Jakob og Ásta í Asíu
Þá er maður kominn aftur til Peking eftir rúmlega mánaðaflakk. Orðin eins og sannur Pekingbúi um leið og maður er kominn aftur. Þ.e.a.s. farin að labba yfir götu án þess að horfa til hægri eða vinstri, sendandi sms og haldandi á Starbucks í hendinni. Bílar flautandi á mann án þess að maður kippi sér nokkuð upp við það.
Reifst við leigubílstjóra daginn eftir að ég kom (nokkuð stolt því að ég gerði það á kínversku) skellti hurðinni og rauk út. Fór í ræktina, reifst aðeins meira þar, því að það var verið að svindla á mér. Sagði svo við kínverskan mann á íslensku sem var að skyrpa gulu og grænu slími á götuna: "ógeðið þitt." Hann gapti bara á mig og skildi ekkert í mér.
En svo að ég segi ykkur nú aðeins meira frá ferðalaginu okkar Jakobs að eftir að við vorum búin að skoða Yangshou (í Kína) þá tókum við lest til Nanning (í Kína), gistum þar eina nótt og svo bus daginn eftir til Hanoi (Víetnam). Ég held að þetta hafi verið etv erfiðastur svona travel pakkinn okkar. Eftir lestarferðina frá Yangshou til Nanning vorum við að deyja úr hungri. Fengum nánast ekkert að borða alla leiðina, eða eins og sjá má á mynd...e-rn kínverskan mat sem ég veit ekki hvað var...nei þetta er ekki eins og dósabaunir....allavega ekki lyktin.
Síðan ferðuðumst við frá n-Víetnam til s-Víetnam, þaðan til Kambódíu og svo til Tælands. Læt hérna nokkrar myndir fylgja með ;)
Gamli kallinn sem tók á móti okkur þegar við komum til Yangshou í Kína. En þetta var nú bara svona trikk til að fá fólk til að taka myndir og svo á maður að borga.
.jpg)
Fórum svo á bambus fleka niður ána í Yangshou...sem var alveg æðislegt. Mæli eiginlega með ferð til Guilin og Yangshou fyrir alla sem ætla að kíkja til Kína.
Halong Bay - Víetnam. Gistum á báti eina nótt á Halong Bay. Þetta landslag er mjög líkt Guilin landslaginu í Kína. Svona flott bungufjöll. Annars kynntumst við á bátnum rosalega skemmtilegu pari frá Ástralíu. Þau fóru að tala um hættuleg dýr sem væru til í Ástralíu...snáka osfrv. Svo að við sögðum að þeim að heima á Íslandi væru svona "killer sheeps" sem væru mjög hættulegar. Þeim fannst það mjög fyndið. Annars eftiráhyggja hefði maður geta sagt að við værum með Ísbirni út um allt. Jahérna megin....
Aðalmenningarsjokkið...ef hægt er að kalla það sjokk beint...þá eru það án efa vespurnar og mótórhjólin sem eru út um allt, bæði í Víetnam og Kambódíu. En það er mjög algengt að maður sjái heilu fjölskyldurnar á hjólinu...já..án hjálms. Eða foreldrar með hjálm en ekki börnin. Þessir foreldrar hafa nú búið til samt mjög góðan "safety barnastól" fyrir barnið eins og þið sjáið...svo að það ætti nú að vera bara í góðu lagi...ekki sammála!!!..hummm... .jpg)
Eftir Víetnam fórum við til Kambódíu. Fórum að skoða Angkor Wat...og já ég vissi ekki hvað Angkor Wat var fyrr en tveim vikum áður en við fórum þangað. Og nei ég man ekki mikið eftir Angelínu Jólí í Tomb Raider. En þetta er það flottasta og geggjaðasta sem ég hef séð. Mæli með því að þið kynnið ykkur þetta og setjið það á planið: ...hlutir sem ég ætla að gera í lífinu...
Svo þegar komið var til Tælands var okkur Jakobi orðið svoldið heitt, þannig að við skelltum okkur á ísbar. Sem var auðvitað bara geggjað að sjá fólk á stuttbuxum í 10 stiga frosti. Við Jakob vorum hins vegar vel tilbúin, ég fór í langermabol og gallabuxur áður en inn var farið. Gleymdi hins vegar að taka kuldaskóna með mér...var víst bara með sandala. En fengum að láni þessa töff húfu, svona sveip og ullasokka. Svo að ég skellti mér bara í ullaskokkana innanundir sandalana. Það lúkkaði mjög vel ;) Svo tók maður eitt skot til að halda á sér hita. Mér sýnist ég nú samt varla þora að taka þetta skot.
Ég sakna sundlaugarinn á resortinu okkar. Ohhh....það var sem sagt sundlaug ...og svo sá maður sjóinn...jammí....jpg)
Það verður nú ein rómantísk og væmin mynd að fylgja með, tekin á Tælandi. Þetta var nú alveg ljúft líf. Horfðum á sólina setjast niður, sötruðum öl og hugsuðum hvað lífið væri nú gott ;)
Jæja, vonandi hafið þið það gott á Íslandi. Frétti nú að það væri Mæjórka veður...spurði svo auðvita: já er það, hvað er heitt?...ca 12 stiga hiti. Úff...það er ekkert smá heitt...svo farið vel með ykkur. Muna eftir sólarvörn!!! ;)xoxo

5 comments:
vá hvað mig langar í þessa sundlaug, ohhh og í allt ferðalagið þitt, ég myndi drepa ísbjörn fyrir nokkra daga á legubekk við sundlaug á Tælandi núna.
styttist í heimkomuna;) vona að þú sért að njóta þess að gera ekki neitt þangað til þú kemur hingað heim þar sem allir þurfa alltaf að vera að gera eitthvað...
túttílú
Hervör
Geggjaðar myndir krúsin mín og gott að sjá hvað þið hafið haft það kósí.
Kv.
SM
Ekkert smá spennandi ferðalag!!
Kv. þórdís
Varstu að taka myndir fyrir Moggann? Það var nákvæmlega eins mynd frá Kambódíu í Mogganum síðustu helgi!
Gaman að sjá myndir frá kunnuglegum slóðum, það hefur væntanlega ekki verið eins sveitt í Yangshou og í ágúst í fyrra... Ég finn smörlykt þegar ég sé þessar myndir :Þ
Hefði ekkert á móti einum bolla af þessu mauki núna :S
KR
já þetta voru myndir sem við tókum. Vantaði bara að segja ljósmynd: ÁBD hehehe ;)
Post a Comment