Tuesday, April 10, 2007

Suspect #1

Gleðilega páska allir saman.


Ég verð nú að segja það að þetta eru búnir að vera aðeins óvenjulegri páskar hjá mér en eins og gengur og gerist. Ekkert páskadót og engin páskaegg. Og núna rétt í þessu er dáldið búið að gerast sem gerist nú ekki á hverjum degi.

Síminn minn íslenski hringir og sagt er: Ásta Björg, þetta er lögreglan. Ég bara: ehe..já. Átt þú gráa Toyotu, bílnúmer PH607. Ég svara því auðvitað játandi. Svo er spurt hvar ég hafi verið á bílnum mínum og ég segi í sakleysi mínu ,,ég er í Kína" Þá segir lögreglan: það hlaut að vera, það er búið að vera erfitt að ná í þig. Dingalingding suspect #1. Svo segir hún: hverjum hefur þú lánað bílinn þinn. En ég hef engum lánað bílinn minn. Og þá spyr ég af hverju. Þá segir lögreglan: bílinn þinn hefur verið notaður í innbrot. Þá spyr hún hvort að ungur strákur hafi aðgang að bílnum mínum. Og ég segi að foreldrar mínir séu þeir einu sem hafa aðgang að honum. Og hugsa með mér ég þekki enga unga pilta.

Allavega, ég upplýsi þá um að kannski hafi e-r fengið að reynsluaka bílinn minn þar sem ég ætla mér nú að selja hann. Þeir þurfa bara að hringja í foreldra mína til að fá frekari upplýsingar. Svo að ég sit óþolinmóð við símann og bíð eftir að löggan tali við foreldra mína og þau hringi svo í mig. Hugsa svo með mér á meðan, aldrei má maður eiga neitt í friði.

Svo hringir löggan í pabba og pabbi heldur nú bara að þetta sé djókur. Fer bara að hlæja og horfir út um gluggann úti á nesi og sér bílinn minn þar. En þegar betur er aðgáð þá kemur í ljós að búið er að stela númeraplötunum á bílnum mínum. Þannig að einverjir ungir piltar hafa sett á nákvæmlega eins bíl og ég á, númeraplöturnar mínar og farið og brotist inn hér og þar. Svo er maður bara "frame-aður." Jahérna meginn...

En svona líka aðeins á léttari nótunum.

Við Stefanía buðum strákunum, Sigga og Halldóri (því miður komst Kiddi ekki) í páskamat heim til mín. Sem var alveg æðislega gaman og einmitt það sem maður þurfti á að halda. En við hlógum, kjöftuðum og spiluðum Póker (auðvitað án peninga) fram á rauða nótt.














Bless í bili
Ásta

11 comments:

Anonymous said...

Nöhauts...ertu ekki að kidda mig...omg...djííí...ekkert fær að vera í friði og öllu taka þessir asnar upp á...en allt er gott sem endar vel ;o)
Og já gleðilega páska sæta mín þó að páskarnir séu búnir =)
Vona að það sé betra veður hjá þér heldur en hjá okkur...þvílíkt skíta veður...ég vil fá sumar og það NÚNA...hehe...
hafðu það gott krúttmús ;-*

Anonymous said...

Váááá, þetta er lýginni líkast! Rosalega er þetta "professionalt" ... Gleðilega páska vinkona, gott að vita að þið gátuð verið nokkur saman og gert ykkur glaðan dag. HORRSAKOSS beib

Anonymous said...

HROSSAKOSS, átti þetta vera. Eins gott að senda rétta kossinn sko!

Anonymous said...

vá þetta er nú meiri sagan, gott að þú hafðir fjarvistarsönnun, gerist varla betra en að hafa verið í Kína;)
vertu fegin að hafa misst af páskaeggjunum, þau eru ofmetin.

Anonymous said...

En spennó að löggan hringi alla leið til Kína. Gott að sjálfur bíllinn var safe!

Anonymous said...

ég er anonymous að ofan;)
kv. Hervör

Anonymous said...

Ja di thetta er otrulegt! Gott ad thú helst paskamatinn med Steffy og co. Lúkkar vel á hjá ykkur! :-)
knus Magga

Inga Lára said...

Ég hef nú aldrei vitað annað eins... hugsa sér að ganga svo langt að stela númeraplötu á bíl og setja á sinn til að fara að ræna á honum... allt er nú til!!! En gott að þú hafðir það gott um páskana ;) Ég var með Stefaníu í tjáningu og samskipti tímum í fyrra.. bara svona koma því að til fróðleiks!!

Rúna said...
This comment has been removed by the author.
Rúna said...

eyddi óvart áðan... vonandi rústaðir þú pókernum
kv. Rúna

Anonymous said...

Vó - ótrúleg saga! Það eru svo miklir glæpamenn á Nesinu ;-)

Jæja, hlakka til að hitta þig fljótlega heima á Íslandi!