Tuesday, June 26, 2007

MYNDIR

FULLT AF MYNDUM AF MER...HAHAHAHA ;)




Threytt eftir 9 tima prof.... Tar sem professorinn var alveg ad missa sig...greyid konan. Her eru sem sagt nokkrir af hopnum minum!!!



Suludansinn hja Kinverjarnum...algjorlega mognud tilthrif.



BUT YOU HAD TO BE THERE ;)




Lokaparty hja Hamza... i Pakistanska sendiradinu. Her erum vid asamt henni Betty ;)




Bestu vinir minir, Daniel, Nancy (Kanada/Hong Kong) og hin frabaera Jungim sem er fra S-Koreu. Algjor gullmoli :) Kinverskur / pakistanskur matur...spicy og godur ;)Eg og einn sterkur i kommunistaflokknum...hehehe ;)
Hae ho og jibby jei.... 17.juni party hja Axel og Gudnyu daginn adur en lagt var af stad til Kuala Lumpur.

Jokull ad grilla...ummm....

Sunday, June 17, 2007

Mognud tilþrif

Hæ hæ

Ég var rænd um daginn...en viljug. Ég keypti mér Cheerios pakka á heilar 800 krónur!!!! Það er greinilega dýrt að flytja inn til Kína, eða býst ég allavega við miðað við þetta verð. Kannski er ég bara að breytast í nískupúka á þvi að vera í Kína og vil helst ekkert dýrt kaupa. Ég man það samt ekki, kostar Cheerios pakki á Íslandi 800 krónur? Það má svo sem vel vera.

Ég fékk Jakob til mín í byrjun júní, lokaði hann inni og hann horfði bara á 24 og Lost meðan ég var að læra. Rosa gaman að koma í heimsókn til mín.

Kláraði svo prófin á miðvikudaginn og þá var farid um kvoldid i Pakistanska sendiradid. En tad er einn strakur med mer i bekk sem er Pakistani og pabbi hans er sendiherra i Peking. Hann var svo rosalega flottur a tvi ad hann baud 90 manna bekknum minum ollum heim til sin i mat. Svo var audvitad farid i leiki, dansad og sungid. Eg tok sem betur fer bara thatt i einum lettum leik, truth or dare. En thurfti ekkert ad segja eda gera. En einn Kinverji thurfti ad dansa suludans. Og mikid rosalega var tad fyndid. Tarin gjorsamlega ringdu nidur hja mer. En tetta minnti mig svoldid a hana Jamie Lee Curtis i True Lies fyrir ta sem hafa sed ta mynd. Fyrst var hann svona stirdur og gerdi ekkert. Svo kom svona sma thrystingur a hann ad gera tetta almennilega. Ta bara breyttist minn i kvennmann. Hann lokadi augunum, sveifladi "thykjustunni" harinu sinu, sveifladi mjodmunum, for i nokkra hringi um stongina og klifradi upp. Tetta var alveg magnad.

Anyways, nuna erum vid Jakob lent i Paradis, fra allri mengun, traffik og havada. Komin til Kuala Lumpur, fljugum svo a morgun a e-rja litillar eyju herna (Tioman) og liggjum tar adeins lengur... svo ad vid komum nu orugglega eldraud heim.

Skelli nokkrum myndum med fra Peking...










Saturday, June 02, 2007

Bad hair day!!!

Mín mætir í skólann með rosa flotta fléttu í hárinu einn daginn. Svo eftir hádegi er fléttan aðeins farin að vera smá sjúskuð.
Kínversk stelpa: Hi, Asta....what happened to your hair?
Ásta vandræðaleg og tekur um hárið: Ha...ehe...what?
Kínversk stelpa: Did you just wake up?
Ásta brosandi: ...ehe..no not really.
Kínversk stelpa: You look like a crazy women!!!!
Ásta skellihlægjandi: What, really, ehemmmeeemm....well I am a bit crazzzzy....
Kínverska stelpan horfir skrítin á mig og segir: ...ehe..really? .....You should have your hair like you did two days ago (svo sýnir hún mér) .....you looked so pretty then.
Allavega, þetta var alveg yndislegt. Kínverjar eru svo hreinskilnir. Þeir hika ekki við að segja við mann hvað maður lítur skelfilega illa út, spyrja mann hvort að maður sé þreyttur því að maður er með bauga, spyrja hvort maður sé að fitna, segja við mann að maður líti nú mun betur út án bólunnar á enninu og þess háttar.
Hehehe...já þessir Kínverjar eru sko skemmtilegir :Þ

Tuesday, May 22, 2007

Takk :)

Hæ hæ
Takk kærlega allir fyrir afmæliskveðjurnar :) Ekkert smá gaman að heyra frá ykkur...
En síðasta vika er búin að vera alveg æðisleg. Ég skellti mér auðvitað í manicure og pedicure á afmælisdaginn. Svo um kvöldið fórum við stelpurnar, (Stefanía, Bryndís og Erla) út að borða á ítalskan veitingastað. Sátum úti í alveg dúndur góðu veðri. Maður hefði þess vegna geta verið staddur á Ítalíu þetta var svo æðislegt. Gleymdi bara því miður myndavélinni minni.
Svo vorum við svo rosalega sniðugar að við fundum hótel með úti sundlaug og skelltum okkur í sólbað á föstudaginn. Vorum bara mættar þangað um 11 og lágum á sundlaugabakkanum til klukkan þrjú í ca 32 stiga hita. Aldrei datt mér nú í hug að maður gæti gert þetta í Peking...en allt er nú hægt ;)
Á föstudagskvöldið hélt ég smá partý með Jo. En hún Jo á afmæli 17.maí svo að það var alveg tilvalið að bjóða nokkrum í smá djamm. Það var alveg dúndur stuð. Ég keypti OPAL skot þegar ég var á Íslandi og kom með þetta með mér til baka til að leyfa útlendingum að smakka og þetta bara sló svona rosalega vel í gegn ;) hehehe
Á laugardaginn var maður mættur aftur í Lama Temple-ið, aðalfundur Íslendingafélagsins í Peking. Röltum um það og fengum okkur svo að borða á kínverskum veitingastað. Og viti menn, ætli maður sé ekki bara orðinn formaður Íslendingafélagsins hér í Peking. Svo að nú er næsta plan að undirbúa 17.júní hátíð Íslendinga í Peking ;)
Ja hérna megin....
Þess á milli er ég á fullu í skólanum, var að halda fyrirlestur í dag fyrir framan 20 lögfræðinga...það tók nú smá á taugarnar því að svo gusuðust bara yfir flóknar spurningar. En það gekk nú vel að lokum. Síðan var einn Þjóðverji að segja við mig að hann skyldi ekki neitt...spurði mig svo hvað þýðir "ratio" og við vorum í fjármála tíma. Ég var ekki viss hvort að hann væri að gera grín af mér eða hvað. Það er nefninlega alveg magnað hvað margir nota orðatiltækið hérna: "but english is not my native speaking language" Hvort sem er Þjóðverjar eða Kínverjar...spurning hvort að maður fari ekki bara að segja þetta líka:
"I DON´T UNDERSTAND...ENGLISH IS NOT MY NATIVE SPEAKING LANGUAGE...SORRY!" Annars lenti ég nú í Þjóðverja sem vorkenndi mér svo mikið að vera frá Íslandi að það væru örugglega engin atvinnutækifæri fyrir mig þar. Sagði svo við mig: eins gott að þú talar smá dönsku þá geturðu farið að vinna fyrir danskt fyrirtæki. Ég benti honum nú bara nett á það að nokkrur góðir frumkvöðlar á Íslandi ættu nú bara ansi mikið af dönskum fyrirtækjum... ..humm..hehe :)
Anyhow, vonandi var helgin nú góð líka hjá ykkur...
..læt hérna nokkrar myndir fylgja með...reyndar er ég nú ekki búin að vera dugleg að taka myndir :/


Wo, Lauren frá USA og Jungim frá S-Kóreu


Sætu skvísurnar sitja úti á verönd sötrandi Strawberry Daquirí


Íslendingahópur í Lama Temple að hlusta á leiðsögumann :)

Tuesday, May 15, 2007

Rassar hvað!!!

Ja hérna megin...maður veit nú ekki stundum hvað maður á að halda...en allavega átti ég erfitt með mig og gjörsamlega sprakk úr hlátri, tárin láku niður.

"you can not make a circle with your ass" - humm...really,..didn´t know that one.

"what is the best way of maximizing the ass" - humm...I KNOW THAT

(ass=arcs) GÓÐA HELVÍTIS ENSKAN!!! :) hahahaha!!!!!
(nuts=node)"every nuts must be...."
(spelling=spanning)

Allavega, þetta eru ansi hressilegir tímar stundum, og auðvitað vil ég ekki missa af neinum þeirra.
Maður bara vorkennir greyið konunni, það hafa allir gefist upp, mæta ca 5 í tíma af 90.

Jæja, best að hætta þessarri vitleysssssuuuu... INGIBJÖRG..ÞAÐ ER ORÐIÐ FRAMORÐIÐ!!!

Wednesday, April 25, 2007

Allt að gerast!!!

Hæ hæ


Jeminn það er svo mikið búið að gerast síðustu tvær vikur. Þrátt fyrir að það sé búið að vera rosalega mikið að gera í skólanum þá hef ég nú samt reynt að hafa smá tíma til að gera e-ð skemmtilegt. En við Stefanía ákváðum að túristast alltaf einu sinni í viku. Svo að við skelltum okkur í Lama Temple með henni Lauren um daginn. Okkur fannst það nú reyndar ekkert sérstakt svo að við vorum fljótar að labba þar í gegnum og beint í niður í Hutong hverfið til að setjast niður og chilla í sólinni.

























Síðan skellti ég mér með Jonathan, Bailey og Daniel á the Roots tónleika. Sem spila hipp hopp djassaða tónlist. Það var alveg rosalega gaman að gera e-ð svona öðruvísi. Bara fyndið að heyra söngvarann segja China you are so great...svo lítur maður í kringum sig og BARA útlendingar :) Svo fékk Bailey kjuðann hjá trommaranum og ég hef bara aldrei séð jafn glaðan mann eftir það.




Daginn eftir kynnti Bryndís (sem er líka að læra kínversku hérna) okkur fyrir Mexíkönskum stað. Og ég skyldi ekkert um daginn þegar stelpa sagði við mig í skólanum að ég væri eiginlega ljóshærð fyrr en ég sá mig á þessarri mynd. Held að sólin sé að lýsa á mér hárið smá. Hummm...









Einnig er ég búin að fara í fyrirtækja heimsókn til Lenovo. En Lenovo er kínverskt fyrirtæki sem keypti IBM árið 2005. Alveg hreint ótrúlegt að það skuli vera hægt. En það var alveg æðislega gaman að sjá verksmiðjuna og hlusta á fyrirlestur. Þúsundir af kínverjum að búa til tölvur. Svo í einu herberginu voru nokkrir að prófa gæðin í tölvunum og voru þá bara að leika sér í tölvuleikjum, hlusta á tónlist og horfa á kvikmydnir. Hahaha þvílík vinna :) En það var bannað að taka myndir en ég tók myndir af skónum okkar Jo :)




Síðasta mánudag þá leið mér eins og ég væri allt í einu komin í verkfræði. En í einum tíma áttum við að búa til fyrirtæki og vinna eins og í verksmiðju. Áttum að búa til ákveðna vöru og koma henni til viðskiptavina á ákveðnum tíma (smá færibandavinna). En þetta var eiginlega alveg brillant gaman, allir mjög kappsamir að vinna leikinn og vera það fyrirtæki sem að myndi skila mestum hagnaði. En okkar hópur lenti í öðru sæti sem mér finnst bara mjög gott :)

Jæja, nú er stutt þangað til maður kemur heim til Íslands...aðeins sólarhingur. hlakka til að sjá ykkur!!

Here I come :)

Friday, April 20, 2007

STELPA

HÆ HÆ ALLIR :)


Ég var að eignast krúttulegustu frænku í heimi :) En Svana systir og Skúli eignuðust stelpu á sumardaginn fyrsta!!!


Öllum heilsast vel!!!

Þannig að mér finnst ég ekkert smá rík núna, á lítinn frænda og litla frænku :Þ

Ohhh...þau eru svo mikið krútt bæði tvö !!!

Ásta frænka :)

Tuesday, April 10, 2007

Suspect #1

Gleðilega páska allir saman.


Ég verð nú að segja það að þetta eru búnir að vera aðeins óvenjulegri páskar hjá mér en eins og gengur og gerist. Ekkert páskadót og engin páskaegg. Og núna rétt í þessu er dáldið búið að gerast sem gerist nú ekki á hverjum degi.

Síminn minn íslenski hringir og sagt er: Ásta Björg, þetta er lögreglan. Ég bara: ehe..já. Átt þú gráa Toyotu, bílnúmer PH607. Ég svara því auðvitað játandi. Svo er spurt hvar ég hafi verið á bílnum mínum og ég segi í sakleysi mínu ,,ég er í Kína" Þá segir lögreglan: það hlaut að vera, það er búið að vera erfitt að ná í þig. Dingalingding suspect #1. Svo segir hún: hverjum hefur þú lánað bílinn þinn. En ég hef engum lánað bílinn minn. Og þá spyr ég af hverju. Þá segir lögreglan: bílinn þinn hefur verið notaður í innbrot. Þá spyr hún hvort að ungur strákur hafi aðgang að bílnum mínum. Og ég segi að foreldrar mínir séu þeir einu sem hafa aðgang að honum. Og hugsa með mér ég þekki enga unga pilta.

Allavega, ég upplýsi þá um að kannski hafi e-r fengið að reynsluaka bílinn minn þar sem ég ætla mér nú að selja hann. Þeir þurfa bara að hringja í foreldra mína til að fá frekari upplýsingar. Svo að ég sit óþolinmóð við símann og bíð eftir að löggan tali við foreldra mína og þau hringi svo í mig. Hugsa svo með mér á meðan, aldrei má maður eiga neitt í friði.

Svo hringir löggan í pabba og pabbi heldur nú bara að þetta sé djókur. Fer bara að hlæja og horfir út um gluggann úti á nesi og sér bílinn minn þar. En þegar betur er aðgáð þá kemur í ljós að búið er að stela númeraplötunum á bílnum mínum. Þannig að einverjir ungir piltar hafa sett á nákvæmlega eins bíl og ég á, númeraplöturnar mínar og farið og brotist inn hér og þar. Svo er maður bara "frame-aður." Jahérna meginn...

En svona líka aðeins á léttari nótunum.

Við Stefanía buðum strákunum, Sigga og Halldóri (því miður komst Kiddi ekki) í páskamat heim til mín. Sem var alveg æðislega gaman og einmitt það sem maður þurfti á að halda. En við hlógum, kjöftuðum og spiluðum Póker (auðvitað án peninga) fram á rauða nótt.














Bless í bili
Ásta

Wednesday, March 28, 2007

Þessi enska hjá þeim....humm...

Hæ hæ


Jæja kínverjarnir eru búnir að loka aftur á blogspot og allt sem heitir blogg eitthvað. Þannig að nú þarf maður aftur að nota leyni síðuna til að skoða bloggið sitt og önnur blogg. Bara láta vita af því að ég get ekki commentað á neinar síður.




Allavega ég er að verða stundum brjáluð á því að hafa kínverja sem kennara og reyndar að hafa bara kínverja hér út um allt ...hahaha!!! Nei nei segi svona, en það er einn kennari sem talar alveg skelfilega ensku. Það er bara enginn sem að skilur hana. Ég er komin með smá orðabók á hana:




Ghoss..humm...já GOALS


Fissssible lution....FEASIBLE SOLUTION


Smoke of the line.....HA..NÚ SKIL ÉG EKKERT...já SLOPE of the line.


Urinely...ha er manneskjan að tala um þvag...nei...USUALLY




Þannig að hugurinn ber mig oftast hálfa leið til Íslands í þessum tíma. Meirað segja greyið liltu kínverjarnir botna ekkert í því sem konan er að tala um og eru því búnir að biðja hana um að kenna einu sinni í viku á kínversku. Og viti menn...hún ætlar að gera það. Sem betur fer ætlar hún líka að kenna einu sinni í viku á ensku, en ég meina.... comm on....það þarf heila orðabók á þessa manneskju. Ég skil ekkert hvað hún bullar allan daginn. Greyið litla konan....eða greyið við.




Svo tók ég upp á þeirri "brillant" hugmynd að þegar ég kæmi aftur út til Kína þá ætlaði ég að vera svoldið dugleg að "mingla" við kínverjana. Gera hópavinnu með þeim og þess háttar...svona smá net working. BIG MISTAKE!!!!!!!! Nei nei, ég má nú ekki alveg vera svona gagnrýnin. En jeminn, þetta er ágætt reynsla svo sem. Maður lærir allavega aðeins að rífast og láta ekki vaða yfir sig. Þess má geta að flest allir Kínverjar sem eru með mér í bekk eru einkabörn. Jújú, út af one children policy. Síðan eru þetta venjulega krakkar sem eru bestir í sínum héruðum um allt Kína. Úff...þetta getur tekið vel á. Svo þegar þau geta ekki útskýrt fyrir mér á ensku hvað þau eru að hugsa, þá skipta þau fljótt yfir í kínverskuna og maður heldur bara áfram að blása kúlur með tyggjóinu og horfa út í loftið á meðan þau rífast...NB RÍFAST... á kínversku. En þetta getur líka stundum verið mjög fyndið og ég fer bara að hlægja og þá horfa þau og mig og fara bara líka að hlægja. Hlátur og bros virka nefninlega alveg ótrúlega vel hérna ;-D




Svo að á svona frekar "pirrings dögum" þá er um að gera að dekra við sig. Svo að við Stefanía (sem er nýkomin til Peking mér til mikillar ánægju) og Lauren vinkona hennar skelltum okkur fínt út að borða síðustu helgi.


Bless í bili...
xxx

Wednesday, March 21, 2007

Nýja íbúðin mín

Jæja, þá kom að flutningsdeginum mikla :) LOKSINS!!!

Ég verð nú að viðurkenna það að ég var svoldið stressuð. Ég flutti um kvöld ca klukkan 11. Ég fékk kínverskt flutningafyrirtæki til að koma og ná í allt fyrir mig. Þannig að um klukkan 11 mætti risastór bíll til að taka fimm ferðatöskur og nokkra pappakassa :) Þetta voru bráðvaskir fimm litlir kínverjar sem höfðu ekkert fyrir þessu. Skelltu bara töskunum á bakið og hlógu og hlógu. Sem betur fer fékk ég Jo og Jerry bresku vini mína til að hjálpa mér að standa vörð um farangurinn minn meðan þeir hlupu með hann milli hæða.
En jú ég kvaddi gömlu íbúðina mína...og hugsaði með mér...úfff...ég vona að ég sé ekki að fara úr öskunni í eldinn. Ég hef nú aldrei lent í neinum vandræðum í gömlu íbúðinni og alltaf liðið vel þar. Er ég ekki örugglega að gera rétt....ójú...losna við landlordinn sem reyndi við mig og fá gott eldhús og gott baðherbergi :)


Ég hefði nú aldrei getað gert þetta án þess að hafa Jo & Jerry. En Jo talar alveg perfect kínversku og gat hjálpað mér með öll samskipti við "flutningskallana". Hér fyrir neðan situm við tvær frammí hjá bílstjóranum sem var alveg afskaplega vel skemmt :)


Þetta er inngangurinn að íbúðinni. Áramótatréð stendur reyndar ekki þarna ennþá. Eins og sjá má er ég alveg hæst ánægð með að hafa fundið þessa íbúð. Ég ætla bara að skella nokkrum myndum hérna fyrir neðan....













Ójújú, mín er búin að skella sér í sund!!!
Sem telst mikið kraftaverk fyrir þá sem þekkja mig vel. En dagurinn byrjaði reyndar á að fara niður í ræktina, svo í sund og gufu. Það er mjög mikill munur að hafa svona í húsinu heldur en að þurfa að ferðast í 20min til að komast í ræktina sína.

















Svo varð ég auðvitað að taka eina mynd út um stofugluggann. Ég er mjög fegin að það séu ekki hús beint fyrir framan gluggann minn. Ég er með svona smá útsýni. Það sést í góðu skyggni í fjall þarna á milli húsanna. Sólin sest eiginlega þar niður ;)

En íbúðin sem ég bý í heitir the Somerset, svoldið mikill munur á þessu húsi og húsinu mínu gamla þar sem fólk hafði dúfur úti á svölum. En auðvitað er alltaf gaman að hafa prófað að búa í kínverskuhverfi og hefði ég ekki viljað sleppa því. En 6 mánuðir eru alveg nóg fyrir mig, ég er of mikill Íslendingur ;)

Tuesday, March 13, 2007

Hong Kong

Hæ allir
Svoldið langt síðan ég hef skrifað síðast, en það er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér. Mér finnst nú að maður verði að byrja á byrjuninni. En ég fór sem sagt aftur út 21.febrúar 2007 :) Þá skelltum við Jakob okkur til London og þaðan beint til Hong Kong. Vorum þar í 6 daga og flugum svo til Peking. En þá byrjaði leitin mikla af íbúð handa Ástu pástu. Sú leit byrjaði skemmtilega, varð síðan leiðinleg og stressandi en góðir hlutir gerast hægt...og tarrra...við bara fundum drauma íbúðina.

Áður en ég segi ykkur frá íbúðinni, þá verð ég nú eiginlega að segja smá ferðasögu frá Hong Kong. Sem minnir mig reyndar á eitt já..merkilegt nokk. Áður en ég fór aftur út til Kína ákváðum við Kristín vinkona að skella okkur til spákonu. Hún byrjar eitthvað að bulla og ég bara jeminn..greyið konan getur bara ekkert. Sagði við mig eftir að hún vissi að ég væri í námi í Kína: "já, bíddu þú býrð í litlu smáþorpi" Ég bara humm....reyndi að brosa og sagði:"nei, reyndar ekki" Hugsaði með mér ÞAÐ BÚA AÐEINS 16 MILLJÓNIR Í PEKING. Svo sagði hún:"en þú býrð þá aðeins fyrir utan borgina og þarft að komast inn í hana" Aftur brosti ég kurteisislega og sagði skýrt: "Nei, veistu það ég að ég bý nánast í miðri Peking".

Allavega, merkilegt nokk!!!
Svo komum við Jakob til Hong Kong og við gistum (án þess að ég hafi haft hugmynd um það) í litlu smáþorpi rétt fyrir utan Central Hong Kong. Og viti menn þá var lýsingin hennar á þorpinu afskaplega lík smábænum okkar. Jáhá...og geri aðrir betur!!

En við vorum sem sagt í Hong Kong yfir kínverksu áramótin.






Við gistum í litlum bæ sem heitir Mu Woi í Lantau Island og tókum 20min ferju á hverjum degi til Central Hong Kong. Hérna stend ég við bryggjuna í Central HK :)
Hér fyrir ofan er sem sagt Silvermine Beach Hotelið okkar í Hong Kong. Stórglæsilegt hótel við ströndina...haha. Engir kakkalakkar allavega ;) Maturinn var reyndar rosalega góður!!


Við Jakob erum mjög lík að því leitinu til að það er varla neitt sem heitir frí hjá okkur. Þannig að við löbbuðum um allt Hong Kong og vorum duglega að túristast eins og okkur er einum lagið. Myndirnar bæði fyrir ofan og neðan eru teknar í Hong Kong Park. Bara gaman að sjá hvernig garðurinn er þakinn stórbyggingum allt í kring.






Svo skelltum við okkur í TIVOLI. Sem var auðvitað mjög gaman. Það var uppi á hæð og útsýnið var rosalegt allt í kring.


Ég verð nú auðvitað að láta mynd fylgja af drekunum sem voru úti um allt út af áramótunum. En það er nú reyndar svoldið áhugavert að sjá þá dansa. Ótrúleg fimi sem þarf í þetta.

Svo tókum við þátt í happadrætti rosalega spennt auðvitað en ekki hvað. En í ár er ár svínsins...eða hið Gullna Svín sem er rosalega gott ár. Þannig að núna sér maður nokkrar stelpur í skólanum komnar með bumbu því að það þykir mjög gott að eignast börn á þessu ári :) Og heyrið þið það sem eruð óléttar eða eruð að íhuga það...enn tími ;-D (tími fram í febrúar á næsta ári samkvæmt kínversku dagatali)


Útsýnið frá Kowloon yfir Central Hong Kong var ekki af verri kantinum. Það er einmitt á svona momentum sem maður vildi óska þess að maður væri brjálaður ljósmyndari með þrífótinn sinn og allt til að taka næturmyndir!



Því næst var farið á aðaldjamm svæðið í Hong Kong, Lan Kwai Fong. En þetta er hún Rebekka vinkona hans Jakobs sem tók okkur aðeins á djammið. En ég fékk alveg á tilfinninguna strax að Hong Kong er mikil djamm borg. Enda voru krakkar sem sögðu við mig þegar ég var að spá í að fara í skiptinám til Hong Kong: Það er yndislegt að djamma þar, frábær staður að fara þegar maður er single. Þannig að ég nenni hvorki að verða single né fá hausverk. Svo að ég ætla bara að vera í Peking ;)

Við fórum í smá ferðalag í eyjunni okkar. Sáum Giant Buddha og slíkt. Tókum svo kapal niður aftur að flugvellinum. Það var ekkert smá spúki, það var þvílík þoka efst uppi í fjöllunum. Sáum einu sinni ekki lengra en ca 3 metra framm.

Jæja, ég á erfitt með að velja myndir. Langar helst að setja þetta allt. En einhvers staðar verður maður að stoppa. Ég er pottþétt að gleyma einhverju því að það er svo langt síðan við vorum þarna. Ég skal reyna að vera duglega að blogga svo ég geti bloggað nútímann ;)

Bæjó spæjó!