Monday, July 07, 2008

Kveðja - over and out :)

Sæl öll

Þá er dagurinn sem maður hefur beðið eftir í 2 ár loksins runninn upp :) Loksins búin að fá mér nýja húfu!!!
Annars eru síðustu 10 dagar búnir að vera alveg yndislegir því að bæði Svana og pabbi komu í heimsókn og voru viðstödd útskriftina mína. Erum auðvitað búin að fara allan túrista hringinn hér í Peking ásamt því að skella okkur í nudd og neglur.

Sjálfur útskriftardagurinn var mjög skemmtilegur en í senn líka mjög skrítinn og áhugaverður því að allt fór auðvitað fram á kínversku.

En það er svoldið skrítið að sitja hérna núna og hugsa aðeins til baka. Því þetta er búinn að vera alveg frábært tími og margt sem stendur upp úr.

- þegar ég þurfti að fara í "team work" upp í sveit í fyrstu vikunni minni (held að það hafi verið skelfilegasta lífsreynslan mín)

- þegar ég horfði á búddana reyna að veiða leigubíl en enginn vildi stoppa fyrir þeim

- þegar ég fór fyrst á klósettið í skólanum mínum

- þegar ég lenti á frábærum prófessorum sem kenndu skemmtilega tíma
- þegar ég kynntist Jungim og Nancy

- öll þau skipti sem ég fór á Starbucks með Stefaníu

- þegar Kristín, Þórdís, Guðrún Margrét og Magga komu í heimsókn til mín

- að fá að fylgjast með allri uppbyggingu á Olympíuvettvanginum og CCTV turninum (og í raun allri uppbyggingu hér í Peking)

- öll hláturköstin með Kollu í nuddi

- Chill á Bókaorminum og pizza á The Tree

- þegar pabbi og mamma komu í heimsókn og voru hjá mér í mánuð
- og núna þegar pabbi og Svana eru í heimsókn að ná í litla barnið alla leið til Kína

- og svo má auðvitað ekki gleyma öllum þeim skiptum sem Jakob hefur komið í heimsókn til mín og við saman að flakka um heiminn
- og svo auðvitað margt margt fleira ...að ég veit ekki hvar ég á að hætta...

Svo ég segi bara koss og knús til ykkar allra
Gangi ykkur vel og hlakka til að sjá ykkur sem eruð á Íslandi















11 comments:

Anonymous said...

Hahahah, sé pabba þinn fyrir mér í "nöglum" hahhaha!!! Innilega til hamingju með áfangann, bkv BO.

Anonymous said...

Dásamlegt - innilega til hamingju - algjör hetja!!!

Hlakka til að sjá þig...

bkv Sædís

Anonymous said...

Vá ótrúlegt þú sért bara á leið heim!! Innilega til hamingju elsku síldin mín!! :D hlakka til að hitta þig fljótt
xx magga

Anonymous said...

Til hamingju;) Hlakka til að sjá þig.

kv Hervör

Anonymous said...

yktar hamingjuoskir fra kbh!
knus og kossar hb

Anonymous said...

Til Hamingju Med Åfangann!!! hurra hurra hurra!!!
Tad er búid ad vera geggjad gaman ad fylgjast med tér í gegnum bloggid og nåttlega hrein snilld ad få nasatefinn af lifinu tarna uti! Knus
gudrunm arg gret

Anonymous said...

Vá hvað tíminn er fljótur að líða. Mér finnst eins og það hafi verið í gær að þú sagðir okkur á Skotó að þú værir að flytja til Kína og hélt fyrst að þú værir að djóka!! Silly me ; )
Innilega til hamingju með áfangann.
Kveðja Hildur Rut

Anonymous said...

Innilega til hamingju með áfangan skvís...þú ert snilli billi ;*

Bkv.
Svanzí

SYTYC said...

Til hamingju með áfangann Ásta mín.
Það verður gaman að fá þig heim aftur ;-)

Anonymous said...

Til lukku beib!!! :D
Tíminn er þvílíkt fljótur að líða. Eins gott að við náðum að koma í heimsókn.

Knús,
Kris

Thordis said...

Til hamingju med utskriftina!!!!
Kv. Thordis og Jacob