Sátum úti í alveg dúndur góðu veðri. Maður hefði þess vegna geta verið staddur á Ítalíu þetta var svo æðislegt. Gleymdi bara því miður myndavélinni minni.
Svo vorum við svo rosalega sniðugar að við fundum hótel með úti sundlaug og skelltum okkur í sólbað á föstudaginn. Vorum bara mættar þangað um 11 og lágum á sundlaugabakkanum til klukkan þrjú í ca 32 stiga hita. Aldrei datt mér nú í hug að maður gæti gert þetta í Peking...en allt er nú hægt ;)
Á föstudagskvöldið hélt ég smá partý með Jo. En hún Jo á afmæli 17.maí svo að það var alveg tilvalið að bjóða nokkrum í smá djamm. Það var alveg dúndur stuð. Ég keypti OPAL skot þegar ég var á Íslandi og kom með þetta með mér til baka til að leyfa útlendingum að smakka og þetta bara sló svona rosalega vel í gegn ;) hehehe
Á laugardaginn var maður mættur aftur í Lama Temple-ið, aðalfundur Íslendingafélagsins í Peking. Röltum um það og fengum okkur svo að borða á kínverskum veitingastað. Og viti menn, ætli maður sé ekki bara orðinn formaður Íslendingafélagsins hér í Peking. Svo að nú er næsta plan að undirbúa 17.júní hátíð Íslendinga í Peking ;)
Ja hérna megin....
Þess á milli er ég á fullu í skólanum, var að halda fyrirlestur í dag fyrir framan 20 lögfræðinga...það tók nú smá á taugarnar því að svo gusuðust bara yfir flóknar spurningar. En það gekk nú vel að lokum. Síðan var einn Þjóðverji að segja við mig að hann skyldi ekki neitt...spurði mig svo hvað þýðir "ratio" og við vorum í fjármála tíma. Ég var ekki viss hvort að hann væri að gera grín af mér eða hvað. Það er nefninlega alveg magnað hvað margir nota orðatiltækið hérna: "but english is not my native speaking language" Hvort sem er Þjóðverjar eða Kínverjar...spurning hvort að maður fari ekki bara að segja þetta líka:
"I DON´T UNDERSTAND...ENGLISH IS NOT MY NATIVE SPEAKING LANGUAGE...SORRY!" Annars lenti ég nú í Þjóðverja sem vorkenndi mér svo mikið að vera frá Íslandi að það væru örugglega engin atvinnutækifæri fyrir mig þar. Sagði svo við mig: eins gott að þú talar smá dönsku þá geturðu farið að vinna fyrir danskt fyrirtæki. Ég benti honum nú bara nett á það að nokkrur góðir frumkvöðlar á Íslandi ættu nú bara ansi mikið af dönskum fyrirtækjum... ..humm..hehe :)
Anyhow, vonandi var helgin nú góð líka hjá ykkur...
..læt hérna nokkrar myndir fylgja með...reyndar er ég nú ekki búin að vera dugleg að taka myndir :/


Wo, Lauren frá USA og Jungim frá S-Kóreu


Sætu skvísurnar sitja úti á verönd sötrandi Strawberry Daquirí


Íslendingahópur í Lama Temple að hlusta á leiðsögumann :)

Tuesday, May 15, 2007

Rassar hvað!!!

Ja hérna megin...maður veit nú ekki stundum hvað maður á að halda...en allavega átti ég erfitt með mig og gjörsamlega sprakk úr hlátri, tárin láku niður.

"you can not make a circle with your ass" - humm...really,..didn´t know that one.

"what is the best way of maximizing the ass" - humm...I KNOW THAT

(ass=arcs) GÓÐA HELVÍTIS ENSKAN!!! :) hahahaha!!!!!
(nuts=node)"every nuts must be...."
(spelling=spanning)

Allavega, þetta eru ansi hressilegir tímar stundum, og auðvitað vil ég ekki missa af neinum þeirra.
Maður bara vorkennir greyið konunni, það hafa allir gefist upp, mæta ca 5 í tíma af 90.

Jæja, best að hætta þessarri vitleysssssuuuu... INGIBJÖRG..ÞAÐ ER ORÐIÐ FRAMORÐIÐ!!!

Wednesday, April 25, 2007

Allt að gerast!!!

Hæ hæ


Jeminn það er svo mikið búið að gerast síðustu tvær vikur. Þrátt fyrir að það sé búið að vera rosalega mikið að gera í skólanum þá hef ég nú samt reynt að hafa smá tíma til að gera e-ð skemmtilegt. En við Stefanía ákváðum að túristast alltaf einu sinni í viku. Svo að við skelltum okkur í Lama Temple með henni Lauren um daginn. Okkur fannst það nú reyndar ekkert sérstakt svo að við vorum fljótar að labba þar í gegnum og beint í niður í Hutong hverfið til að setjast niður og chilla í sólinni.

























Síðan skellti ég mér með Jonathan, Bailey og Daniel á the Roots tónleika. Sem spila hipp hopp djassaða tónlist. Það var alveg rosalega gaman að gera e-ð svona öðruvísi. Bara fyndið að heyra söngvarann segja China you are so great...svo lítur maður í kringum sig og BARA útlendingar :) Svo fékk Bailey kjuðann hjá trommaranum og ég hef bara aldrei séð jafn glaðan mann eftir það.




Daginn eftir kynnti Bryndís (sem er líka að læra kínversku hérna) okkur fyrir Mexíkönskum stað. Og ég skyldi ekkert um daginn þegar stelpa sagði við mig í skólanum að ég væri eiginlega ljóshærð fyrr en ég sá mig á þessarri mynd. Held að sólin sé að lýsa á mér hárið smá. Hummm...









Einnig er ég búin að fara í fyrirtækja heimsókn til Lenovo. En Lenovo er kínverskt fyrirtæki sem keypti IBM árið 2005. Alveg hreint ótrúlegt að það skuli vera hægt. En það var alveg æðislega gaman að sjá verksmiðjuna og hlusta á fyrirlestur. Þúsundir af kínverjum að búa til tölvur. Svo í einu herberginu voru nokkrir að prófa gæðin í tölvunum og voru þá bara að leika sér í tölvuleikjum, hlusta á tónlist og horfa á kvikmydnir. Hahaha þvílík vinna :) En það var bannað að taka myndir en ég tók myndir af skónum okkar Jo :)




Síðasta mánudag þá leið mér eins og ég væri allt í einu komin í verkfræði. En í einum tíma áttum við að búa til fyrirtæki og vinna eins og í verksmiðju. Áttum að búa til ákveðna vöru og koma henni til viðskiptavina á ákveðnum tíma (smá færibandavinna). En þetta var eiginlega alveg brillant gaman, allir mjög kappsamir að vinna leikinn og vera það fyrirtæki sem að myndi skila mestum hagnaði. En okkar hópur lenti í öðru sæti sem mér finnst bara mjög gott :)

Jæja, nú er stutt þangað til maður kemur heim til Íslands...aðeins sólarhingur. hlakka til að sjá ykkur!!

Here I come :)